Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 177
B U N A Ð A R R I T
173
lét skýrt í ljós, að rétt væri af okkur að hefja aftur
umræður um hestakaupin í siðasta lagi í apríl eða
maí næsta ár.
Síðast höfðu við tal af aðalframkvæmdastjóra inn-
flutningsdeildar ráðuneytisins, dr. Paprocki, senr tek-
ið hafði við störfum dr. Gall og sltýrði liann okkur
frá, eins og aðrir, að þeir hefðu mikinn áhuga fyrir
íslenzku hrossunum, en sagði hins vegar, að því miður
gætu þeir ekki veitt þeim móttöku á þessu ári, þótt
þeir þyrftu þá tilfinnanlega vegna landbúnaðarins, og
væru okkur kunnar ástæðurnar, en gat þess eins og
aðrir, að breyttar aðstæður myndu koma með nýju
ári, og þeir væru reiðubúnir að hefja þá samninga
við okkur og frekar fyrr en síðar.
Að síðustu viljum við henda yður á, herra atvinnu
málaráðherra, að vegna þeirra upplýsinga, sem við
fengum í Póllandi, erum við sannfærðir um, að í næstu
15—20 ár getur orðið um mikla hestasölu að ræða til
Póllands, ef málinu verður haldið áfram og rétt á þvi
haldið, og ef á þeim tíma tækist að skapa hrossun-
um vaxandi álit, með því t. d. að stækka þau dálítið
og rækta þau, þá gæti hér sennilega skapazt grund-
völlur fyrir varanlegri útflutningsframleiðslu fyrir
bændur landsins.
Samkvæmt upplýsinguin frá landbúnaðarráðuneyt-
inu í Varsjá er nú unnið af kappi að því að gera
sem flest býli í Póllandi að smábýlum ineð ca. 5 ha.
landstærð. Þetta mun hafa þær afleiðingar, að drált-
arvélar munu tæplega verða samkeppnisfærar við
hestinn, enda sögðu starfsmenn landbúnaðarráðuneyt-
isins okkur, að Pólverjar hefðu lítinn áhuga fyrir
kaupum eða framleiðslu dráttarvéla til landbúnaðar-
starfa.
Þá viljum við enn fremur benda á, að í Póllandi
hefur ríkt allt önnur stefna í hrossarækt en í vestan-
verðri Evrópu. Þar hafa aldrei verið ræktuð þung