Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 71
félagsins skipa þau Hilmar Sigurðsson, Langárfossi, Álftaneshreppi, Mýr.
(formaður), Sigurveig Buch, Einarsstöðum, Reykjahverfi, S.-Þing. (gjald-
keri) og Stefanía Sigurðardóttir, Vorsabæ II, Skeiðum, Árn. (ritari). Á
liðnu sumri gerði Hilmar á Langárfossi tilraun til að mjólka geitur með
mjaltavélum, sem fyrir nokkrum árum voru notaðar fyrir ær. Þetta gafst vel,
og var mjólkin flutt til Mjólkursamlagsins í Búðardal, sem framleiddi tvær
gerðir osta með góðum árangri. Áhugavert verður að fylgjast með þessari
nýbreytni.
Landsmarkaskrá. Haustið 1991 var tekin saman viðauki við Lands-
markaskrá 1989 ogeintök send öllurn markavörðum í landinu. Lögbirtinga-
blaðið sendir mér öll búfjármörk til yfirferðar, áður en þau eru auglýst, og
eftir að mörkin hafa verið birt eru þau tölvuskráð hjá Búnaðarfélagi
íslands. Sem fyrr hafði ég umsjón með því verki. Þar með er unnt að tryggja
sem best rétta skráningu marka í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar.
Samstarf við markaverði og starfsfólk Lögbirtingablaðsins er eins og best
verður á kosið.
Forðagœsla. Um sumarmál varmérfalin untsjón meðforðagæslunni, sem
Pétur Þór Jónasson hafði með höndum um árabil. Treglega gekk að ná inn
sumum skýrslnanna, einkum úr þéttbýli, en í lok maí voru þær allar
komnar. Helstu niðurstöður, sundurliðaðar eftir sýslum og sveitarfélögum,
birtust í aprílhefti Hagtíðinda og í 22. tbl. Freys 1991. Töluvert var um
bréfaskriftir, einkum varðandi skýrsluskil og beiðnir unt upplýsingar úr
niðurstöðum skýrslnanna, t.d. vegna Bjargráðasjóðs og skipulagsmála.
Eyðublöð og önnur gögn fyrir haustið 1991 voru send sveitarstjórnum um
miðjan október, og við það verk nutum við dyggilegrar aðstoðar Péturs
Þórs. Fyrstu skýrslurnar fóru að berast í lok nóvember. Mikið var komið inn
um áramót og vinna við yfirferð og tölvuskráningu komin vel af stað (sjá
starfsskýrslu Jóns Baldurs Lorange).
Önnur störf. Aðstoð við erlenda gesti var með svipuðunt hætti og áður. í
júlí kom Tom Eggertsson, fjárbóndi frá Alberta í Kanada, í heimsókn, en
hann er af ísienskum ættum. Við áttum gagnlegar viðræður um sauðfjárrækt
og fleira, og ég útvegaði honum ýmsar upplýsingar. Hann hefur m.a. áhuga
á útflutningi íslensks sauðfjár og sauðfjárafurða. Að venju sinnti ég
bréfaskriftum vegna samskipta félagsins við Búfjárræktarsamband Evrópu
(EAAP). Þar á meðal voru svör við tveim könnunum. Sú fyrri var unt
búfjárfræðimenntun á háskólastigi og sú síðari um viðhorf almennings til
búfjárframleiðslu. Síðari skýrsluna vann ég með Sigurði Sigurðarsyni,
dýralækni hjá Sauðfjárveikivörnum. Öðru hverju þýddi ég bréf á ensku,
aðallega fyrir búnaðarmálastjóra og hrossaræktina. Námsfólki og kennur-
um á framhalds- og háskólastigi veitti ég upplýsingar og fyrirgreiðslu af
ýmsu tagi, aðallega um búfjárhald og landnýtingu. Þá var ég í hópi þeirra
ráðunauta, sem aðstoðuðu Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins öðru
69