Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 41
Jarðrækt og hlunnindi
Árni Snœbjörnsson
Jarðrœkt.
f lok ársins 1990 og í ársbyrjun 1991 hafði
ég umsjón nreð uppgjöri á jarðabótaframlagi
vegnaframræslu ársins 1990. Framræsla, sem
til uppgjörs kom, varð 534.866 m’ í opnum
skurðum, allt viðhald á framræslu í ræktuðu
landi. Dálítið magn var látið bíða uppgjörs
næsta árs. Ekki er fylgst nreð því, hvort
einhver eða hversu mikil framræsla á sér stað
í óræktuðu landi, en slík framræsla nýtur ekki
lengur framlags. Trúlega er þar þó um lítið
magn að ræða. Meðalverð ársins 1990 var kr.
21,54 á rúmmetra, sem er rúmlega 8% hækkun frá fyrra ári. Engin
plógræsla var tekin út á árinu.
Þegar Ijóst varð í upphafi árs 1991, að fjárveitingar til jarðræktarfram-
kvæmda ársins nægðu aðeins til að greiða hluta af því magni, sem pantað
var, reyndist óframkvæmanlegt að semja við verktaka í skurðgreftri eins og
áður. Því var sá háttur hafður á, að bændur eða viðkomandi búnaðarsam-
band sömdu beint við verktaka, og greiddu bændur sjálfir fullan kostnað, en
síðan var framkvæmdin tekin út og greiðslum til bóndans hagað eins og við
aðrar framkvæmdir, sem njóta framlags. Reiknað var með, að verð á
grafinn rúmmetra hækki um 7% frá árinu 1990.
í jöfnunarsjóð varinnheimt gjald af skurðgreftri ársins 1990, kr. 160.460,
en 15 verktakar greiddu til sjóðsins. Úr sjóðnum var úthlutað til 39 bænda í
20 búnaðarfélögum, samtals að upphæð kr. 143.155.
Að venju var talsvert leitað til Búnaðarfélagsins eftir leiðbeiningum um
gerð og frágang lokræsa á ýmsum stöðum. Eina ferð fór ég með Kristjáni Bj.
Jónssyni, ráðunaut, þar sem við leiðbeindum um gerð lokræsa.
Eg flutti erindi um framræslu á Ráðunautafundi BÍ og Rala, sem haldinn
var í byrjun febrúar.
Undanfarin ár hef ég starfað í stjórn skorar VIII hjá NJF og var á
aðalfundi hennar sl. sumar endurkosinn til næstu fjögurra ára. Þá tók ég
39