Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 78
Hrossarækt
Kristinn Hugason
Á árinu 1991 var starfi mínu hjá Búnaðarfé-
lagi íslands háttað með líku sniði og árið
1990, sem var fyrsta heila starfsár mitt hjá
félaginu. Hér í upphafi starfsskýrslunnar ætla
ég að að gefa stutt yfirlit yfir starfið í heild
sinni, en gera svo nánari grein fyrir hverjum
þætti þess þar á eftir.
Á fyrstu mánuðum ársins var miklum hluta
starfstímans varið í undirbúning erindaflutn-
ings á fundum, fundarsetur og ýmis nefndar-
störf. Jafnframt vann ég að uppbyggingu
skýrsluhalds í hrossarækt, frágangi dóms-
gagna sumarsins í tölvu, yfirferð eldri gagna í tölvubanka um dómseinkunn-
ir, útreikningi kynbótamats (BLUP), útsendingu dómsseðla og samantekt
Hrossarœktarinnar 1990. Töluverð ferðalög voru í sambandi við fundahöld
og hrossaskoðun þessa mánuðina.
Þriðjudaginn 30. apríl hófst vinna við dómstörf kynbótahrossa með
stuttum hléum fyrst í stað, en nær þindarlaust frá um 20. maí og út
júnímánuð. Dómstörfum lauk svo að sinni með Fjórðungsmóti á Suður-
landi, sem haldið var á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 26. til 30. júní.
Frá 4. júlí til 1. ágúst var ég í sumarleyfi, en að því loknu tóku við
síðsumarsýningar og framhald vinnu að útgáfu Hrossaræktarinnar 1990. í
haust hefur megin viðfangsefnið verið tengt uppbyggingu skýrsluhalds í
hrossarækt, auk setu á ýmsum fundum, ritstörf o.s.frv. Á öllum tímum árs
fer auk þess mikill tími í úrlausn ýmissa erinda á skrifstofu, t.d. að svara
fyrirspurnum fólks um hin fjölbreytilegustu mál, og fleiri atriða væri hægt
að geta, sem heyra til slíkum daglegum viðfangsefnum.
Dómstörf og sýningar, stigunarkvarði og niðurstöður. Dómstörf eru
einhver viðamestu og mikilvægustu störf hrossaræktarráðunautar fyrir
margra hluta sakir. Á árinu voru skráðir til uppgjörs rúmlega 1400
kynbótadómar, en dæmd hross voru nokkru færri, því að sum hrossin eru
dæmd oftar en einu sinni, t.d. í forskoðun fyrir Fjórðungsmótið á Gadd-
76