Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 195
Næstsíðasta mgr. 8. greinar orðist svo:
„Heimilt er forseta að ákveða eina umræðu um einstök mál, ef enginn
mælir því gegn, enda hafi nefndaráliti verið dreift til fulltrúa, a.m.k. einum
sólarhring fyrr en það er tekið til afgreiðslu með þeim hætti.“
GREINA R GERÐ:
1. gr.
Þarna er gert ráð fyrir að fjölga fastanefndum þingsins um eina,
Umhverfisnefnd. Tilgangurinn er tvíþættur, annars vegar ætti þetta að leiða
til, að þingstörf tækju skemmri tíma, verið er að vinna að sex málurn í einu í
stað fimm, hins vegar eru umhverfismál að verða fyrirferðarmeiri í þjóðfé-
laginu. Bændur og samtök þeirra koma þarna við sögu í mörgum tilfeilum,
og það er því nauðsynlegt, að Búnaðarþing taki þessi mál föstum tökum.
2. gr.
Þessi breyting er eðlileg. Búnaðarþing hefur verið að styttast á liðnum
árum. Stefna þarf að því, að það standi að öðru jöfnu ekki lengur en 6 til 7
daga á ári.
3. gr.
Breyting á þessari grein miðast að því, að þingstörf Búnaðarþings gangi
liprar fyrir sig. Æskilegt er, að gjörðabók Búnaðarþings greini nokkuð
ýtarlega frá umræðum. Sé það gert, tekur nokkurn tíma að lesa upp
fundargerðir. Gert er ráð fyrir, að þingfulltrúar eigi góðan aðgang að
fundargerðum, áður en þær verða samþykktar.
Síðari breytingin er aðeins til einföldunar.
Mál nr. 22
Erindi landbúnaðarnefndar Alþingis um ráðstöfun á framleiðslurétti á
leigujörðum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
I tilefni af erindi landbúnaðarnefndar Alþingis um ráðstöfunarrétt á
framleiðslurétti á leigujörðum ályktar Búnaðarþing eftirfarandi:
1. Við frjálsa sölu á framleiðsluheimild renni söluandvirðið til eiganda
fyrir þann framleiðslurétt, sem sannanlega var á jörðinni við upphaf
ábúðar nema um annað sé samið.
2. Hafi ábúandi aukið framleiðsluheimildina á leigutímanum með ein-
hverju eftirtalinna atriða eða fleiri þeirra:
13
193