Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 36
hafði sinn hátt á þessari kynningu, og voru þeir allmismunandi. Danir sýndu
kvikmynd í fullri lengd, sem sagði sögu ungrar bændafjölskyldu, sem lenti í
fjárhagserfiðleikum og varð að selja staðfestu sína. Frá Svíum komu
listfræðingur og bókmenntafræðingur og röktu fróðlega þessi tengsl. Finnar
höfðu svipaðan hátt á og gert var í íslensku kynningunni. Frá Noregi kom
arkitekt, sem lagt hefur sig mjög eftir því að rannsaka þróun byggðar í
dreifbýli og samverkan búsetuhátta og menningarlífs. Allt var þetta hið
áhugaverðasta, og kom greinilega í ljós hjá öllum þátttakendum fundarins,
að mikill áhugi er fyrir því hjá bændasamtökum þessara landa að gera
öðrum hópum í þjóðfélaginu Ijóst, að bændamenning sé bæði mikilvægur
þáttur í arfi þjóðanna og að enn ættu bændur og fólk sveitanna miklu
hlutverki að gegna í lífi þjóðanna, ekki aðeins til að varðveita menjar um
menningu, heldur viðhalda henni sem lifandi uppsprettu m.a. fyrir listsköp-
un. Mikil áhersla er nú lögð á það á Norðurlöndum að varðveita landslag og
umhverfi lifandi byggða. Þetta, sem á norrænum málum er kallað kultur-
landskap, mætti hvort sem er þýða með því að kalla það ræktunar- landslag
eða menningar-landslag.
í þessari viðleitni sinni til að rækta þjóðlega menningu sveitanna og
bændasamfélagsins hafa bændasamtökin bæði í Svíþjóð og Danmörku
myndað sér sérstaka menningarsjóði. Það hafa íslensku bændasamtökin
hins vegar enn ekki gert. Vissulega gæti slíkur sjóður, ef hann væri sæmilega
stöndugur, ýtt undir ýmsa þá starfsemi, sem verða mætti hlut landbúnaðar
og sveita til framdráttar.
IFAP- ráðstefna í Reykjavík
Á ráðstefnu Alþjóðasambands búvöruframleiðenda, sem haldin var í
Þrándheimi í byrjun júlí 1990, gerðu Norrænu bændasamtökin það að
tillögu sinni, að boðað yrði til alþjóðlegrar ráðstefnu, sem fjallaði um þróun
landbúnaðarframleiðslu með tilliti til umhverfismála. íslensku fulltrúarnir
höfðu þá aflað sér umboðs frá ríkistjórninni til að bjóða, að þessi ráðstefna
yrði haldin á íslandi. Því boði var vel tekið um leið og það var ákveðið, að
IFAP stæði fyrir ráðstefnunni. Ákveðið var nokkru síðar, að hún yrði í
Reykjavík dagana 16.-18. októberog aðheiti hennaryrði „Landbúnaðurog
haldbœr þróun - lykilhlutverk bænda“.
Formlega séð var það íslenska ríkisstjórnin, sem var móttökuaðili
(gestgjafi) ráðstefnunnar, en undirbúningur hér var að mestu á vegum
bændasamtakanna, einkum Stéttarsambands bænda og Búnaðarfélags
íslands.
Dagana 13.-15. okt. var auk þess haldinn fulltrúaráðsfundur IFAP, sem
fulltrúar bændasamtakanna sátu.
Fulltrúar BÍ á ráðstefnunni voru auk formanns Ólafur R. Dýrmundsson
og undirritaður. Ráðstefnunni hafa verið gerð skil í sérstöku hefti af Frey.