Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 129
sett upp í byrjun ársins 1992. Hvað varðar tölvubúnaðinn að öðru leyti er
vísað í mynd af tölvukerfi BI.
Starfsmenn. Starfsmenn tölvudeildar, að mér undanskildum, voru í lok
ársins fjórir talsins með 3,5 ársverk. Tvö árin á undan voru ársverkin 4,3,
þannig að hér er um fækkun ársverka að ræða, sem skýrist af því, að Dagný
Þorfinnsdóttir, tölvuritari, fékk leyfi frá störfum í 10 mánuði í lok sumars.
Guðlaug Eyþórsdóttir, yfirtölvari, hefur séð um rekstur AS/400 tölvu
félagsins sem og unnið við forritun og viðhald á tölvukerfum á AS/400
tölvunni. Einnig sá hún alfarið um skýrsluhald loðdýraræktarinnar.
Guðlaug Hreinsdóttir, tölvari, vann við skráningu og vinnslu og hafði
sérstaklega í sínum verkahring hið nýja skýrsluhald í hrossarækt.
Jóhanna Lúðvíksdóttir, tölvuritari, vann við skráningu.
Unnur Melsted, tölvari, vann við skráningu og vinnslu og sinnti sérstak-
lega skjalavörslu.
I ljósi þess, að álitið var, að vinna við skýrsluhald myndi minnka, var
ákveðið að ráða ekki nýjan starfsmann. Hins vegar gekk sá samdráttur ekki
eftir, eins og fyrr var vikið að. Samt sem áður tókst að inna öll verk vel af
hendi í tíma. Slíkt hefði aðeins tekist með samviskusömu og hæfu starfs-
fólki, sem skilaði vandaðari vinnu.
Tölvukerfi B.í. í lok ársins.
Yfirlitsmynd yfir tölvukerfið. Tölvukerfi B.í. byggist upp á AS/400
fjölnotendatölvu annars vegar og netkerfi fyrir einkatölvur af gerðinni
Ethernet hins vegar, og tengjast þessi kerfi með Novell 5250 gátt. Myndin
sýnir uppbyggingu tölvukerfisins í lok desember 1991. AS/400 fjölnotenda-
tölvur B.I. og Framleiðsluráðs tengjast saman með V.35 línu í gegnum 0
mótald. Fyrir nettengdan notanda þýðir þetta m.a., að hann hefur aðgang
að hörðum diski netstjórnanda, bæði til að geyma sín eigin forrit og gögn
sem og að sækja sameiginleg gögn, hefur aðgang að netprenturum, er
tengdur póstkerfi B.í. og kemst í samband við báðar AS/400 tölvurnar.
Tölvuumhverfi. Tölvukerfi B.í. tryggir starfsmönnum aðgang að fjölnot-
enda- og einkatölvuumhverfi sbr. yfirlitsmynd af tölvukerfinu. Tölvunetið,
sem tengir saman allar einkatölvurnar, tengist AS/400 fjölnotendatölvum í
gegnum gátt, en með henni komast notendur netsins í beint samband við
AS/400 tölvurnar sambærilegt því, að þeir væru beintengdir sem útstöð.
Novell gáttin, sem gerir þetta mögulegt, var ný tækni hérlendis, þegar hún
var sett upp hjá B.Í., hefur virkað vel.
Tenging annarra við tölvunet B.í. Ég hafði frumkvæði að því, að B.í.
annars vegar og Framleiðsluráð landbúnaðarins hins vegar gerðu með sér
samning í lok ársins um, að þeir síðar nefndu tengdust tölvuneti B.í.
Samningurinn treystir enn samstarfið milli þessara stofnana í tölvumálum,
en það var með miklum ágætum á árinu, og tryggir jafnframt áframhaldandi
127