Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 147
Skipting á áburði og fræi:
Landgræðslugirðingar
Beitilönd
Afréttarlönd
1991
412,00 tonn
104,00 tonn
764,00 tonn
1990
368,00 tonn
76,00 tonn
608,00 tonn
Samtals 1280,00 tonn 1052,00 tonn
Alls var dreift úr flugvélum Landgræðslu ríkisins 1666,36 tonnum af
áburði og fræi 1991, en 1395,63 tonnum 1990, sem skiptist þannig:
Landgræðslugirðingar
Beitilönd
Afréttarlönd
Ræktuð lönd
Annað
1991
608.18 tonn 36,5%
271.18 tonn 16,3%
764,00 tonn 45,8%
23,00 tonn 1,4%
1990
518,77 tonn 37,2%
254,86 tonn 18,3%
608,00 tonn 43,5%
6,00 tonn 0,4%
8,00 tonn 0,6%
Samtals 1666,36 tonn 100% 1395,63 tonn 100%
Áburðar- og fræmagnið, sem dreift var 1991, er aðeins meira en 1990, en
um það bil 2/3 af aukningunni er aukning á því magni, er dreift var vegna
Blönduvirkjunar og kostað er af Landsvirkjun. Sé sá áburður, sem Lands-
virkjun greiðir vegna Blönduvirkjunar, dreginn frá, verður áburðarmagnið,
sem dreift er fyrir landgræðslufé, um 1134 tonn, en mest var dreift árið
1975, rúmlega 3100 tonnum.
Eins og fram kemur í töflu, er hlutdeild landgræðslugirðinga í áburðar-
dreifingu komin niður í 36,5%, sem stafar af því, að landgræðslufé verður
sífellt ódrýgra, en áburðardreifing á afrétti, beitilönd og ræktuð lönd er að
verulegum hluta kostuð af bændum og öðrum samstarfsaðilum.
Að venju var nokkuð um fundarhöld, en annars hef ég mest unnið við
skrifstofustörf yfir vetrartímann. Allnokkur tími fór í að sinna málum vegna
landbrots af völdum fallvatna, en yfirstjórn þeirra mála var flutt til
Landgræðslunnar með lagabreytingum 1979.
Ég starfaði í fagnefnd á vegum Átaks ílandgræðsluskógum. Einnig sat ég
fundi í stjórn Landgræðslusjóðs sem fulltrúi landgræðslustjóra.
Eins og áður hafði ég skrifstofuaðstöðu að Laugavegi 120 í Reykjavík, en
þar eru auk mín Andrés Arnalds og Hafdís Hauksdóttir.
10
145