Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 82
„Þegar greinargerð sú sem liggur til grundvallar beiðni Búnaðarfélags
íslands er skoðuð og borin saman við það gagnasafn sem Þorvaldur
Árnason sendir máli sínu til stuðnings má eftir á að hyggja, með gildum
rökum staðhæfa að úttekt nefndarinnar hafi verið óþörf.“
Þó að álit þeirra þriggja sérfræðinga, sem unnu nefnda úttekt, hafi allt
verið BLUP-aðferðinni í hag, komu fram í áliti þeirra margar þarfar
ábendingar, sem tiilit verður tekið til við þróun þessa starfs í heild.
Þorvaldur Árnason er nú að nýju kominn til samstarfs við Búnaðarfélag
íslands, og hafin er samning nýrra forrita til útreikninganna. Nýju forritin
munu verða fljótvirkari og ráða við stærra gagnasafn en gömlu forritin, auk
þess sem niðurstöður verða fullkomnari.
Aftur á móti átti séra Halidór Gunnarsson, varaformaður Félags hrossa-
bænda m.m., og sá aðili, sem óskaði eftir umræddri úttekt ásamt með
Búnaðarfélaginu, ákaflega erfitt með að sætta sig við niðurstöðu sérfræð-
inganefndarinnar. Kom það fram ásamt með fleiru í viðtölum í a.m.k. einu
dagblaði og í útvarpsþætti á Bylgjunni. í framhaldinu urðu svo blaðaskrif
um málið. Þorvaldur birti grein í Morgunblaðinu og Eiðfaxa. Þeirri grein
svöruðu Halldór Gunnarsson og Gunnar Bjarnason í sömu blöðum. Síðan
það átti sér stað, hafa dr. Stefán Aðalsteinsson og undirritaður birt greinar í
Morgunblaðinu, þar sem við höfum reynt að varpa ljósi á ýmsar hliðar þessa
máls.
Á árinu samþykkti Hrossaræktarnefnd breytingar á reglum um verð-
launastig stóðhesta með afkvæmum, en verðlaunin eru ákvörðuð út frá
kynbótamati og fjölda dæmdra afkvæma. Þetta eru þær reglur, sem
upphaflega voru samþykktar af Sýningarnefnd BÍ og LH haustið 1989 og
settar voru í samræmi við niðurstöður rannsóknar á kynbótaskipulagi fyrir
íslenska hrossarækt. Reglur þær, sem giltu um verðlaun stóðhesta með
afkvæmum á árinu 1990, virkuðu aftur á móti þannig, að of mikilli athygli
ræktenda var beint að fullorðnu stóðhestunum á kostnað þeirra ungu og
efnilegu. Á þann hátt hefði verið hægt á kynbótaframförinni.
Útreikningur kynbótamats fyrir árið 1991 var undirbúinn eins vel og tök
voru á með yfirferð dómgagna frá árinu 1990 og viðaukum við gagnabank-
ann með eldri upplýsingar, sem vantaði. Kynbótamatið var þess vegna m.a.
ekki fullbúið fyrr en upp úr miðjum apríl. Dómsvottorð hrossa fyrir
sýningarárið 1990 voru útbúin þegar að afloknum útreikningunum og send
út 22. apríl. Niðurstöður útreikninganna voru sendar búnaðarsamböndun-
um á disklingum, kynntar á fundi Hrossaræktarnefndar 29. apríl, og helstu
niðurstöður voru birtar í Hrossarœktinni 1990, auk þess sem töluvert er um,
að fyrirspurnum um þessi mál sé svarað símleiðis eða bréflega.
Kynbótamat, sem notað var við verðlaunaveitingu stóðhesta með af-
kvæmum á Fjórðungsmótinu á Gaddstaðaflötum, var reiknað út strax að
aflokinni forskoðun fyrir mótið og var fullbúið um miðjan júní. Halldór
80