Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 180
2. mgr. orðist svo: Við sársaukafullar aðgerðir skal ávallt nota deyfilyf
eða svæfingu.
í stað 3. og 4. málsgreinar í frumvarpinu komi málsgrein, er hljóði svo:
Umhverfisráðherra setur, í samráði við yfirdýralækni, reglugerð um
aðgerðir á dýrum, sem framkvæmdar eru án læknisfræðilegra ástæðna.
8. f 1. mgr. 15. gr. komi sjái í stað „verði þess vör“. Síðasta málsgreinin
orðist þannig: Umhverfisráðherra setur, í samráði við yfirdýralækni,
nánari fyrirmœli um, hvernig staðið skuli að aflífun dýra við slátrun.
9. 17. grein orðist svo: Óheimilt er án sérstaks leyfis að nota lifandi dýr við
kennslu, tilraunir, rannsóknir, framleiðslu og prófun efna eða lyfja og
við sjúkdómsgreiningu, ef slíkri notkun fylgir álag eða þjáningar fyrir
dýrið.
Umhverfisráðherra skipar nefndsérfróðra manna, semfer með tilrauna-
dýramál. Hana skipa: yfirdýralæknir, semskal vera formaður nefndar-
innar, forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskólans ogfulltrúi tilnefndur
af læknadeild Háskólans.
Nefndin gefur leyfi samkvæmt þessari grein að fenginni umsögn Dýra-
verndarráðs. Undanþágu skal því aðeins veita, að ekki séu þekktar
aðrar leiðir til að ná sambærilegum árangri.
Umhverfisráðherra setur í samráði við tilraunadýranefnd reglugerð,
þarsem kveðið eráum meðferð tilraunadýra og eftirlit með tilraunum.
10. í 19. grein vantar ákvæði um það, hverjir tilnefni menn í dýraverndar-
nefndir. Eðlilegt er, að búnaðarsamböndin hefðu rétt til að tilnefna 1-2
fulitrúa í þessar nefndir eftir stærð nefndanna.
Mál nr. 4
Frumvarp til laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim (drög).
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing 1992 hefur fjallað um frumvarp til laga um búfjársjúkdóma
og varnir gegn þeim á þingskjali nr. 4.*
Lýsir þingið yfir stuðningi við megin tilgang frumvarpsins og væntir þess,
að við endanlegan frágang verði tillit tekið til ábendinga í meðfylgjandi
greinargerð.
GREINA R GERÐ:
Frumvarpi því, er hér um ræðir, er ætlað að leysa af hólmi fern lög um
varnir gegn ákveðnum sjúkdómum, einkum í nautgripum og sauðfé, og er
því að mun víkkað það svið, sem lögunum er ætlað að ná til. Verður að telja
það til bóta að fá heildarlöggjöf í þessu efni.
* þ.e. eins og frv. kom frá landbúnaðarráðuneytinu. - Ritstj.
178