Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 64
útgáfu þess á árinu 1991, áöur en hann hvarf frá störfum, þannig að þar
bíður nú tveggja ára útgáfa.
Allmikið skrifaði ég af öðrum greinum, sem birst hafa í blöðum og
tímaritum. Á ráðunautafundi var ég með allmikið af erindum, þar sem
meira var þar fjallað um búfjárrækt en verið hefur um langt árabil.
Hér að framan er getið um marga fundi hjá nautgriparæktarfélögum á
Suðurlandi á árinu 1991. Ég sótti aðalfundi allra búnaðarsambanda á
Vesturlandi á árinu, sem m.a. tengdist starfslokum mínum hjá þeim
samtökum. Aðalfund Landssambands kúabænda, sem að þessu sinni var
haldinn í Þelamerkurskóla dagana 26.-27. ágúst, sat ég. Þá mætti ég á
aðalfundi Stéttarsambands bænda á Hvanneyri. Ég mætti einnig á árlegum
fundi fjárræktarfélaganna á Suðurlandi, sem haldinn var 20. nóvember í
Njálsbúð.
Ekki er ástæða til að geta óteljandi fundarhalda í tengslum við starfið hér
á höfuðborgarsvæðinu.
Nefndarstörf. Af nefndarstörfum skal þessara getið: Vann í nefnd með
Ólafi R. Dýrmundssyni og Sigurgeiri Þorgeirssyni skipaðri af stjórn félags-
ins til að semja reglugerð við ný búfjárræktarlög. Efnið kom til umsagnar
Búnaðarþings. í framhaldi þess lukum við starfinu, skiluðum tillögum til
stjórnar, og Iandbúnaðarráðuneytið staðfesti reglugerð síðar á árinu.
Ég starfaði á árinu í nefnd um málefni einangrunarstöðvarinnar í Hrísey.
Formaður nefndarinnar var Sveinbjörn Eyjólfsson, þar til hann hvarf frá
störfum í ráðuneytinu, og hefur Brynjólfur Sandholt veitt nefndinni
forstöðu síðan. Ólafur E. Stefánsson mun í starfsskýrslu sinni fjalla um þau
mál, sem tengjast þessu starfi.
Var í stjórnskipaðri nefnd til að fjalla um atriði, sem tengjast mati á
dilkakjöti. Jóhann Guðmundsson veitti nefndinni forystu, og skilaði hún
tillögum sínum til ráðherra í ágúst.
Ég var skipaður formaður stjórnar Rannsóknarstofnunar landbúnaðar-
ins í ársbyrjun.
Kynnisferð. í janúar var farin kynnisferð ráðunauta og bænda til Danmerk-
ur. Frumkvæði að þessari ferð hafði L.K. Ég hafði nokkuð unnið að
skipulagningu hennar í samvinnu við Stefán Tryggvason og naut þar
frábærrar fyrirgreiðslu starfsfélaga minna í Danmörku. Ferðin stóð 21 .-27.
janúar, og var gerð nokkur grein fyrir henni í Nautgriparœktinni. Ég tel
óhætt að fullyrða, að þessi ferð hafi verið mjög vel heppnuð og veitt
mörgum tímabæra innsýn í öflugt, faglegt starf á þessu sviði í Danmörku.
Þróunarsjóður nautgriparæktarinnar greiddi hluta ferðakostnaðar.
62