Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 34
Aðalefni þessa fundar var að ræða um álit milliþinganefndar um breyt-
ingar á félagskerfi landbúnaðarins. Pá ávarpaði Ágústa Þorkelsdóttir á
Refsstað fundinn f.h. nokkurra kvenna, sem hafa beitt sér fyrir því að fá
konur til að taka meiri þátt í störfum bændasamtakanna.
Fundurinn samþykkti nokkrar ályktanir, sem beint var til Búnaðarþings.
Ferðalög, fundir o.fl.
Formaður og búnaðarmálastjóri mættu á aðalfund Stéttarsambands bænda,
sem haldinn var á Hvanneyri dagana 31. ágúst til 2. september. Formaður
ávarpaði fundinn.
Búnaðarmálastjóri sótti aðalfundi eftirtalinna búnaðarsambanda, ávarp-
aði og tók þátt í umræðunni: Bsb. Borgarfjarðar 22. apríl á Hvanneyri,.
Bsb. Kjalarnesþings 27. apríl í Mosfellsbæ, Bsb. Suðurlands 30. apríl í
Félagslundi í Gaulverjabæjarhreppi, Bsb. Dalamanna 6. maí í Búðardal og
Bsb. Snæfellinga 19. júní í Breiðabliki í Miklaholtshreppi. Formaður sótti
einnig aðalfund Bsb. Suðurlands. Ekki reyndist tök á að heimsækja
aðalfundi fleiri búnaðarsambanda.
Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri í Iandbúnaðarráðuneytinu, fór
þess á leit fyrir hönd framkvœmdanefndar búvörusamnings, að Búnaðarfé-
lagið veitti aðstoð við og skipulegði kynningu á hinum nýja búvörusamningi
fyrir ráðunautum og forsvarsmönnum búnaðarsambandanna. Einkum var
það tilboð ríkisins um kaup á fullvirðisrétti til sauðfjárframleiðslu og sú
skerðing á rétti til greiðslumarks, sem bændur máttu eiga von á, sem ekki
gengju til samninga um fækkun og samdrátt, sem þótti mikilvægt að kynna.
Skipulögð var fundaferð kringum landið og fundir haldnir á Hvanneyri
og á Blönduósi 21. maí, í ídölum og á Egilsstöðum 22. maí, á Rauðabergi í
Austur-Skaft.23. maí, á Hvolsvelli og að Fólkvangi á Kjalarnesi 24. maí.
Ætlun var að halda fund á ísafirði fyrir Vestfirði, en af því varð ekki, og
kom fulltrúi Bsb. Vestfjarða á fundinn á Hvolsvelli, Strandamenn voru
boðaðir á Blönduós. Á fundina voru boðaðir héraðsráðunautar, stjórnir
búnaðarsambandanna og fulltrúar á Stéttarsambandsfundi.
Á fundum þessum höfðu framsögu þeir Guðmundur Sigþórsson frá
landbúnaðarráðuneytinu og Haukur Halldórsson formaður Stéttarsam-
bands bænda, en auk þess ræddi Arnaldur Bjarnason og undirritaður um
atvinnumál sveitanna. Undirritaður var fundarstjóri.
Af öðrum fundum og samkomum, sem sóttar voru, má nefna, að
formaður og búnaðarmálastjóri sóttu sýningu Stóðhestastöðvar í Gunnars-
holti 4. maí og að formaður sótti Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna á
Gaddstaðaflötum 29.-30. júní og ávarpaði það á hátíðarsamkomunni.
Undirritaður mætti við skólaslit á Hvanneyri 11. maí og afhenti bóka-
verðlaun fyrir besta árangur á búfræðiprófi, en Gunnar Sæmundsson mætti
sem fulltrúi stjórnar við skólaslit á Hólum og afhenti samskonar verðlaun.
32