Alþýðumaðurinn - 12.04.1983, Qupperneq 5
)-
JNGU
- Nokkrar
hugleiðingar
um
efnahagsmál
Svo eru til aðrir þingmenn og
ráðherrar, sem álita að vandi
þjóðarinnar verði leystur með
stjórnarskrárbreytingum og
hverskonar kerfisbreytingum á
þjóðfélaginu. Slíkar breytingar
geta vissulega leiðrétt margvís-
legt misrétti, en þær leysa ekki
efnahagsvandann. - Þess vegna
verður að gera kröfu til allra
stjórnmálaflokka, að þeir leggi
þegar fram klárar og kvitt til-
lögur um efnahagsmál. Um þær
verður kosið. Við skulum muna,
að á 20 mánuðum var nýkrónan
gerð að 48 aurum og að á síðasta
ári hækkaði hver Bandaríkja-
dollar yfir 100%.
En hvað vill Alþýðuflokk-
urinn?
11. Við viljum gera tilraun
með aukið frjálsræði í viðskiptum
þar sem samkeppni á markaði
telst vera nægileg.
12. Við viljum að ríkisvaldið
sjálft gangi á undan með góðu
fordæmi, þegar almenningur er
krafinn um fórnir, með því að
takmarka umsvif ríkisins; að
tekjurnar verði ákveðnar fyrst -
svo útgjöldin. Við krefjumst
þess að ríkið hætti að lifa um efni
fram.
13. Við viljum minnka hlut-
deild fjárfestingar í þjóðarfram-
leiðslunni, nú þegar þjóðartekj-
ur dragast saman og erlendar
skuldir eru komnar umfram
hættustig.
Hagvaxtarstefnu gegn stöðum og
atvinnuleysi:
1. Við viljum afkomutrygg-
ingu þeirra fjölskyldna, sem eiga
að lifa af tekjum einnar fyrir-
vinnu á óyfirborguðu taxta-
kaupi.
2. Við viljum nýjan og raun-
hæfan vísitölugrundvöll, sem
síðan verði endurskoðaður
reglulega.
3. Við viljum skila húsnæðis-
lánakerfinu tekjustofnum þess,
og gera kleift að hækka lán til
þeirra sem byggja í fyrsta sinn og
lengja lánstímann.
4. Við viljum, að greiðslu-
byrði húsnæðis- og lífeyrissjóðs-
lána miðist við ófalsaða kaup-
gjaldsvísitölu.
5. Við viljum efla innlendan
sparnað með því að allir almenn-
ir sparisjóðsreikningar verði
verðtryggðir og að vextir á spari-
fé verði færðir og greiddir
mánaðarlega.
6. Við viljum að þeir sem
spara reglulega geti áunnið sér
aukin lánsréttindi þegar þeir
byrja að byggja.
7. Við krefjumst þess að út-
flutningsbætur verði afnumdar í
áföngum.
8. Við krefjumst þess að
hætt verði að miða búvöruverð til
framleiðenda við laun launþega.
9. Við viljum stöðva nýjar
erlendar lántökur umfram
erlendan kostnað arðbærra
framkvæmda og nauðsynlegan
gjaldeyrisvarasjóð.
10. Við viljum banna innflutn-
ing fiskiskipa í tvö ár.
14. Við viljum draga úr óarð-
bærri fjárfestingu í hnignandi
greinum, sem komnar eru að
endimörkum vaxtar, en auka
fjárfestingu í vaxtargreinum,
orkufrekum iðnaði, smáiðnaði,
fiskeldi og nýjum búgreinum.
15. Við viljum draga úr lög-
bundinni sjálvirkni ríkisút-
gjalda.
16. Við viljum endurskoða
tekju- og verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga með því að færa
fleiri verkefni ásamt fjármunum
og ábyrgð, yfir til sveitarstjórna.
17. Við viljum aukið sjálfs-
forræði sveitarstjórna yfir
gjaldskrá sína.
18. Við viljum afnema tekju-
skatt til ríkisins - sveitarfélögin
fái þann tekjustofn til umráða.
