Heilbrigðismál - 01.03.1998, Síða 27
Tómas Jór
það sé mjög erfitt að draga hana í
efa. Ég hef oftlega heyrt hann flytja
mál sitt á ráðstefnum, áður fyrr
svartbrýndan og dökkhærðan en
nú gráan fyrir hærum. Þess má til
gamans geta að á alþjóðaþingi
taugameinafræðinga í Stokkhólmi
árið 1986, á meðan öldur deilna um
kenningu hans risu sem hæst, lenti
ég í því að stýra fundi þar sem
hann og helstu andstæðingar kenn-
inga hans fluttu fyrirlestra. Það var
aðeins röggsamri fundarstjórn (að
sjálfsögðu) að þakka að fundurinn
leystist ekki upp.
í mínum huga er enginn vafi á
því að Stanley B. Prusiner hefur
verið leiðandi í rannsóknum á
príonsjúkdómum. Það kom mér
því ekki á óvart að hann hlaut Nó-
belsverðlaun fyrir rannsóknir á
þessu sviði.
Að lokum skal þess getið að ríf-
lega hálfu ári áður en hann hlaut
þessa viðurkenningu, buðum við
honum að halda erindi á ráðstefnu
sem haldin verður í ágúst 1998 í til-
efni 50 ára afmælis Tilraunastöðvar
Háskóla íslands í meinafræði að
Keldum. Við vildum tjalda til því
besta í heiminum á þeirri ráðstefnu
þar sem meginviðfangsefnin verða
hæggengir smitsjúkdómar, það er
príonsjúkdómar og lentiveirusjúk-
dómar en dæmi um þá síðarnefndu
eru meðal annars visna og alnæmi.
Það gladdi okkur mjög að hann
þáði strax boðið, enda þótt Prusin-
er væri þá þegar mjög eftirsóttur
fyrirlesari.
GuÖmundur Georgsson læknir er
prófessor við læknadeild Háskóla ís-
lands og forstöðumaður Tilraunastöðv-
ar Háskóla íslands í meinafræði að
Keldum. Hann hefur áður skrifað í
Heilbrigðismál um Nóbelsverðlaun í
læknisfræði.
Laufey Tryggvadóttir og Jórunn
E. Eyfjörð fá styrk til að rannsaka
tengsl áhættuþátta brjóstakrabba-
meins við sýnd stökkbreyttra
brjóstakrabbameinsgena og við
erfðabreytileika í ákveðnum ensím-
um.
Peter Holbrook og Helga M. Ög-
mundsdóttir fá styrk til að rann-
saka tjáningu á p53 próteini og
stökkbreytingar í p53 geni í eðli-
legri og sjúkri munnslímhúð.
Sigríður Halldórsdóttir fær styrk
til að rannsaka þjáningu kvenna
með brjóstakrabbamein og upplif-
un þeirra af umhyggju og um-
hyggjuleysi.
Sigurður Ingvarsson og Guðný
Eiríksdóttir fá styrk til að leita að
stökkbreytingum í E-cadherin geni
í brjóstaæxlum.
Stefán Þ. Sigurðsson, Eiríkur
Jónsson og Jórunn E. Eyfjörð fá
styrk til að rannsaka tíðni stökk-
breytinga í krabbameinsbæligenun-
um p53 og BRCA2 í íslenskum
körlum með krabbamein í blöðru-
hálskirtli og kanna tengsl við horf-
ur.
Þórunn Rafnar og Gunnar Bjarni
Ragnarsson fá styrk til að rannsaka
áhrif afbrigðilegra brjóstaþekju-
frumna á eðlilegar T eitilfrumur.
Næst verður auglýst eftir um-
sóknum um styrki í ágústmánuði.
Fyrstu styrkir
úr Kristínarsjóði
Nýlega voru í fyrsta sinn veitt-
ir styrkir úr „Sjóði Kristínar
Björnsdóttur, fyrrverandi starfs-
manns Sameinuðu þjóðanna", en
sjóðurinn er í vörslu Krabba-
meinsfélags íslands. Fé úr sjóðn-
um skal varið aðallega í þágu
rannsókna á krabbameini í börn-
um og unglingum, og til að-
hlynningar krabbameinssjúkra
barna. Stjórn sjóðsins ákvað að
veita tvo styrki, samtals að upp-
hæð 800 þúsund krónur.
Guðmundur K. Jónmundsson
og Jón R. Kristinsson, læknar á
Barnaspítala Hringsins, fá styrk
til að rannsaka langtímaáhrif
meðferðar við krabbameini í
æsku. Á undanförnum áratugum
hafa framfarir orðið miklar og
lífshorfur hafa batnað mikið.
Sjúkdómsmeðferðin getur haft
áhrif á vöxt og þroska, hormóna-
jafnvægi og jafnvel félagslegar
aðstæður. Athyglinni verður
einkum beint að hvítblæði og
heilaæxlum.
Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna fær styrk til að efla
núverandi starfsemi að Hvammi
í Vatnsdal í Austur-Húnavatns-
sýslu, en þar er rekið hvíldarat-
hvarf fyrir langveik börn. Þor-
steinn Ólafsson framkvæmda-
stjóri Styrktarfélagsins tók við
styrknum en hjónin á Hvammi,
Gunnar Ástvaldsson og Þuríður
Guðmundsdóttir voru viðstödd.
Gunnar Ástvaldsson, Guðmund-
ur Jónmundsson, Guðrún Jóns-
dóttir formaður sjóðsins, Þuríð-
ur Guðmundsdóttir, Jón Krist-
insson og Þorsteinn Ólafsson.
HEILBRIGÐISMAL 1/1998 27