Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 77
Útvarp Bylgjcm. Ég kom þar í einn viðtalsþátt (2/7) og aftur 3/9 að ræða
Heimsleikana, sem ég að vísu ekki sá, en heyrði af, og ýmis fleiri atriði
varðandi kynbótastöðu hér á landi og í útlöndum, tamningar, sérútbúnað
keppnishrossa o.fl. Auk mín voru þátttakendur Kári Arnórsson, formaður
L.H., og Trausti Þór Guðmundsson, formaður F.T.
Á Rás 1 í þættinum „Ég berst á fáki fráum“ (3/9) ræddi stjórnandinn
Stefán Sturla við okkur Jónas Jónsson um lágmarksverð útflutningshrossa,
Stofnverndarsjóð, uppbyggingu á Stóðhestastöð o.fl.
Tamningastöðvar. Það er oft best að sjá og heyra tóninn í ræktunarstarf-
inu með því að heimsækja tamningastöðvarnar. Hef ég reynt að rækja það
eins vel og tækifærin bjóða upp á. Heimsótti ég um 30 stöðvar sl. vetur og
sumar oftar en einu sinni.
Stóðhestaútflutningur. Útflutt hross voru alls 1834 þar af 975 geldingar,
812 hryssur og 47 stóðhestar.
Hrossaræktarnefnd. Kristinn Hugason er ritari nefndarinnar og skýrir
málin í sinni starfsskýrslu eins og margt fleira í starfi okkar beggja, sem hann
mun taka ítarlega fyrir. Eins og kom fram í fyrra, var nefndin algjörlega
óstarfhæf. Síðan hafa nefndarstörfin gengið betur. Varð fyrri fundur
nefndarinnar á árinu strax í rétta átt, þótt aðrir fulltrúar en ráðunautar í
nefndinni stæðu saman gegn okkar sjónarmiðum. Varð því afl atkvæða að
ráða í flestum málum. Seinni fundur í desember var aftur eins og maður
hefur átt að venjast, málin rædd af alúð og skilningi, hávaði eða hótanir
fyrirfundust ekki.
Rannsóknardvöl átti ég í Svíþjóð í tvo mánuði í haust hjá dr. Þorvaldi
Árnasyni. Gekk það verk eftir áætlun, nema ekki vannst tími til að ljúka
ritgerð 1, en væntanlega verður hún tilbúin seinna í vetur. Þakka ég stjórn
Búnaðarfélagsins kærlega fyrir veittan stuðning með fullum starfslaunum,
ferðakostnaði og fjárframlagi.
Að lokum þakka ég þeim, er ég hef unnið með að mörgum góöum málum
á liðnu ári. Ég minnist góðrar samstöðu félaga Kristins, í miklum átökum,
sl. tvö ár. Þakka búnaðarmálastjóra, stjórn og samstarfsfólki í Búnaðarfé-
laginu fyrir samstarfið.
Ritskrá:
Hrossaræktin, starfsskýrsla, Búnaðarrit 104, (63-67).
Ymsar skýrslur og greinar. Hrossarœktin 6. 1990.
Stóðhestar hrossaræktarsambanda og einstaklinga. Handbók bœnda 1991 41, (271-279).
Skrokkmál á unghrossum í vcxti. Fjölrit í des. 1991, 3 síður (með Þorvaldi Árnasyni). Er til
birtingar í Hestinum okkar.
75