Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 42
sæti sem gjaldkeri í stjórn íslandsdeildar NJF á sl. ári og sótti þá fundi, sem
deildin stóð að. Dagana 17.-20. júní sótti ég ráðstefnu NJF, sem haldin var í
Uppsölum í Svíþjóð. Yfirskrift ráðstefnunnar og megin viðfangsefni var
„Norrænn landbúnaður í sátt við umhverfið.“ Ráðstefna þessi var mjög
fróðleg, og vísa ég til greina í Frey (nr. 21/91), þar sem við Óttar Geirsson
segjum frá nokkru af því, sem fjallað var um á ráðstefnunni. Ég lagði til
veggspjald (poster) ásérdagskráskorar VIII, ásamt fjölfölduðum texta, þar
sem kynnt var framræslulilraunin á Hesti og helstu niðurstöður hennar.
Dagana 12.-13. október sat ég þing Landverndar, sem haldið var í
Munaðarnesi, sem fulltrúi BÍ. Þá sótti ég tvo fundi (sem fulltrúi BÍ), sem
umhverfisráðuneytið boðaði til um sinubrennslu, en ráðuneytið hyggst
endurskoða reglur um hana.
Hlunnindi.
Æðarrœkt. Varp gekk víðast hvar vel á Iiðnu vori. Á sumum svæðum er
um aukningu að ræða (Austurland og víðar), annars staðar stendur varp
nokkuðí stað á milli ára, en til eru svæði, þar sem varper dálítið minna en sl.
ár. Á það einkum við um norðanverðan Breiðafjörð, Dýrafjörð og Önund-
arfjörð. Óljóst er, hvað veldur, því að tíðarfari og ytri aðstæðum sl. vetur og
vor (eða vargi) verður tæplega um kennt. Sumir kenna um miklum afföllum
á ungum, sérstaklega vorið 1988, en þeir ungar hefðu átt að byrja að skila
sér í varp sl. vor. Aðrirnefna þann toll, sem grásleppunet ogönnur net taka.
Sums staðar kenna menn um aukinni unrferð hraðbáta, almennri skotveiði
og truflun, sem þessu fylgir þar, sem aðkomumenn fara mikið um. Þá er
ekkert vitað um, hvort sjúkdómar, mengun eða tilflutningur á fugli geti hér
valdið einhverju. Þetta vekur athygli á því, hversu lítið við í raun vitum um
þennan nytjafugl okkar, og að full ástæða er til að stórefla allar rannsóknir
tengdar æðarfugli.
Áhugi manna á æðarræktinni hefur tvímælalaust verið að aukast á
undanförnum árum, dúntekjan á landinu hefur vaxið jafnt og þétt og var
komin í 3137 kg af útfluttum dún árið 1990, sem er svipað og 1989, en mun
meira en næstu ár þar á undan. Aukinn áhugi á greininni er eflaust að
talsverðu leyti vegna þess, að verð hefur veriðgott oghækkaðþar til sl. vor.
Ég hef reynt að fylgjast með markaðsmálum eftir bestu getu og tekið þátt í
tveim fundum um þau mál með útflytjendum og stjórn ÆÍ, fundir þessir
voru í janúarlok og í byrjun september.
Ég heimsótti um 60 æðarbændur á sl. vori bæði gamalgróna bændur og
einnig þá, sem eru að koma upp nýverpi eða örva lítið varp. Ég reyni að taka
skipulega fyrir ákveðin svæði, og að þessu sinni fór ég um Austurland, V,-
Húnavatnssýslu og á nokkra bæi utan þessara svæða. Á þessum svæðum leit
varp mjög vel út og virtist í aukningu.
Ég sat eins og undanfarin ár alla stjórnarfundi ÆÍ og ritaði þar fundar-
40