Alþýðumaðurinn - 21.01.1983, Síða 1
1. tbl. - 21. janúar 1983
Ábyrgðarmaður: Þorvaldur Jónsson
Afgreiðsla Strandgötu 9 - Sími 24399. P.B.J.
ALÞÝÐUMAÐURINN
Sól í skammdeginu
í Super-sun sólbekknum kosta 10tímar aðeins
kr. 400.- Baðstofan Björk
Grenivöllum 22.
Sími 23083.
Prófkjör Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra
um skipan þriggja efstu sæta á framboðslista til næstu alþingiskosninga, fer fram dagana 29. og 30. janúar nk.
í þrjú efstu sæti listans, sem kosið er um hafa 4 framboð borist:
í 1. til 3. sæti: í 2. til 3. sæti:
ÁRNI GUNNARSSON, Reykjavík HREINN PÁLSSON, Akureyri
ARNLJÓTUR SIGURJÓNSSON, Húsavík
JÓSEF SNÆLAND GUÐBJARTSSON, Akureyri
Kosning fer fram á þeim tímum og stöðum, sem að neðan greinir:
AKUREYRI: Alþýðuhúsinu laugardag frá kl. 11 til kl. 18 og sunnudag frá kl. 11
til kl. 19.
Kosning utan kjörfundar verður í Strandgötu 9 milli kl. 18 og 19 til kjör-
dags. Kosningin er í höndum stjórnar Fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélag-
anna form. Snælaugur Stefánsson.
ÁRSKÓGSHREPPUR: Árni Ólason, Klapparstíg 14 á Hauganesi.
DALVÍK: Grunnskólanum, trúnaðarmenn við kosninguna eru Jóhann Tryggva-
son og Vigdis Sævaldsdóttir.
GRENIVÍK: Auglýst síðar.
HRÍSEY: Skrifstofa V.F. Einingar á laugardag og sunnudag kl. 14 til 18. Trún-
aðarmaður við kosninguna er Jóhann Sigurðsson.
HÚSAVÍK: Félagsheimilið, báða dagana frá kl. 10tilkl. 18. Stjórn Alþýðuflokks-
félagsins annast kosninguna, form. er Kári Guðmundsson. Utan kjör-
fundur er unnt að kjósa hjá Gunnari B. Salómonssyni á Trésm. Borg frá kl.
13 til kl. 15.
MÝVATNSSVEIT: Helluhraun 9 báða dagana kl. 14 til kl. 16. Trúnaðarmaður
við kosninguna er ísak Sigurðsson.
ÓLAFSFJÖROUR: Auglýst síðar.
RAUFARHÖFN: Jóhannes Guðmundsson, Aðalbraut 67.
SVALBARÐSSTRÖND: Kosið á Akureyri.
ÞÓRSHÖFN: Auglýst síðar.
Allir 18 ára og eldri, sem lögheimili eiga í kjördæminu og ekki eru flokksbundnir í öðrum stjórnmálaflokkum hafa þátttöku-
rétt í prófkjörinu.
Yfirkjörstjórn Alþýðuflokksins (Norðurlandskjördæmi eystra.
FRAMBJOÐENDUR KYNNTIR
ÁRNI GUNNARSSON
Árni Gunnarsson hefur verið
þingmaður kjördæmisins síðan
I978.
Árni er í framboði í fyrsta til
þriðja sæti listans.
ARNLJÓTUR
SIGURJÓNSSON
Arnljótur Sigurjónsson raf-
virkjameistari Húsavík er í
framboði í fyrsta til þriðja sæti
listans.
Arnljótur er fæddur á Húsa-
vík I7. október 1926. Foreldrar
hans eru Sigurjón Ármannsson
bæjargjaldkeri Húsavík og Þór-
halla Bjarnadóttir kona hans.
Arnljótur tók sveinspróf í raf-
virkjun á Akureyri árið 1949 og
hefur starfað sem rafverktaki á
Húsavík frá 1951. Hann var
kjörin í bæjarstjórn Húsavík-
ur I966 og hefur verið bæjar-
fulltrúi þar í 12 ár, þar af ljögur
ár forseti bæjarstjórnar og er nú
varabæjarfulltrúi. Hann hefur
setið í bæjarráði og fjölmörg-
um nefndum og stjórnum á
vegum bæjarins.
Arnljótur á sæti í stjórn
Útgerðarfélagsins Höfða hf.
sem rekur tvo skuttogara á
Húsavík. Hann er stjórnar-
maður í Hvammi, dvalarheim-
ili aldraðra á Húsavík, sem
byggt var og rekið sameigin-
lega af sveitarfélögunum frá
Raufarhöfn til Bárðardals og
Ljósavatnshreppa.
