Heilbrigðismál - 01.05.1950, Síða 5
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
5
loks eina nýja samsetningu, sem sagt er að taki öllu fram, sem hingað
til hefur sézt.. Þetta smyrzl veitir vörn fyrir mýbiti í þrjá klulckutíma
eftir að því er smurt á þá staði hörundsins, sem útsettir eru fyrir
mýbit. Það hefur þann kost, að það skolast ekki af með svita. Það
hefur ekki skaðleg áhrif á hörundið, þótt menn finni til svolítils fiðr-
ings þegar því er fyrst smurt á og seinna þegar það er þvegið af. Ekki
ætti það samt að fara í augun og ekki heldur að snerta gleraugnaum-
gerð úr skjaldbökuskel eða plasti. Samsetningin á þessu smyrzli hefur
verið birt, af skozkum stjórnarvöldum til þess að þeir sem vilja geti
framleitt það, en hún er þessi: Dimethyl phthalat 200 g., Magnesium
stearat 30 g., zink stearat 70 g. Við tilbúninginn er dimethylpthalat
fyrst steytt saman við magnesium stearat og síðan er zink stearati
bætt út í.
Nýtt lyf, sem læknar taugaveiki
Það hefðu þótt tíðindi fyrir einum mannsaldri, ef tilkynnt hefði
verið um nýtt lyf, sem læknaði taugaveiki. Nú þykir það naumast
mikil frétt þótt fundið sé lyf, sem hefur slík áhrif. Þekkingu manna
á taugaveiki og orsökum hennar hefur farið svo mikið fram síðasta
mannsaldurinn, að fáir sjúkdómar eru betur gagnrannsakaðir. Þessi
þekking hefur orðið til þess, að taugaveikinni hefur verið útrýmt að
mestu í öllum menningarlöndum. Hér heyrist hún varla nefnd á nafn.
ITtbreiðsluhættan stafar aðallega af smitberunum, sem ganga með'
sýklana í gallblöðrunni, en þaðan berast þeir niður í görn og síðan með
saurnum niður af manninum. Hér á landi mun nú kunnugt um alla
smitbera, og síðan þeim voru lagðar lífsreglurnar eða gallblaðran tekin
úr þeim, er það taugaveikin, sem deyr, en ekki mennirnir.
Með því að' finna lyf, sem læknar veikina, er enn einn sigur unninn
gegn þessum sjúkdómi, sem áður var svo skæður, meðan þekking var
af skornum skammti og ekkert meðal til sem dugði. Nú hefur tekizt
að lækna veikina með lyfi, sem nefnist klóramphenicol. í Algier er
enn töluvert um taugaveiki og Benhamou og félagar hans gáfu fjölda
sjúklinga þetta lyf og birtu tilraunir sínar um það í La semaine des
hopitaux de Paris 22. jan. s.l. Þessar rannsóknir er ekki hvað sízt að
marka vegna þess, að hér var á ferðinni skæður taugaveikisfaraldur,
þar sem 23% sjúklinganna fengu heilabólgu (encephalitis). Með því
að gefa þetta nýja lyf lækkar hitinn eftir 5—6 daga, en eins og kunn-
ugt er getur hitinn við taugaveiki haldizt í 4—5 vikur. En þótt hit-
inn lækki svo fljótt geta einkenni sjúkdómsins haldizt lengur eftir
að hitinn fellur. Lítur út fyrir að eiturefnin, sem losna, þegar sýklarnir
leysast upp, sé hættuleg, og þrátt fvrir þetta nýja lyf geta menn enn