Heilbrigðismál - 01.03.1984, Blaðsíða 26

Heilbrigðismál - 01.03.1984, Blaðsíða 26
Ný leió til aó mæta óvæntum útgjöldum Hlaupareikningur fyrir launafólk með allt að 10.000 króna yfirdráttarheimild. Öll þekkjum við það vandamál þegar óvænt útgjöld koma upp á t.d. þegar bíllinn bilar og þarf á verksta^i eða einhver í fjölskyldunni á stórafmæli. Eins vitum við að sumir mánuðir eru ein- faldlega erfiðari fjárhagslega en aðrir og oft getur reynst erfitt að ná endum saman í mánaðarlok, þegar engin innstaÆa er eftir á tékkheftinu. Þá væri gott að eiga varasjóð til að grípa til. Allt að 10.000 króna varasjóður. Slíkur varasjóður stendur þér nú til boða. Eftir að ávísana- og hlaupa- reikningar hjá okkur verða sameinaðir í eitt reikningsform, áttu kost á að sækja um stöðuga yfirdráttarheimild, allt að 10.000 krónum, á hlaupareikning þinn ef þú ert í föstum launareikningsviðskiptum. Með föstum launareikningsviðskiptum er átt við að laun þín eða tryggingabætur séu greidd reglulega inn á innlánsreikning í sparisjóðnum. Nýir viðskiptavinir fá yfirdráttarheimild um leið og þeir geta sýnt fram á föst launareikningsviðskipti. Þinn kostnaður. Ef þú notfærir þér yfirdráttar- heimildina er kostnaðurinn sem af því hlýst 6% heimildargjald á ári auk 12% vaxta sem reiknast á yfirdráttarstöðu hvers dags. Þessi kostnaður er svo skuld- færður á reikning þinn í lok hvers mánaðar. Fyrstu yfirdráttarheimildimar verða veittar frá og með 15. mai. Þú gctur sótt um strax. Þú getur fengið nánari upplýsingar um yfirdráttarheimildina ásamt um- sóknareyðublöðum í hlaupareiknings- deildum okkar að Skólavörðustíg 11 og í Sparisjóðnum, Seltjamamesi. SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS Skólavörðustíg 11, sími 27766 Austurströnd 3 Seltjamarnesi, sími 25966

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.