Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 85
Á fyrri fundinum var fjallað um reglugerð við búfjárræktarlögin. Reglur
um dóma og sýningar fyrir árið 1991 voru samþykktar. Kynbótamat fyrir
árið 1991 var kynnt, framgangur vinnu við nýja skýrsluhaldið sömuleiðis og
upphæð sýningargjalda rædd auk umræðna undir liðnum önnur mál. Hinn
30. apríl voru nefndarmenn síðan við störf á Stóðhestastöðinni í Gunnars-
holti, fylgdust með dómum á eldri hestunum og tóku þátt í skoðun á þeim
yngri, og tekin var ákvörðun um framtíð hvers og eins hests á stöðinni.
Á síðari fundinum var gengið frá vali nýrra fola á Stóðhestastöð. Ný
reglugerð við búfjárræktarlögin var kynnt (reglugerð nr. 418 frá 26. ágúst
1991). Málefni Stofnverndarsjóðs voru til umræðu, bæði hvað varðar stöðu
og framtíðarhlutverk sjóðsins, auk þess sem úthlutun úr honum fyrir árið
1991 var ákveðin, hvað það varðar, sjá skýrslu Þorkels Bjarnasonar.
Niðurstaða áðurnefndrar sérfræðinganefndar um kynbótamat var kynnt.
Grein var gerð fyrir opinberum framlögum til hrossaræktar árið 1991. Starf
við skýrsluhald og útgáfumál í hrossarækt var kynnt og búfjárræktarsam-
þykkt Félags hrossabænda var lögð fram í nefndinni, en ekki afgreidd.
Reglur um kynbótadóma og sýningar voru ræddar lítillega vegna væntan-
legrar lokaafgreiðslu málsins, og fyrirhugaðar ráðstefnur og fundir um
hrossarækt voru kynntir. Að lokum greindi Þorkell Bjarnason frá rann-
sóknardvöl sinni í Svíþjóð haustið 1991, og ýmis mál voru rædd undir
liðnum önnur mál.
Svo sem fram kom í skýrslum hrossaræktarráðunauta til síðasta Búnaðar-
þings, gekk starf í Hrossaræktarnefnd svo illa á árinu 1990, að nefndin var í
raun óstarfhæf. Slíkt gengur ekki í ljósi þess mikla hlutverks til stefnumót-
unar í starfinu, sem Hrossaræktarnefnd hefur lögum samkvæmt. Aðalá-
stæður þessa voru tvær: f fyrsta lagi var gengið á svig við búfjárræktarlög við
skipun nefndarinnar, þannig að þess var ekki gætt, að fulltrúar starfandi
ráðunauta væru í meirihluta í nefndinni. Nefndin var fjölmenn, sjö fulltrú-
ar, sem stenst lög, en þau gera hins vegar ráð fyrir meirihluta starfandi
ráðunauta til að styrkja hlut faglegra sjónarmiða í afgreiðslu mála. í öðru
lagi hafði hluti nefndarmanna ekki vilja og e.t.v. ekki getu til að taka
málefnalega þátt í rökræðum. Fyrir fyrri fund nefndarinnar á þessu ári urðu
veruleg mannaskipti í nefndinni. Jón Finnur Hansson og Guðmundur
Sigurðsson, héraðsráðunautar, tóku sæti Guðmundar Jónssonar og Helga
Eggertssonar, sem ekki uppfylltu skilyrði búfjárræktarlaga um kjörgengi.
Auk þess sagði Halldór Gunnarsson frá Félagi hrossabænda af sér, en í hans
stað tók Þórir ísólfsson sæti í nefndinni. Á fyrri fundi nefndarinnar þokaðist
þetta allt í rétta átt, svo að hægt var að afgreiða þau mál, sem fyrir vorfundi
lágu. Sá fundur var hins vegar ákaflega erfiður. Á síðari fund nefndarinnar
árið 1991 mætti svo Kjartan Georgsson í stað Einars E. Gíslasonar frá
Félagi hrossabænda. Síðari fundurinn gekk vel, og er það fyrsti fundur
þessarar nefndar, sem hægt er að segja það um. Skoðanir voru skiptar um
83