Arnljótur er einn af þremur
ritstjórum Árbókar Þingeyinga.
Hann er formaður sóknar-
nefndar Húsavíkurkirkju og á
sæti í stjórnum ýrnissa félaga-
samtaka á Húsavík. Arnljótur
er frumkvöðull þess að hafin var
rannsókn á byggingu trjákvoðu
verksmiðju á Húsavík. Þessi
rannsókn hófst í byrjun árs 1980
og hefir staðið síðan. Forkönn-
un var hafin af Arnljóti ogsíðan
gerð á vegum Húsavíkurkaup-
staðar. Rannsókn þessi fer nú
fram á vegum ríkisins, og er á
lokastigi. Áætlað er að trjá-
kvoðuverksmiðjan muni veita
um 130 manns atvinnu og hafa
afgerandi þýðingu fyrir héraðið
í heild.
Arnhljótur er kvæntur Ástu
Jónsdóttur hússtjórnarkennara
og eiga þau tvær uppkomnar
dætur.
HREINN PÁLSSON
Hreinn Pálsson Akureyri er í
framboði í öðru til þriðja sæti
listans.
Hreinn Pálsson er fæddur I.
júní I942 að Hálsi, Fnjóskadal.
Foreldrar Hulda Guðnadóttir
og Páll Ólafsson. Ólst upp í
Eyjafirði og á Akureyri.
Stúdent frá M.A. 1962 og lauk
kandidatsprófi í lögfræði frá
Háskóla íslands vorið 1970.
Gerðist þá bæjarlögmaður hjá
Akureyrarbæ, en gegndi jafn-
framt til 1975 starfi fram-
færslufulltrúa, og síðar félags-
málastjóra til 1975, en í fullu
starfi sem bæjarlögmaður síð-
an. Hefur auk þess rekið fast-
eignasölu og sinnt nokkuð lög-
fræðistörfum.
Hefur gegnt ýmsum trúnað-
arstörfum á vegurn Alþýðu-
flokksins, frá því hann var kjör-
inn formaður nýendurreists
Félags ungra jafnaðarmanna
haustið 1959, s.s. verið formað-
ur kjördæmisráðs, fulltrúaráðs
og síðast formaður Alþýðu-
flokksfélags Akureyrar, enn-
fremur setið í flokksstjórn til-
nefndur af kjördæmisþingum
og setið nokkur undanfarin
skipti flokksþing.
Kvæntur er hann Margréti
Ólafsdóttur og eiga þau 4 börn,
l dóttur og 3 syni.
JÓSEF SNÆLAND
GUÐBJARTSSON
Jósef Snæland Guðbjartsson
Akureyri er í framboði í fyrsta
til þriðja sæti listans.
Jósef er fæddur á Akureyri 8.
nóv. I949 og hefuralist þarupp.
Hann er sonur Guðbjartar Snæ-
björnssonar fyrrum skipstjóra
og Guðrúnar Sigurðardóttur
frá Torfufelli í Eyjafirði. Jósef
er gagnfræðingur frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Hann er
með bóklegt og að hluta verk-
legt atvinnullugpróf, en það
nám stundaði hann bæði á
Akureyri og í Reykjavík, auk
námskeiðs, sem hann sótti til
U.S.A. Hann hætti flugmanns-
nárni vegna fjárhagsástæðna og
vegna slæmra atvinnuhorfa á
vinnumarkaði flugmanna hér-
lendis.
Jósef er kvæntur Hjördísi
Agnarsdóttur og eiga þau tvö
börn, Þóru 13 ára og Rúnar 8
ára.
Jósef hefur nú sl. tvö ár verið
starfsmaður F.S.A. sem gæslu-
rnaður á G-deild sjúkrahússins.
Grein eftir Jósef um tilgang
hans með framboðinu og hans
áhugamál birtist á innsíðu blaðs
ins.
Frá kjörstjórn prófkjörs
Alþýðuflokksins á Akureyri
Athygli er vakin á prófkjöri Alþýðuflokksins, sem
haldið verður í Alþýðuhúsinu, laugardaginn 29. jan.,
kl. 11-18 og sunnudaginn 30. janúar kl. 11-19.
Frá Kjördæmisráði
Alþýðuflokksins
Almennur fundur verður haldinn á Hótel Varðborg
laugardaginn 22. janúar nk. kl. 13.30.
Allir frambjóðendur í prófkjöri Alþýðuflokksins í kjör-
dæminu mæta á fundinn.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Kjördæmisráð.