Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 92
afkvæmarannsóknum, bættu skýrsluhaldi og innflutningi kynbótadýra er
því líklegt, að íslenskir svínabændur geti notfært sér bráðlega þessa aðferð
til að lækka framleiðslukostnað á svínakjöti.
Sem dæmi um lækkun á framleiðslukostnaði má benda á, að í Danmörku
var slátrað á árinu 1982 um 6 milljónum geltra grísa. Danskir bændur hefðu
fengið um 10 þúsund tonnum meira af kjöti áári án nokkurs aukakostnaðar,
ef þessir grísir hefðu verði ógeltir. Til samanburðar má geta þess, að
heildarframieiðsla á dilkakjöti var hér á landi árið 1982 rúmlega 13 þúsund
tonn. („Framleiðsla á kjöti af ógeltum galtargrísum". Handbók bænda
36:338-340).
Erfðaeiginleikar og sjúkdómar. Varðandi erfðaeiginleika íslenska svína-
stofnsins skal tekið fram, að erfitt getur verið að draga ályktanir af þeim
gögnum, sem fyrir liggja. Ástæðan er, að komið hefur í ljós, að í flestum
tilfellum, þar sem mælingar hafa verið gerðar, hafa verið ýmis vandkvæði
svo sem snúðtrýni, blóðskita, og öndunarsjúkdómar hjá unggrísum komið í
veg fyrir, að skepnurnar sýni, yfir hvaða erfðaeiginleikum þær búa.
Samkvæmt erlendum rannsóknum geta ýmsir öndunarsjúkdómar og blóð-
skita (dysenteri) minnkað vaxtarhraðann um allt að 20%. Nú nýverið hafa
dýralæknar og svínabæ.ndur gert sér grein fyrir, hve algengir áðurnefndir
sjúkdómar hafa verið hjá smágrísum hér á landi. Þeir svínabændur, sem
notað hafa lyf gegn þessum sjúkdómum hjá smágrísum, fullyrða, að þrif og
þar með vaxtarhraði smágrísa hafi aukist mjög mikið. Þegar búið er aö ráða
bót á þessum vandkvæðum, eiga afkvæmarannsóknir að sýna meiri mun á
afkvæmahópum en verið hefur fram að þessu. Með öðrum orðum: af-
kvæmarannsóknirnar koma að enn meira gagni en áður. Þessu til staðfest-
ingar skal tekið fram, að á svínabúum, þar sem lítið hefur verið um
sjúkdóma hjá smágrísum, hafa niðurstöður afkvæmarannsókna sýnt mun
meiri mun á afkvæmahópum en á þeiin svínabúum, þar sem sjúkdómar hjá
smágrísum hafa verið vandamál.
Eftirfarandi tafla sýnir arfgengi ýmissa eiginleika svína.
Arfgengi ýmissa eiginleika svína:
1. Fjöldi grísa í goti viðfæðingu ............................................ 0,10
2. Fjöldigrísaúrgotiviðfráfærur............................................... 0,10
3. Fæðingarþungi grísa........................................................ 0,10
4. Þyngdgrísaviðfráfærur ..................................................... 0,15
5. Snúðtrýni ................................................................. 0,20
6. Vaxtarhraði................................................................ 0,35
7. Fituþykkt á hrygg ......................................... yfir 0,50
8. Fituþykktásíðu ............................................................ 0,60
9. Skrokklengd ............................................................... 0,50
10. Stærð hryggvöðvans........................................................ 0,60
11. Fóðurnýting............................................................... 0,35
90
j