Heilbrigðismál - 01.04.1970, Side 1
Oddfellowreglan á íslandi sýndi þann mikla höfðingsskap, að gefa Landspítalanum hávolta-
geislatæki í tilefni 150 ára afmælis reglunnar. Gjöfin miðaðist við verð tækisins frá verksmiðj-
unni í Kanada.
Ríkisstjórnin gaf eftir tolla, Sjóvá gaf tryggingar, Eimskip flutningskostnað, Hans R. Þórð-
arson og Ólafur Jónsson forstjórar Electric hf. gáfu umboðslaun sín. Annan kostnað greiddu
Krabbameinsfélag fslands og Krabbameinsfélag Reykjavíkur að jöfnu. Þau önnuðust útvegun
tækisins og alla fyrirgreiðslu vegna þess. Tækið reiknað fullu verði kostaði rúmar 6 milljónir
króna.
Myndin að ofan er frá fjölmennri athöfn í Oddfellowhúsinu, er stórsír Oddfellowreglunnar.
Magnús Brynjólfsson, afhendir Jóhanni Hafstein heilbrigðismálaráðherra gjafabréf, fyrir cob-
altækinu. Á vinstri hönd honurn sitja Sigurður Sigurðsson landlæknir o g Bjarni Bjarnason
læknir, formaður Krabbameinsfélags íslands.
i--------------------------------