Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 168
164
B Ú N A Ð A R R I T
um, þar á meðal hvallýsi, sem hann taldi vafalaust,
að hér væri framleitt í stórum stíl, og gaf hann i skyn,
að ef við gætum boðið síldarlýsi, þá yrði auðveldara
fyrir okkur að semja um hrossin og ýmsar aðrar
vörutegundir. f sambandi við þessar umræður gátum
við þess, að við framleiddum talsvert af lýsi og einnig
mjög mikið af fiski og síld. Hr. Nowicki tjáði okkur
þá, að þeir hefðu að vísu mikinn áhuga fyrir íslenzkri
síld, sem væri þekkt i Póllandi sem mjög góð vara, en
gat þess hins vegar, að í nýafstöðnum samninguni
við Norðmenn og aðrar þjóðir, hefðu Pólverjar nú
þegar fest kaup á svo miklu magni af síld, að þeir
gætu ekki ltætt við það á þessu ári, en kveðst hins.
vegar vonast til að fá aðstöðu til að ræða um það á
næsta ári. Um fiskinn sagði hann hins vegar, að þeir
framleiddu svo mikið magn af honum sjálfir, að hann
væri orðinn einn af þeirra útflutningsvörum til ann-
arra landa.
Enn fremur kom í Ijós við þessar umræður, að í
Póllandi er tilfinnanlegur skortur á nautgripum, og
var talsvert rætt um möguleika á að kaupa kvigur
frá fslandi.
Þar sein Pólverjar gáfu oft í skyn, að þeir hefðu á-
huga fyrir að flytja út fleiri vörur en kol, og hefðu
margs konar iðnaðarvörur til útflutnings, þá var, eftir
ósk okkar, undirbúið að gera lista yfir þær vörur, sein
uin gæti orðið að ræða. Af viðræðunum skildist okk-
ur, að t. d. gætu vefnaðarvörur komið til greina nú
þegar eða hráðlega, og ræddum við i þvi sambandi
nokkuð við Zelenski, deildarstjóra, sem hefur aðallega
með þær vörur að gera. Enn fremur var minnst á syk-
ur, sement, ýinis konar járn, svo sem steypujárn og
þakjárn, rafhreyfla og fleiri járniðnaðarvörur.
Meðan þessar fjrrstu umræður stóðu yfir, hafði
starfsmaður í landbúnaðarráðuneytinu, að nafni
Górka, samband við okkur, en hann á verksmiðju,
i