19. Við viljum samræmt líf-
eyrisréttindakerfi fyrir alla
landsmenn, skv. gegnumstreym-
iskerfi.
20. Við viljum afnema Fram-
kvæmdastofnun rikisins í núver-
andi mynd, sameina alla fjár-
festingarlánasjóði atvinnuvega í
einn sjóð, sem rekinn verði á
viðskiptagrundvelli og útlána-
kjör samræmd.
21. Við viljum, að stjórnmála-
menn hætti pólitískri ráðstjórn
yfir fjárfestingarákvörðunum og
lánsfjárskömmtun í atkvæða-
skyni.
22. Við viljum að þingmenn
þjóðarinnar hætti að vera vanda-
mál; við ætlumst til þess að þeir
leysi vandamál, með því að setja
lög, móta almenna stefnu og
fylgjast með framkvæmd laga.
Pappírsverksmiðja af svipaðri stærð og fyrirhugað er að setja upp á Húsavík.
Arnijótur Sigurjónsson:
Nýjar atvinnugreinar,
ný sjálfstæðisbarátla
Sjaldan eða aldrei hefir umræða
um atvinnuöryggi og vangavelt-
ur um þróun atvinnu í náinni
framtíð hér í kjördæminu verið
jafn mikil og nú þessar vikurnar.
Menn eru kvíðandi. Hvað er
framundan? Halda menn vinn-
unni? Hvert verður nýju fólki á
vinnumarkaði beint? Svörin
liggja ekki á lausu.
Það er samdóma álit að mögu-
leikar hinna hefðbundnu undir-
stöðuatvinnuvega til þess að
taka við fleira fólki séu ekki til
staðar. Byggingariðnaðurinn
býr við þröngan kost. Fjársvelti,
verkefnaskort og óhóflega sam-
keppni erlendis frá. Svo má
lengi telja bæði til sjávar og
sveita. Nú á vordögum blasir við
að fyrirtæki, sem árvisst hafa
tekið við fólki til sumarvinnu,
hafa nú til þess litla eða enga
möguleika. Fiskafli hefur dreg-
ist saman. Dýrtíð hefur vaxið
svo geigvænlega að enginn lág-
launamaður getur slakað á ef
ekki á illa að fara. Húsmæður
sem hafa unnið utan heimilis
hálfan daginn neyðast nú til þess
að vinna fullan vinnudag til þess
að bjarga búi. Þetta þrengir
möguleika ungs fólks til sumar-
vinnu og útilokar það frá henni
ef ekki koma til nýir nú óþekktir
atvinnumöguleikar. Þess utan er
það hreinasta þrælahald að
húsmóðir sé neydd til slíkar
vinnu sem hefur og í för með sér
tvöfaldan vinnudag hennar.
Þessu ástandi verður að linna.
Ráðst verður að verbólgunni
með markvissum aðgerðum og
tryggja góða atvinnu fyrir allar
vinnufúsar hendur. Þetta er að
mínu mati hægt, en það kemur
ekki fyrirhafnarlaust á neinu
silfurfati. Þessi mál verðum við
að leysa með eigin frumkvæði,
frumkvæði fólksins sjálfs. Til
þess þarf fyrirvaralausa sam-
stöðu.
„Þetta land á ærinn auð ef
menn kunna að nota hann“. Mér
er fullljóst að þetta gerum við
ekki án þess að taka í þjónustu
okkar í ríkara mæli en hingað til,
auðlindir sem iand okkar býr
yfir. Þar á ég sérstaklega við
vatnsorku og háhita. Við þurf-
um að forkanna alla möguleika
og velja kosti þá sem best horfa
við þörfum okkar og getu. Allar
þessar rannsóknir eru tímafrek-
ar og vandasamar, þess vegna
má ekki sofa á verðinum. Með
markvissu átaki og samstöðu
tekst þetta.
