Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 95
í byrjun árs tók ég þátt í stofnun Fagráös bleikjuframleiðenda. Stofnaðil-
ar að Fagráðinu voru fyrir utan Búnaðarfélag íslands ailir bleikjuframleið-
endur og Útflutningsráð íslands. Sit ég í stjórn Fagráðsins fyrir hönd
Búnaðarfélagsins. Stofnun Fagráðsins er beint framhald af þeirri vinnu,
sem undanfarin ár hefur verið unnin að rannsóknum, þróun og markaðsat-
hugunum fyrir bleikjueldi. Stofnun Fagráðsins markar tímamót í uppbygg-
ingu bleikjueldis hér á landi. Stór hluti af tíma mínum síðast liðið ár hefur
farið í vinnu fyrir og með Fagráðinu. Unnin var ýtarleg markaðs- og
aðgerðaráætlun fyrir Fagráðið, sem lögð var til grundvallar styrkumsóknar
til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Stjórn sjóðsins styrkti Fagráðið, og vil
ég hér með nota tækifærið og þakka stjórn sjóðsins fyrir framlag hans og
skilning á mikilvægi starfsemi Fagráðsins. Auk þess að sitja í stjórn
Fagráðsins hefur stjórn þess falið mér sérstaklega að sjá um gæðamál þess.
A árinu var farin ferð um landið með starfsmanni þess og langflestir
bleikjuframleiðendur heimsóttir. I sömu ferð var gerð úttekt á eldismögu-
leikunt á nokkrum stöðum.
Fyrir Framleiðnisjóð landbúnaðarins vann ég nokkrar umsagnir á árinu
um styrki til búháttabreytinga. Einnig voru gerðar nokkrar greiðsluáætlanir
fyrir fiskeldisstöðvar.
I byrjun árs fór ég með ómsjá Búnaðarfélagsins og RALA norður til
Hjalteyrar, og kyngreindum við þar hlýra, þorsk og lúðu. Síðar árinu var
svo ómsjáin notuð við kyngreiningu á laxi og bleikju. Þá sá ég um kaup á
ómsjá fyrir Búnaðarsamband Skagfirðinga og Bændaskólann á Hólum.
Eins og á síðasta ári tók ég þátt í ýmsum fundum og ráðstefnum á árinu.
Af því helsta má nefna: námskeið um bleikjueldi við Hólaskóla, sem
Búnaðarfélagið var aðiii að, og hélt ég þar nokkur erindi. Einnig var haldið
námskeið um bleikjueldi við Bændaskólann á Hvanneyri, sem ég hafði
umsjón með í samvinnu við Jón Örn Pálsson, starfsmann Veiðimálastofn-
unar á Vesturlandi og ráðunaut. Hélt ég þar nokkur erindi. í maí hélt ég
erindi á námskeiði á Vopnafirði, sem Arnaldur Bjarnason, atvinnumála-
fulltrúi, gekkst fyrir, og í ágúst fór ég á ráðstefnu um eldi á bleikju og urriða
á Flúðum. Ég var gestur á aðalfundi Landssambands fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva og fór á framhaldsfund í rannsóknarverkefninu Hagkvœmni strand-
eldis. Einnig sat ég ráðunautafund og fylgdist með Búnaðarþingi eins og
kostur var.
Ég var fulltrúi Búnaðarfélags íslands í eftirtöldum nefndum: Ráðgjafa-
nefnd landbúnaðarráðherra um málefni fiskeldis, Bleikjunefnd Rann-
sóknaráðs ríkisins, Faghóp um nýtingu tilraunaaðstöðu fyrir fiskeldi í
Straumfræðihúsi á Keldnaholti, nefnd á vegum heilbrigðisráðuneytisins,
sem ætlað er að gera tillögur varðandi starfsemi fiskeldisstöðva inn til
landsins. A árinu var ég svo skipaður aðalmaður í Markaðsnefnd landbún-
aðarins og í Fóðurnefnd.
93