Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 196
a) Kaupum á framleiðsluheimild.
b) Flutningi á framleiðsluheimild inn á jörðina.
c) Kaupum á ræktunar- og/eða beitilandi eða annarri aðstööu utan
viðkomandi leigujarðar, sem skapað hefur grunn að aukinni fram-
leiðsluheimild, ber ábúanda, en ekki eiganda, söluandvirði þess
hluta framleiðsluheimildarinnar, sem þannig hefur myndazt.
3. Sé leigujörð seld nauðungarsölu vegna veðsetningar eiganda til trygg-
ingar skuldbindingum óviðkomandi búrekstri á jörðinni, beri ábúanda
annað tveggja, söluandvirði framleiðsluheimildarinnar, ef hún er seld,
eða heimild til að flytja hana með sér yfir á aðra jörð.
4. Ljúki ábúð vegna erfðaskipta eða eigandi tekur jörðina til annarra nota
en búreksturs beri ábúanda söluandvirði framleiðsluheimildarinnar
eða heimild til að flytja hana á aðra jörð.
Mál nr. 23
Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um sœðingar hrossa.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 17 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing 1992 telur tímabært, að hafnar verði sæðingar hrossa hér á
landi.
Þingið ályktar að fela stjórn Búnaðarfélags íslands að hafa forgöngu í
málinu og taki mið af eftirfarandi ábendingum:
1. í upphafi verði kostnaðar vegna miðað við, að aðeins ein sæðistökustöð
taki til starfa.
2. Hentugasta rekstrarform verði kannað.
3. í hverju héraði verði kappkostað, að hrossaræktarsambönd, búnaðar-
sambönd og dýralæknar standi sameiginlega að framkvæmd sæðing-
anna. í því sambandi má benda á þá starfsemi, sem búnaðarsamböndin
standa nú fyrir, s.s. sæðingar annars búpenings og eignarhald á
ómmyndatækjum.
4. Landbúnaðarráðuneytið verði hvatt til að setja reglugerð um sæðingar
hrossa.
5. Sérstaklega verði kannað, hvort hagkvæmt væri að leyfa útflutning á
takmörkuðu magni hestasæðis.
6. Hrossaræktarnefnd Búnaðarfélags fslands hafi faglega yfirumsjón með
sæðingastarfseminni, eins og búfjárræktarlög segja til um.
GREINARGERÐ:
Við könnun á hentugu rekstrarformi á sæðistökustöð virðist rétt að
athuga eftirfarandi:
1. Reksturinn verði á vegum annarrar hvorrar þeirra ræktunarstöðva,
194