Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 210
sem upp kann að koma, til úrskurðaraðila, sem t.d. gætu verið eftirfarandi
aðilar: umhverfisráðuneyti, Búnaðarfélag Islands og viðkomandi búnaðar-
samband.
Alltaf hljóta að koma upp álitamál, og verði sinubrennsla bönnuð, þar
sem deila má um forsendur, er það sjálfsagt réttlætismál, að hægt sé að
skjóta slíkum deilumálum til úrskurðar utanaðkomandi aðila.
Mál nr. 34
Erindi Búnaðarsambands Eyjafjarðar um tengingu búnaðarsambanda við
tölvukerfi Búnaðarfélags íslands og skráningu gagna hjá búnaðarsambönd-
unum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 23 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing þakkar það, sem gert hefur verið á því sviði að tengja
tölvubúnað búnaðarsambandanna við móðurtölvu bændasamtakanna.
Einnig þakkar þingið þá tilraun, sem gerð var með að fullvinnaforðagæzlu-
skýrslur heima í héraði. Sú tilraun gafst vel.
Búnaðarþing leggur enn áherzlu á, að hraðað verði, svo sem frekast er
kostur, frekari tengingu á tölvubúnaði búnaðarsambandanna við móður-
tölvu bændasamtakanna. Jafnframt leggur þingið áherzlu á, að markvisst
verði unnið að því, að skráningarvinna og úrvinnsla búfjárskýrslna verði í
auknum mæli færð til búnaðarsambandanna og leitað leiða til þess að greiða
þeim fyrir þá vinnu.
Mál nr. 35
Erindi Einars Porsteinssonar um eflingu félagskerfis landbúnaðarins.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 sam-
hljóða atkvæði:
Búnaðarþing beinir því til bændaskólanna, að þeir athugi möguleika á
námskeiðahaldi í stjórnunarstörfum.
GREINARGERÐ:
Námskeið þessi væru einkum ætluð stjórnarmönnum þeirra félaga, sem
eru grunneiningar búnaðarfélagsskaparins, svo og öðrum, sem áhuga
kunna að hafa.
208