Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 83
Árnason, tölvuráðunautur, sá um útreikning kynbótamatsins eins og
undanfarin ár.
Fundir og nefndarstörf önnur en Hrossarœktarnefnd. Ráðunautafundur
BÍ og RALA var haldinn í Bændahöllinni vikuna 4. til 8. febrúar. Ég var í
undirbúningsnefnd fundarins og hafði mest með að gera undirbúning
fundar um búfjárkynbætur. Við þann afmarkaða þátt undirbúningsins átti
ég samstarf við nokkra aðila, mest Jón Viðar Jónmundsson, búfjárræktar-
ráðunaut, og Emmu Eyþórsdóttur, sérfræðing á RALA.
Ég sit í stjórn Hrossaræktarbúsins að Hólum í Hjaltadal, skipaður af
stjórn Búnaðarfélags íslands. Stjórn búsins hélt tvo fundi á árinu, hinn 25.
maí, sama dag og Stóðhestasýning Norðurlands fór þar fram, og 18.
október, í tengslum við árlega mælingu Hólahrossa. Einnig er ég ráðgjafi
samstarfsnefndar hrossaræktarsambandanna á Norðurlandi og Bændaskól-
ans á Hólum um rekstur tamningastöðvar fyrir stóðhesta á Hólastað. Ég sat
fundi þeirrar nefndar 2. apríl og 25. maí.
1 marsmánuði lauk störfum nefndar á vegum Landssambands hesta-
mannafélaga, sem ætlað var að yfirfara Landsmót 1990. Ég átti sæti í
nefndinni, og í síðustu ársskýrslu minni má lesa sér nánar til um starfssvið
hennar.
Hinn 11. febrúar kom framkvæmdanefnd Fjórðungsmótsins á Gadd-
staðaflötum á fund okkar Þorkels hér í Bændahöllinni. Þar voru ýmis mál
rædd, er vörðuðu þátt kynbótahrossa á mótinu.
Hinn 26. mars sat ég fund nefndar, sem hafði með höndum undirbúning
þátttöku íslendinga í Heimsleikum á íslenskum hestum, sem fram fóru í
Svíþjóð í ágústmánuði. Á nefndarfundinum gerði ég grein fyrir því, hvernig
fyrirhugað væri, að þátttöku íslenskra kynbótahrossa yrði háttað. Eining
var um málið.
Á þingtíma Búnaðarþings fylgdist ég með umræðum þar eftir föngum og
mætti á nokkrum nefndarfundum þess, mest hjá búfjárræktarnefnd og þá
helst vegna yfirferðar nefndarinnar á drögum að reglugerð við búfjárrækt-
arlögin.
Hinn 20. mars sat ég fyrir hönd Búnaðarfélagsins fund í landbúnaðar-
ráðuneytinu, þar sem fjallað var um blóðflokkun íslenskra hrossa. Ég hef
átt eina tvo fundi með Brynjólfi Sandholt, yfirdýralækni, nú á haustmánuð-
um um þau mál. Full ástæða er til, að íslendingar marki einarða stefnu um
framkvæmdir á þessu sviði. Ég tel þó næsta víst, að í flestum tilfellum séu
hross hér á landi rétt ættfærð, villur eru í það minnsta það fátíðar, að
kynbótastarfið býður ekki hnekki af. Aftur á móti hvetja markaðssjónar-
mið til aðgerða.
Á árinu sat ég tvo fundi stjórnar Stóðhestastöðvar ríkisins í Gunnarsholti.
Ásamt Ólafi R. Dýrmundssyni, landnýtingarráðunaut, og Ólafi Guð-
mundssyni, deildarstjóra á RALA, starfa ég dð undirbúningi alþjóðlegrar
6
81