Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 124
120
BÚNAÐARRIT
Sumarið (júní—september) var þurrt í meðallagi,
hlýtt og góðviðrasamt.
Jiiní með jöfnum hlýindum, hægviðri og sól. Helzt
til þurrviðrasamt, enda fór öllum gróðri fremur hægt
frain. Ekki kominn góður kúahagi fyrr en um 20.
Úrkoman féll mest i fyrri helming mánaðarins, en
liún virtist ekki vera næg til góðrar sprettu, enda varð
svo, að tún og akrar voru ekki í meðallagi síðast í
mánuðinum, og hefur hér komið til, hve vorið var
kalt.
Júlí hægviðrasamur, sólríkur með tæplega meðal-
hlýindum. Sláttur byrjaði víða 10.—20., og var þá
komin góð spretta, því fyrri hluta mánaðarins var
nokkuð úrkomusamt. Eftir 17. s. m. þornaði til,
og voru daufir þurrkar, sem næst annan hvern dag,
það sem eftir var mánaðarins. Vegna heldur daufra
þurrka voru margir, sem hirtu töðuna ekki nógu vel,
og varð víða hitagjarnt í hlöðum. Olli þetta slcemmd-
um hjá mörgum.
Bygg skreið 12.—15. júlí og hafrar um 20, eða í
seinna lagi og veldur hér hið kalda vor. Mánuðurinn
fremur hagstæður heyskap og grasvöxtur yfir meðal-
lag.
Ágúst með óvenjulega þurru, sólriku og góðu veður-
fari allan mánuðinn. Heyslcapartíð sú bezla, sem
þekkst hefur. Töður hirtust vel og útheyi varð víða
fullnáð í mánuðinum, kartöflum og korni fór vel
fram, og gott útlit með vanhaldalausa uppskeru. —
Myglu varð lílið vart í kartöfium, en stöngulveiki
sums staðar. Bygg varð elcki fullþroska í mánuðinum,
og var það vegna þess, hve júlí var svalur. Allt gras-
fræ þroskaðist í meðallagi snemma, og nýttist vel.
Háarspretta varð ekki góð, mest vegna þurrviðra.
September. Hægviðrasöm tíð og með mörgum þurr-
viðrisdögum eins og sumarið allt. Hiti fyrir neðan
meðallag og töluvert sólfar. Úrkoman, bæði að tíðni