Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 192
sveitarfélagsins, ber að uppfylla gagnvart sveitarstjórn og öðrum
aðilum vegna fasteigna sinna innan viðkomandi sveitarfélags.
5. Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að hlutast til um, að
formenn eða fulltrúar frá jarðanefndum í landinu verði kallaðir saman
til fundar til þess að móta þau meginmarkmið, sem endurskoðunin á að
byggjast á, og síðan aftur til þess að fjalla um lokagerð tillagna til
breytingar á jarðalögunum.
II
Búnaðarþing telur brýnt, að lokið verði hið fyrsta undirbúningi löggjafar
um afmörkun landsvæða á hálendi íslands og annars staðar utan byggðar
eftir eignalegri stöðu, þar sem hún kann að vera óviss.
Við slíka lagasetningu og framkvæmd hennar verði tekið fyllsta tillit til
eignarréttar einstaklinga og sveitarfélaga, svo og hefðbundins nytjaréttar
þar, sem ekki verða færðar sönnur á óskoraðan eignarrétt.
Mál nr. 20
Tillaga stjórnar Búnaðarfélags tslands að afgreiðslu Búnaðarþings á máli
nr. 23, 3. hluta, frá Búnaðarþingi 1991.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 sam-
hljóða atkvæði:
I.
Búnaðarþing beinir því til stjórnar Búnaðarfélags íslands, að eftirtalin
atriði verði sérstaklega höfð til hliðsjónar sem skilyrði fyrir staðfestingu
Búnaðarfélags íslands við endurskoðun á samþykktum búnaðarsambanda í
framhaldi af samþykkt Búnaðarþings 1991 (23. mál 3. hluti), um aðild
búgreinafélaga að búnaðarsamböndum.
1. að í samþykktum búgreinafélags, sem ganga vill í búnaðarsamband, sé
tekið fram, að félagið starfi á faglegum grundvelli (jafnframt kjaramál-
um).
2. að inntökuskilyrði og uppbygging búgreinafélags fari ekki í bága við 4.
gr. laga Búnaðarfélags Islands.
3. að starfssvæði búgreinafélaga sé hið sama og búnaðarsambandssvæðið.
Búgreinafélög, sem ná yfir stærra svæði eða allt landið skiptist í deildir
til aðildar að búnaðarsamböndum. Félög sömu búgreinar, séu þau
fleiri en eitt á sama sambandssvæði, sameinist um aðild. Einstökum
búnaðarsamböndum er þó heimilt, að höfðu samráði við Búnaðarfélag
íslands, að ákveða aðrar reglur um starfssvæði búgreinafélaga, ef
sérstakar ástæður þykja til.
4. að lágmarkstala félagsmanna í búgreinafélagi sé hin sama og í búnaðar-
félagi (sbr. 3. gr. laga Búnaðarfélags íslands).
190