Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 152
Frásetningu Búnaðarþings 1992. Forseliþingsins, Jón Helgason, íræðustól. Sitjandi við borðið
eru f.v.: Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, Ólafur E. Stefánsson, skrifstofustjóri þings-
ins, ogJúlíusJ. Daníelsson, ritarigjörðabókar. Nœstir eru þingfulltrúarnir ErlingurTeitssonog
Egill Bjarnason (t.v.) og Gunnar Sœmundsson og Páll Sigurjónsson (t.h.). - Ljósm.: J.J.D.,
Frey.
Brasilíu síðar á þessu ári. Töldu stjórnendur ráðstefnunnar, að góður
árangur hennar hefði að stórum hluta verið því að þakka, að hún var haldin
hérlendis, en ráðstefnan var haldin hér að frumkvæði íslenzku bændasam-
takanna. Sýnir það skilning þeirra á gildi alþjóðasamstarfs og jafnframt vilja
til að vera þar þátttakendur og hafa áhrif á þróun mála.
Síðast fyrir fáum vikum tóku íslenzku bændasamtökin þátt í ráðstefnu í
Finnlandi á vegum samtaka um fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum, þar sem
rætt var um samskipti við Evrópubandalagið í menningar- og efnahagsmál-
um og horfur á því sviði. Með slíku samstarfi hafa íslenzkir bændur kynnzt
því vel, hversu þjóðirnar verða í sívaxandi mæli háðar hver annarri og glíma
þar við sambærileg úrlausnarefni á mörgum sviðum, þó að ísland búi að
öðru leyti vegna legu sinnar á ýmsan hátt við sérstöðu, sem taka þarf tillit til.
Það er vegna þessarar reynslu, sem íslenzkir bændur leggja áherzlu á
þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, og sú þátttaka verði virk, svo að við getum
aflað skilnings á sérstöðu okkar og stuðnings annarra þjóða við að taka tillit
til hennar. En samstarf við aðrar þjóðir gefur einnig tækifæri til að láta þær
njóta okkar þekkingar. Boð Búnaðarfélags íslands um að taka á móti fimm
bændum frá Litháen til að kynna sér íslenzkan landbúnað með nokkurra
mánaða dvöl hér hefur verið þegið og getur vonandi orðið af því á næstunni.
Jafnframt eru í athugun frekari samskipti við Eystrasaltslöndin, sem gætu
orðið til ávinnings fyrir báða aðila í framtíðinni.
Stjórn Búnaðarfélags íslands hefur leitað eftir nánu samstarfi við Stéttar-
samband bænda um mörg mál, og hefur formaður Stéttarsambandsins mætt
150