Nú á þessu vori eru liðin þrjú
ár frá því að hafin var rannsókn
á uppbyggingu stórfyrirtækis í
iðnaði hér á Húsavík. Þessar
rannsóknir eru nú komnar á
loka- og ákvörðunarstig. Það
var fyrir frumkvæði heima-
manna að ráðist var í þessar um-
fangsmiklu rannsóknir og veltur
nú á miklu að Þingeyingar sýni
þá nauðsynlegu samstöðu til
þess að mál þetta nái fram að
ganga. Málið er mjög strórt og
þýðngarmikið. Ég hef lýst því
sem skoðun minni að það hafi
ekki minni þýðingu fyrir héraðið
nú en stofnun kaupfélaganna
hafði fyrir hundrað árum síðan.
Með nýtingu raforkunnar úr
vatnsföllum og háhita frá
Þeystareykjum, hafnaraðstöðu
á Húsavík og annarri þjónustu-'
aðstöðu opnast möguleikar
fyrir nægri vel launaðri atvinnu
og góðu mannlífi í héraði okkar.
Þetta verkefni er svo stórt og
heillandi og allir héraðsbúar
ættu að sameinast í því átaki.
Það er slík samstaða sem áður
hefur Iyft grettistaki og aðeins
með henni náum við að tryggja
örugga og hagsæla búsetu af-
komenda okkar hér við þau lífs-
kjör sem þeimber.
„Við verðum að kunna að nota
auðlindir okkar.“
Með traustri undirstöðu þar
sem eru náttúruauðlindir okkar
tekst okkur að grundvalla aðra
nauðsynlega atvinnu hér
í kjördæmi okkar til fram-
búðar. Nýtine þeirra er al-
gjör forsenda fyrir allri annarri
uppbyggingu, svo sem alhliða
þjónustustarfsemi, byggingar-
iðnaði og öðrum smærri iðnaði,
sem á eðlilegan hátt kemur
samhliða og í kjölfar slíks stór-
átaks í undirstöðu atvinnu.
Með aukinni rafvæðingu þarf
að koma stórhuga uppbygging
iðnaðar í öllu kjördæminu. Með
þvf eina móti tryggjum við
atvinnu fyrir unga fólkið okkar.
Það er stórhuga, byggir vandað-
ar og fallegar íbúðir og innbú,
klæðir börnin vel og fæðir. Það á
og verður að lifa með reisn hins
frjálsa manns.
Eyfirðingar verða sem allra
fyrst að taka ákvörðun í
stóriðjumálum sínum. Þar er að
finna lykil að framtíðar velferð
þeirra blómlegu byggða. Með
nútíma þekkingu er hægt að fyrir i
byggja öll mengunarslys. í bygg-
ingu fyrirtækja sem nota orku í
ríkum mæli verður að gæta
fyllstu varúðar og taka tillit til
náttúruverndarsjónarmiða, en
þau mega ekki ráða ferðinni
alfarið. Undirbúningur fram-
kvæmda á svo viðkvæmu lands-
svæði hlýtur að vera tímafrekur.
Þess vegna þola málin ekki
lengri bið.
Allur sá fjöldi ungs fólk, en
búið hefur um sig á Akureyri og
nágrannabyggðum, byggt sér
hús og íbúðir samfara miklum
skuldbindingum, á ung börn og
vill lifa mannsæmandi lffi, þolir
ekki átök við vofu atvinnuleysis.
Þess vegna verður að stíga skref-
ið strax.
Þessi lýsing á raunar við í öllu
kjördæminu. Atvinnuvegir
þess eru einhæfir og flestar til-
raunir til fjölbreytni fálmkennd-
ar og áhrifalitlar. Ef laða á ungt
fólk til búsetu í kjördæminu
verður að taka þessi mál miklu
fastari tökum en gert hefur verið
að undanförnu.
Alþýðuflokkurinn vill leggja
þessum málum lið og er reiðu-
búinn að vera í forystu þeirrar
sóknar.
Unga fólk. Veitið Alþýðu-
flokknum fylgi til þess að svo
megi verða með atkvæði ykkar í
kosningunum 23. apríl n.k.
Húsavík 9. aprfl 1983
Arnljótur Sigurjónsson
ALÞÝÐUMAÐURINN - 5