Heilbrigðismál - 01.05.1950, Side 7
KRÉTTABRÉF IIM IíliILBRIGÐISMÁL
7
Sannleikurinn er sá, að það er svo auðvelt að drepa menn fyrir þá
sem einu sinni byrja á því og sleppa með það, eða halda að þeir sleppi
með það, að raunin vill verða sú, að tilhneigingin til að tortíma manns-
h'fum magnast frekar en rénar.
Læknarnir kæra sig ekki um þetta vald. Þeir vita að það er allt
of hættulegt að hafa slíkt vald til þess að heilli stétt sé trúandi fyrir
því, þar sem misjafn sauður er í mörgu fé, svo að naumast gæti hjá
því farið, að því yrði misbeitt. Læknamir eru til þess að vernda líf
manna en ekki til að spilla því eða glata. Þeir þurfa meira að segja
að vera á verði til þess að láta ekki hafa sig til þess að tortíma manns-
lífum. Styrjaldarþjóðimar vilja fá þá í lið með sér til þess að full-
komna drápstæki sín og ekki er langt síðan fangabúðalæknar voru
hafðir til að gera ósæmilegar tilraunir á sjúkum föngum. Og í öllum
löndum koma konur til læknanna til þess að biðja þá að eyðileggja
fóstur sín. A öllu þessu verður læknirinn að vara sig og gæta sín að
víkja aldrei frá rétti hvers einstaklings til lífsins.
Útrýming sjúkdóma
Á eynni Cypms, sem er undir brezkri stjórn, hefur malaríu verið
útrýmt. Hefur það verið gert með miklum tilkostnaði, en naumast
verður það metið til fjár að losna við svo skæðan sjúkdóm. Nú á að
fara að gera tilraun á annarri eyju, Haiti, með annan sjúkdóm, sem
enginn hægðarleikur er að fást við og allt aðrar aðferðir þarf við. Til
að útrýma malaríu þurfti að drepa allar mýflugur af vissum tegund-
um á eynni, en á Iíaiti á að gera tilraun til að útrýma syfilis, sem er
mjög útbreiddur á eynni. Landið er álíka fjölmennt og Danmörk, með
3% miljón íbúa og af þeim er talið að 25% sé sýkt af syfilis. Auk þess
hafa um 85% framboesi, sem er útbrotasjúkdómur, sem líkist mjög
syfilis og læknast af sömu lyfjum. Tíu sveitir lækna og hjúkrunar-
kvenna eiga að ferðast um eyna og gefa hverju mannsbarni penicillin-
dælingar til að lækna þessa sjúkdóma. Þessi herferð er gerð á vegum
alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar í samráði við ríkisstjórnina í Haiti
og með styrk frá barnahjálp sameinuðu þjóðanna. Er ráðgert að her-
ferðin taki tvö ár.
Menn bíða með eftirvæntingu eftir að sjá árangurinn af þessari
tilraun. Ef hún tekst vel, má búast við að slíkar tilraunir verði gerðar
víðar með fleiri sjúkdóma.
Námskeið Krabbameinsfélags Reykjavíkur
fyrir hjúkrunarkonur og ljósmæður, sem haldið var í marz, var mjög
vel sótt, svo að jafnan var þéttskipað í 1. kennslustofu Háskólans,