Heilbrigðismál - 01.05.1950, Side 3
f'RÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
3
dufti eða öðrum slíkum meðulum, þá sé ekki um krabbamein að ræða
hjá þeim.
Vafalaust má telja, að unnt sé að taka verulegum framförum á
þessu sviði, bæði hjá læknum og almenningi. En þá má ekki spara
þá vinnu sem þarf til þess að gera fullnægjandi rannsóknir á öllum
þeim, sem grunsamleg einkenni hafa. Menn mega ekki vera hræddir
við að fara til læknis, af því að þeir eru hræddir um að þeir kunni að
hafa krabbamein. Menn verða að læra að hugsa á þá leið, að maga-
krabbinn sé vel læknanlegur, ef til hans næst nógu snemma, og að
þess vegna sé um að gera, að gefa sig fram, ef nokkrar meltingartrufl-
anir gera vart við sig eftir 45 ára aldur, og fá sig rækilega rannsakaða.
Menn verða að gera sér ljóst, að ekki dugir að blekkja sjálfa sig með
því að telja sér trú um að þetta sé ekkert alvaralegt, og menn verða
að vita, að kvíðinn, þótt óljós sé, fyrir því að þetta kunni að vera
krabbamein, er verri en vissan um krabbamein, ef hún fæst nógu
snemma til að koma að gagni, en fullnægjandi rannsókn getur líka
gefið manni vissuna um að ekki sé um neitt krabbamein að ræða.
J>ótt gjaldeyrisörðugleikar sé miklir, þá má ekki spara fé til kaupa á
röntgenfilmum.
Mislingar
eru nýkomnir til landsins, og þótt þeir hafi lítið breiðzt út, má fast-
lega búast við að þeir gangi yfir landið í sumar. Síðast gengu misling-
ar hér 1947, svo að búast má við að það verði aðallega börn yngri en
þriggja ára, sem nú sýkjast, auk þeirra sem eldri eru og sloppið liafa
fram að þessu. Er nú orðið skemmra á milli mislingafaraldra en áður
tíðkaðist, þar sem þetta er í þriðja skiptið á sjö árum, að mislingar
ganga yfir landið, en áður voru oft sjö ár og stundum mun lengra á
niilli faraldra.
Mislingarnir eru yfirleitt taldir hættulaus sjúkdómur, en þeh* geta
þó verið varasamir fyrir þá sem veiklaðir eru fyrir, einkum af berkla-
veiki. Fyrir slíka sjúklinga getur verið mikils virði að verjast veik-
inni, og er naumast unnt að gera það með því að einangra sig. Hægt
er að einangra böm á fyrsta ári, en krakka sem farnir eru að hlaupa
um, er engin leið að einangra frá öðrum börnum. Og jafnvel þótt
unnt sé að stía börnum í sundur, þá dugir það oft ekki til, því að
hér er fólk á öllum aldri, sem eklci hefur fengið mislinga og erfitt að
varast það. En mislingarnir eru mjög smitandi og mest hætta á smit-
un frá þeim sem eru á ferli, áður en þeir leggjast í rúmið.
Meðgöngutíminn frá því að menn smitast og þangað' til menn
veikjast er um 14 dagar, en síðustu fjóra daga meðgöngutímans hafa
sjúklingarnir kvefeinkenni og eru þá mjög smitandi. Læknir, sem