Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 120
Holm, til Íslandsíboði Búnaðarfélagsíslandsíjúnítil að ræða um samskipti
NLH við ísland.
Kjell Holm fór ásamt fulltrúum Búnaðarfélags Islands á fund Raunvís-
indadeildar Háskóla íslands, en deildarstjóri hennar var þá Unnsteinn
Stefánsson, og Búvísindadeildar Bændaskólans á Hvanneyri, en dcildar-
stjóri, Bjarni Guðmundsson, Sveinn Hallgrímsson, skólastjóri, o.fl. starfs-
menn skólans tóku þátt í þeim viðræðum.
Niðurstaða fundarins var, að munnlegt samkomulag er um það, að
íslenskum námsmönnum, sem teknir verða í nám við NLH, stendur til boða
að stunda fyrsta námsárið hér á landi, væntanlega undir eftirliti og á ábyrgð
Raunvísindadeildar HÍ, en námið sjálft getur farið fram við deildina og
víðar.
Jafnframt var rætt um að vinna við aðalverkefni íslenskra námsmanna við
NLH geti farið fram á fslandi, og lýst var góðum vilja NLH á að taka við
búfræðikandidötum frá Hvanneyri til framhaldsnáms við NLH, ef eftir því
yrði óskað.
Af hálfu NLH var lögð áhersla á, að samstarf við Búnaðarfélag Islands
yrði með óbreyttum hætti, þannig að á einum stað hér á landi, hjá BÍ, liggi
fyrir upplýsingar um öll samskiptamál skólans og íslendinga, á sama hátt og
þau liggja fyrir á einum stað hjá skólanum.
Unnið er að því að ganga skriflega frá nýju fyrirkomulagi samskipta
íslands og NLH.
Fullyrða má, að það samstarf, sem í gangi er milli íslands og Noregs
Landbrukshögskole er okkur mikils virði.
Önnur störf. Ég annaðist, ásamt Óttari Geirssyni, ritstjórn Handbókar
bænda. Við útsendingu Handbókar bænda 1991 var dreift með bókinni
spurningablaði til lesenda um það í hvaða mæli þeir nýttu sér einstaka
efnisþætti bókarinnar, hvaða efnis þeir söknuðu í ritinu o.fl. Við ritstýringu
Handbókar fyrir árið 1992 var reynt að nýta niðurstöður þeirra könnunar
eftir því, sem tök voru á.
Ég vann á árinu að 2. útgáfu bókarinnar Áburöarfræði, sem við Magnús
Óskarsson, kennari á Hvanneyri, skrifuðum og Búnaðarfélag íslands gaf út
árið 1978. Meginstarf við endurskoðun á efni bókarinnar hafði Magnús
Óskarsson með höndum, en minn þáttur í verkinu var einkum að fylgja
verkinu eftir í prentvinnslu. Bókin kom út á árinu, og gaf Búnaðarfélag
íslands hana einnig út að þessu sinni.
Þá hafði ég umsjón með útgáfu Árbókar landbúnaðarins fyrir árið 1990
fyrir Framleiðsluráö landbúnaðarins.
Ferðir. Ég fór nokkrar ferðir á árinu í efnisöflun. Sumar þeirra fór ég með
og í boði Arnaldar M. Bjarnasonar, atvinnumálafulltrúa Stéttarsambands
bænda. Ég vil hér með þakka honum fyrir þessi boð og gagnlegar og
ánægjulegar ferðir í samfylgd hans.
118