Heilbrigðismál - 01.09.1998, Side 34
Mikilvægt er að
læknanemar fái
að takast á við fjöl-
breyttar aðstæður
segir Björg Þorsteinsdóttir sem var
formaður alþjóðasamtaka lækna-
nemafélaga í eitt ár og ávarpaði þing
alþjóðasamtaka lækna í haust
Á þingi Alþjóðasamtaka læknanema fyrir rúmu ári
var Björg Þorsteinsdóttir læknanemi kosin forseti sam-
takanna. Hún skilaði af sér í ágúst og segist vera
reynslunni ríkari eftir þessa annasömu mánuði, en
þeim fylgdu mikil vinna og mikil ferðalög.
„Internationcú Federation of Medical Student's Associat-
ions, IFMSA, eru stærstu samtök læknanema í heimin-
um og ná til tæplega 70 landa. Þau voru stofnuð 1951 til
að stuðla að friði í heiminum með alþjóðlegu samstarfi
og stúdentaskiptum. Meginmarkmið samtakanna er að
virkja læknanema og undirbúa þá fyrir störf er miða að
forvörnum og heilbrigði, jafnt heima fyrir og á alþjóða-
vettvangi. Að þessu er unnið með því að gefa þeim
færi á að taka þátt í þróunarstarfi og annarri heilsu-
vernd í öðrum löndum. Þannig kynnast þeir breytileg-
um samfélagsaðstæðum og fá innsýn í þau viðfangs-
efni sem eru efst á baugi í alþjóðastarfi," segir Björg.
Stúdentaskipti hafa frá upphafi verið stærsti liðurinn
í starfi samtakanna. Mörg þúsund stúdentar nýta sér
þau árlega, m.a. á annan tug íslenskra læknanema og
samsvarandi fjöldi erlendra nema sækir okkur heim.
Samtökin eru í formlegri samvinnu við stofnanir
Sameinuðu þjóðanna, einkum Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunina og Menningarmálastofnunina, og eru auk
þess í samstarfi við mörg alþjóðasamtök á sviði heil-
brigðismála svo og önnur stúdentasamtök.
í haust hlotnaðist Björgu sá heiður að flytja ræðu á
aðalfundi Alþjóðasamtaka lækna, World Medical Associ-
ation, í Ottawa í Kanada. í ræðunni fjallaði hún um það
hvernig læknar og læknanemar geta unnið saman að
þjálfun lækna til forystu í heilbrigðismálum og um
þörfina fyrir aukna stjórnunarmenntun lækna.
„Mikilvægur þáttur í slíkri þjálfun er að nemarnir
takist á við vandamál við mismunandi aðstæður.
IFMSA rekur verkefni í þróunarlöndum þar sem þar-
lendir læknanemar eru í forsvari en erlendir lækna-
nemar taka virkan þátt. Þannig gefst nemunum kostur
á að byggja inn í námsferil sinn einstaka lífsreynslu og
öðlast þar með aukinn skilning og víðsýni um leið og
þeir láta gott af sér leiða."
Á síðustu árum hafa tveir íslenskir læknanemar tek-
ið þátt í slíkum þróunarverkefnum á vegum samtak-
Björg flutti ræðu á þingi alþjóðasamtaka lækna, en
það var haldið í Kanada í október.
anna, hvor um sig í hálft ár. Guðbjörg Lúdvíksdóttir
starfaði í Súdan og Einar Hjaltested á Indlandi. „Lítil
þjóð getur margt lært í alþjóðasamstarfi. Læknanemar
sem taka þátt í þróunarverkefnum og forvarnarstarfi
snúa heim með dýrmæta reynslu sem nýtist í íslensku
samfélagi," segir Björg. „Það er einnig brýnt að rækta
eigin garð. Forvarnir eru dæmi um svið þar sem
læknanemar ættu að láta að sér kveða. Sérstaklega
meðal unga fólksins sem þeir geta nálgast sem jafningj-
ar til að miðla ákveðinni sérþekkingu og reynslu."
Það er brýnt að kalla læknanema til ábyrgðar," segir
Björg. „Samtökin leggja áherslu á að búa læknanema
undir það að axla ábyrgð, ekki aðeins á sjúklingunum,
heldur einnig hvernig eigi að skipta takmörkuðum
gæðum þannig að sem flestir fái notið þeirra." Hún tel-
ur nauðsynlegt að hefja umræðu um þessi mál þegar í
læknanáminu. „Læknanámið er langt og strangt en
læknanemar eru því miður óvirkir í umræðunni um
framtíð þess heilbrigðiskerfis sem þeir eru að búa sig
undir að starfa í. Þessu þarf að breyta," segir Björg Þor-
steinsdóttir.
Forsetaembætti Bjargar hefur enn sýnt fram á mikil-
vægi þátttöku íslenskra læknanema í IFMSA og eru
nokkur verkefni í undirbúningi. En kostnaður við al-
þjóðasamstarfið er mikill. Aðspurð segist Björg hafa
fengið styrki frá mörgum aðilum, til dæmis mennta-
málaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og utanríkisráðu-
neyti, lyfjafyrirtækjunum GlaxoWellcome, Omega
Pharma og Delta, Læknafélagi íslands, Félagi íslenskra
heimilislækna, Visa ísland, Úrval-Útsýn og Háskóla ís-
lands.
Björg er enn virk í starfi alþjóðasamtakanna en sinnir
nú náminu af kappi og stefnir að því að ljúka prófi frá
læknadeild Háskóla íslands í vor. Hún telur brýnt að
breyta læknakennslunni. „Það þarf að auka frelsi til
virkrar þekkingaröflunar og margvíslegrar reynslu í
náminu. Læknar þurfa einnig að geta miðlað þessari
þekkingu til sjúklinga og samfélagsins." -jr.
34 HEILBRIGÐISMÁL 3/1998