Heilbrigðismál - 01.09.1970, Blaðsíða 20

Heilbrigðismál - 01.09.1970, Blaðsíða 20
Innflúenza d heimilum Hiti, höfuðverkur, beinverkir, hósti með stíflum í nefi, sviði í hálsi og fyrir brjósti, og þegar hitinn fellur, þreytutilfinn- ing og stundum þunglyndi. Allt eru þetta fylgifiskar inflúenzu. Ýmsar leiðir eru til að draga úr þessum einkennum með nærgætinni heimahjúkrun. Hiti. Sjúklingar með inflúenzu fá alltaf háan hita, iðulega 39-40 stig, sérstaklega fyrstu 2 sólarhringana. Hitinn fellur oft á 3. degi, en meðan á honum stendur, fær sjúklingurinn oft kölduköst; húðin ýmist brennandi heit eða böðuð í svita. Sjúklingar með hita verða að liggja í rúminu. Hitinn og vökvatapið veldur því að munnurinn verður þurr, tung- an sár, þvagið dökkt með sterkri salmíaks- lykt; oft fylgir hægðaleysi. Vegna alls þessa verður sjúklingurinn að fá mikinn vökva, alit að 2—21/2 1. af vatni á dag, sem ávaxta- safa eða í öðrum drykkjum, til að draga úr óþægindum. Hægt er að draga úr sárindun- um í munninum með því að skola hann með þunnum sítrónusafa eða natrónvatni (sóda- duft), 1 tsk. í Vz 1. af vatni. Hitann má lækka með asperíni, codifeni eða öðrum álíka töfl- um, sem draga jafnframt úr verkjunum. Það getur reynzt nauðsynlegt að taka 1-2 töflur á 3. til 4. tíma fresti. Mjög háan hita má alltaf lækka með því að lauga allan líkamann upp úr svölu en ekki sárköldu vatni, og skipta jafnframt um nærföt. Öldruðu fólki og börn- um hættir til að fá óráð með háum hita. Það fer þó af þeim um leið og hitinn lækkar, en sé líkaminn laugaður úr svölu vatni og kald- ur klútur lagður á ennið, flýtir það fyrir lækkun hitans. Höfuðverkir — beinverkir. Inflúenzunni fylgja verkir í höfði, augum, útlimum, baki og koma alls staðar samtímis, oft um leið og smitun á sér stað; og þeir eru merki þess að rúmlega er nauðsynleg, því hiti fylgir fljótt á eftir. Lyfin, sem nefnd hafa verið, má taka eftir þörfum á 3. til 4. tíma fresti, því venjulegir skammtar duga ekki lengur til að draga úr óþægindunum. Ekki er vert að taka verkjatöflur á tóman maga. Drekkið því með þeim glas af vatni, mjólk eða öðrum svaladrykk. Áfengi hefur ekkert gildi við inflúenzu, getur jafnvel aukið höf- uðverkinn og óþægindin af hitanum. Hósti og stíflur í öndunarfcerum. Þurr og ertandi hósti og þrautir í brjóst- inu, sem eru algeng fyrirbæri með inflúenzu, má milda með hóstasaft eða kvefmixtúru, sér- staklega þegar mikill og ertandi hósti truflar nætursvefninn, sem er svo nauðsynlegur fyrir batann. Þessi lyf á að taka eftir þörfum, til að mýkja hóstann. Oft er gott að setja skammtinn í Vl bolla af heitu vatni og dreypa hægt á. Þetta gefur oft góða fró. Heitir drykk- ir draga úr hósta. Öldruðu fólki hættir alltaf til að fá fyrir brjóstið, og öndunin verður þá léttari ef bætt er 1 til 2 koddum undir höf- uðið og herðarnar. Stundum er nauðsynlegt að hækka sjúklinginn upp í hálfsitjandi stell- FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 20

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.