Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 103
Leiðbeiningar og ritstörf. Við leiðbeiningar í loðdýraræktinni er ég í 10%
starfi á móti Arvid Kro, sem er í 40% vinnu. Skiptum við leiðbeiningum
með okkur þannig, að ég sé um fóðurleiðbeiningar, en Arvid um þær
almennu. Pá hef ég tekið að mér viss sérverkefni fyrir B.Í., er upp koma í
faginu. Til viðbótar okkar leiðbeiningum fékk Búnaðarfélagið danskan
loðdýrabónda, Erik Jensen, til að koma hingað í júlí og heimsækja
loðdýrabændur. Erik kom til landsins 5. júlí ásamt konu sinni Ernu.
Ferðuðust þau um landið með Arvid og Ævari Hjartarsyni, sem skipulögðu
„búsdag" í hverju loðdýrahéraði. Á þessa búsdaga komu um 70% bænda,
sem fræddust af Erik um hirðingu nrinka og fyrirkomulag á loðdýrabúum.
Hjónin héldu heim þann 12. júlí.
Hjá mér fór mestur tími í það að svara munnlegunr fyrirspurnum um
fóðrun og hirðingu dýranna auk minni háttar leiðbeininga um aðrar hliðar
ræktunarinnar. Þá fór þónokkur tími í það að reikna út og senda fóðurlista
til fóðurstöðvanna og leiðrétta þá, þegar hráefni breytist. Á sama hátt koma
alltaf til mín verkefni um samanburð á hráefnum og verðsamanburð þeim
tengdum. Eru það bæði einstaklingar, fóðurstöðvar og fyrirtæki.
Eins og undanfarin haust hef ég aðstoðað bændur við val á lífdýrum. Þessi
aðstoð er nú orðin minni en áður var. Bændur eru sjálfir farnir að flokka dýr
sín að miklu leyti, en fá samt aðstoð við að yfirfara dómana á högnunum.
Lítið hef ég skrifað, er við kemur loðdýraræktinni á þessu ári, annað en
að meta tjón af völdum flugvéla hjá þremur bændunr og nokkrar leiðbe-
iningar til einstaklinga.
Fundir og ferðalög. Nokkra fundi sat ég með loðdýrabændum á Suð-
urlandi, Reykjanesi og Borgarfirði. Pá átti ég fundi með stjórn Hagfeldar
hf., Félagi fóðurstöðva og hjá innflutningsfyrirtækjum.
Utanlandsferð. Eina utanlandsferð fór ég til Danmerkur 2.-7. nóvember.
Fór ég ásamt 7 ráðunautum og 3 bændum á námskeið í Holstenbro til að
kynna okkur nýja flokkun á minkurn. Eftir námskeiðið, sem stóð í 2 daga,
var okkur boðið í uppboðshúsið í Glostrup, þar sem við fengum 8 klst.
fræðslu um markaðsmál og flokkun skinna.
Önnur störf. í september sótti ég námskeið, sem haldið var á Hesti í
Borgarfirði og sláturhúsinu í Borgarnesi í meðferð sónartækis við mat á fitu
og vöðvalagi sauðfjár. Námskeiðið stóð í tvo daga, og var vel sótt. Pá var ég
dómari á hreppa- og héraðssýningum í sauðfjárrækt í 11 daga í september-
og októbermánuði. Ennfremur hef ég verið að skrifa um hrúta- og
afkvæmasýningar í Skagafirði og Borgarfirði nú upp á síðkastið. í stjórn
fagráðs í loðdýrarækt sat ég út árið og vann að nokkrum málum fyrir það.
Samstarfsfólki mínu, stjórn Búnaðarfélags íslands og búnaðarnrála-
stjóra, þakka ég ánægjulegt samstarf á árinu.
101