Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 160
BÚNAÐARRIT
15(5
þeiin hvernig ég hugsaði mér að vinna að þessu máli,
og óskaði jafnframt ýmsra upplýsinga, og áfram-
haldandi bréfaskipti.
Þann 3. nóv. fór ég suður. Útvegaði mér afarlítinn
farareyri, 440 kr. danskar. Meðan ég dvaldi í Reykja-
vík, kom ég út bréfum lil varpbændanna, og hjálpaði
Búnaðarfélag íslands þar rækilega til.
Þann 12. nóv. flaug ég beina leið til Hafnar. I Kaup-
mannahöfn þurfti ég að hitta Óla Vilhjálmsson for-
stjóra skrifstofu S. í. S. Eftir beiðni minni sendi
S. í. S. þangað 40 kg af óhreinsuðum æðardún, til
þess að gera tilraun með, ef ske kynni að nota mætti
eitthvað af fiðurhreinsunarvélum þeim, sem mikið
eru notaðar i Danmörku, svo og til að gera visinda-
legar tilraunir með hitun á dún í ýmis hitastig á mis-
löngum tíma, og svo áhrifin á gæði dúnsins, bæði
samloðun og slitþol dúnþráðanna. Ég stanzaði að-
eins þrjá daga í Kaupinannahöfn, en fór til Árósa á
fund Skúla prófessors Guðjónssonar. í Árósum dvaldi
ég í tvær vikur og fór prófessor Skiili með mér í þær
verksmiðjur, sem nokkrar líkur væru á, að gagni
mætti verða um hreinsun æðardúns. Skoðuðum við
fiðurhreinsunarstöð, sem Magasin du Nord rekur í
Árósum, fuglasláturhús og fiðurhreinsun í Randers
og Iitla verksmiðju hjá Horsens. Ekkert var upp úr
því að hafa viðkomandi æðardúnshreinsun. Þó voru
þarna tvær aðferðir við þurrkun dúns, sem ef til vill
mætti nota, en þó breyttar.
Þá skoðuðum við feikn stóra hör og hampverk-
smiðju i Viby, rétt hjá Árósum. Þar er stórt verk-
smiðjuhverfi, sem F. D. B. rekur þar. í hörverksmiði-
um eru notuð vinnubrögð, sem líkjast æðardúns-
hreinsun, þar sem hörinn er látinn fara á breiðu færi-
bandi eftir kanal, þar er hann eltur, hristur og bak-
aður á grindum og ristum, og stöðugt lilásið á hann
60° heitu lofti. Auðvitað voru þetta allt of stórvaxnar