Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 193
5. að öll félög í búnaðarsambandi haldi félagsmannaskrá, sem skilað sé til
sambandsins í janúar ár hvert. Á henni grundvallast réttindi félagsins
og skyldur gagnvart búnaðarsambandinu, þ.m.t. árgjöld þess til sam-
bandsins. Nú er bóndi félagsmaður í fleiru en einu aðildarfélagi
búnaðarsambands, t.d. búnaðarfélagi og einu eða fleiri búgreinafélög-
um, og ber honum þá að velja, með hverju þeirra hann vill eiga
aðalaðild að sambandinu, þ.e. hvar árgjald til sambandsins greiðist
hans vegna. Enginn getur átt aðalaðild nema gegnum eitt félag.
6. að öll félög (búnaðar- og búgreina-), sem ná lágmarkstölu félags-
manna, eigi einn fastan fulltrúa á fundum búnaðarsambandsins. í þeim
samböndum, sem hafa í lögum sínum, að fleiri fulltrúar skipi fundina
(eftir ýmsum reglum), miðast réttindi við fjölda þeirra, sem kjósa
aðalaðild í hverju félagi. Nú eru félagsmenn í einhverju félagi fleiri en
sex, en færri en sex (eða gildandi lágmarkstala hverju sinni) kjósa sér
aðalaðild með félaginu, og á þá félagið eigi að síður rétt á einum
fulltrúa, en greiðir þá árgjald af sex (eða lágmarkstölu hverju sinni).
II.
Því verði jafnframt beint til búnaðarsambandanna að taka upp í sam-
þykktir sínar eftirfarandi ákvæði:
a) Markmið og verkefni:
að styðja og efla hvers konar umbætur á sviði landbúnaðar á sambands-
svæðinu.
að stuðla að sem fjölþættustu og traustustu atvinnulífi í sveitum á
sambandssvæðinu.
að veita leiðbeiningar og framfylgja á hverjum tíma gildandi löggjöf um
íslenzkan landbúnað (jarðræktar- og búfjárræktarlögum) í samstarfi
við Búnaðarfélag íslands og aðra þá aðila, sem annast framkvæmd
slíkra laga.
að standa vörð um félagslega velferð fólks á sambandssvæðinu.
að stuðla að varðveizlu menningarlegra verðmæta, er tengd eru
búskapar- og atvinnusögu á sambandssvæðinu.
Tekjum af starfsemi sambandsins eða sjóðum þess má einungis verja til
þess að stuðla að framförum í búskap eða annarri atvinnustarfsemi í
samræmi við tilgang sambandsins eða til annarra almenningsheilla.
b) Um slit sambands og ráðstöfun eigna.
Verði sambandið sameinað öðru búnaðarsambandi, skulu sjóðir þess
og aðrar skuldlausar eignir renna til hins nýja sambands. Verði
sambandið lagt niður, skulu sjóðeignir þess og aðrar skuldlausar eignir
ávaxtaðar næstu 10 árin í traustri innlánsstofnun, en undir umsjón
Búnaðarfélags íslands. Rísi búnaðarsamband á svæðinu innan þess
191