Heilbrigðismál - 01.05.1950, Side 8
8
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
sem tekur 100 manns. Fyrirlestra fluttu nokkrir læknar i Reykjavík
um krabbamein, orsakir þess, hátterni og einkenni eftir því hvaða Iíf-
færi verða fyrir því, svo og um lækningaraðferðir og lækningarhorfur.
Var öllum veitt ókeypis þátttaka og læknarnir tóku enga greiðslu fyrir
sína fyrirhöfn. Var almenn ánægja með námskeiðið, sem sýnilega
náði tilgangi sínum, að upplýsa hjúkrunarkonur og ljósmæður, sein
öðrum fremur hafa tækifæri til að fylgjast með' lieilsufari annarra,
um krabbamein, eðli þess og einkenni. Krabbameinsfélagið þakkar
sérstaklega læknunum, sem svo góðfúslega lögðu fram sinn skerf til
að þessi tilraun tækist svo vel sem raun varð á.
Áskrifendur
að Fréttabréfinu eru enn sárafáir, svo að mjög mikið vantar á að það
beri sig. Krabbameinsfélagið hefur sent ritið reglulega til fjölda manns
í þeirri von, að nægilega margir gerðust áskrifendur til þess að útgáf-
an a. m. k. svaraði kostnaði og gæti jafnvel orðið félaginu til styrktar.
Sú hefur ekki orðið raunin á. Félagið hefur ekki viljað fara þá leið,
sem mörg pólitísk rit hafa valið, að senda öllum reikning, sem bréfið
hafa fengið', heldur ætlazt til þess, að þeir sem vilja verða áskrifendur
og styrkja með því baráttuna gegn krabbameini, hafi framtak í sér
til að segja til um það og senda andvirði ritsins til skrifstofu félagsins.
Ef ritið á að geta haldið áfram að koma út verða lesendur okkar að
gera sér ljóst, að við höfum elcki efni á að styrkja þá lengur með því
að senda þeim bréfið ókeypis. Hinsvegar væri mjög vel þegið að þeir
styrktu starfsemi okkar með því að greiða áskriftargjaldið. Þeir, sem
ekki vilja sjálfir verða áskrifendur, eru vinsamlega beðnir að fleygja
ritinu í einhvern kunningja sinn heldur en í pappírskörfuna.
Skrifstofa Krabbameinsfélags Reykjavíkur er á Laugavegi 26, Reykja-
vík, sími 7393. Ef þér gerið erfðaskrá, þá minnist Krabbameinsfélags-
ins. Notið minningarspjöld Krabbameinsfélagsins. Fást í skrifstofu
félagsins og verzl. Remedia, Austurstræti 6, Reykjavík.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL er gefið út af Krabbameinsfélagi Reykjavíkur.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Níels Dungal, prófessor. Kemur út 10—12 sinnum á ári. Árs-
gjald kr. 25.00, sem greiðist fyrirfram. Meðlimir Krabbameinsfélags Reykjavíkur, sem greiða
80 kr. árlega eða meira fá Fréttabréfið ókeypis. Ævifélagar fá Fréttabréfið gegn 20 kr. árs-
gjaldi. Pantanir sendist til Krabbameinsfélags Reykjavíkur, pósthólf 472, Reykjavík, ásamt
árigjaldinu. Gerizt meðlimir í Krabbameinsfélaginu og áskrifendur að Fréttabréfinu fyrir
kr. 30.00 á ári. — Prentað í Víkingsprenti.