Alþýðumaðurinn - 28.04.1988, Page 10
10 - ALÞÝÐUMAÐURINN
íbúð óskast
Viljum taka á leigu 3ja herb. íbúð fyrir starfsmann
frá 1. maí nk.
Tryggjum góða umgengni og skilvísar greiðslur.
Nánari upplýsingar gefur Jón Amþórsson í síma 21900.
✓
*
Alafoss hf., Akureyrí.
Sendum launþegum kveðjur
í tilefni 1. maí
Láttu bankann vinna fyrir þig
-ntiPirn fankj
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga í
sumarafleysingar og/eða fastar stöður á
eftirtaldar deildir:
Handlækningadeild
Slysadeild
Bæklunardeild
Skurð- og svæfingadeild
Gjörgæsludeild
Fæðinga- og kvensjúkdómadeild
Lyflækningadeild
Sel (hjúkrunardeild)
B-deild (hjúkrunardeild)
Barnadeild
Til greina kemur að ráða á fastar vaktir. Boðið er upp á
aðlögunartíma.
Óskum að ráða sjúkraliða til sumarafleys-
inga á flestar deildir sjúkrahússins, enn-
fremur í fastar stöður á eftirtaldar deildir:
Lyflækningadeild
Sel (30 rúma hjúkrunardeild)
B-deild (15 rúma hjúkrunardeild)
Barnadeild
Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarframkvæmdastjórar í
síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Earn situr þægilega
uggt í barnabílstól
ið á það skilið!
||UMFERÐAR
1RAÐ
Sendum starfsfólki okkar og
verkafólki um land allt
kveðjur 1. maí
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Kaldbakur __________________________—
Forstjórinn gengisfallni
Þeir sem lagt hafa leið sína til
suðrænna sólarstranda, eða
þá stórborga f Evrópu og
Ameríku, hafa vafalaust ekki
komíst hjá að sjá kúrandi á
götunum vesalinga þá sem
ánetjast hafa heróini eða ein-
hverjum ámóta óþverra, star-
andi út í loftið og blðja grát-
klökkri röddu um eftrið sitt.
Að sönnu eru þeir ekki eins
iangt leiddir sem hinír svo-
kölluðu forystumenn úr
atvinnuiífinu sem nánast á
hverjum degi birtast á sjón-
varpsskjánum okkar. Engu
að síður eru þeír á stundum
harla grátklökkir þegar þeir
eru að biðja þjóðina og
kjörna fulltrúa hennar um
dópið sitt. Þetta dóp hefur
verið hiö mesta böl í íslensku
efnahagslífi hina síðustu ára-
tugi, og er flestum kunnugt.
Nefnist það gengisfellíng.
Einn þeirra manna sem
hvað gátklökkustum rómi
hefur beðið um gengisfelling-
ardóp sítt er vafalaust Guð-
jón B. Ólafsson forstjóri
Sambandsins, og eins og við
var raunar að búast, þá hlaut
það strax hinar jákvæðustu
viðtökur hjá maddömunni (
íslenskum stjórnmálum þeg-
ar forvígismaður Sambands-
ins var annars vegar. Var
reyndar svo mikið talið í húfi
að ástæða þótti til að stefna
suður, í nafni byggðastefnu
auðvitað, liölega hundrað
vöskum sveinum og meyjum
svo fastar mætti þrýsta á um
afgreiðslu bónar Guðjóns B.
og annarra þeirra sem dýrt
vilja dollarann selja.
Guðjón B. Ólafsson hefur
raunar eins og kunnugt er, nú
þegar talsvert náin kynni af
dollaranum, þessum gjald-
miðli sem kvaö víst njóta
sérstakrar blessunar Guðs.
Varð fyrir nokkru talsvert
uppistand út af því er hinn
fyrrverandi forstjóri fisksölu-
fyrirtækis Sambandsins i
Bandartkjunum, nú forstjóri
SÍS rak menn er vildu gera
einhverjar athugasemdir víð
launakjör hans í fyrra starfl.
Einhverjar sættir munu
hafa um síðir tekist í þessu
brottrekstrarmáli, og yfir-
stjórn SÍS mun hafa hlutast
til um það að þessi mál yrðu
rannsökuð, en það er
skemmst frá því að segja að
niðurstöður rannsóknarinnar
urðu þvilikt reginhneyksli
fyrir Sambandið að menn
kusu að halda þeim leyndum
fyrir almenningi sem þó á að
heita eigandi kaupfélaga
þeirra sem Sambandið
mynda. Eínhvernveginn í
ósköpunum lenti þó skýrslan
góða í höndum fréttamanna
Ríkissjónvarpsfns, þar sem
hún varð að heldur betur
beittu vopni í Ijósvakasam-
keppninni.
Það dregur enginn i efa
starfshæfni eða dugnað Guð-
jóns B. Ólafssonar, en hæpið
verður að telja að hann sé
tuttugu og átta meðalmanna
maki. Sé svo er hann einfald-
lega af guðakyni, ekki
manna, og einhvernveginn
finnst manni það nú ekki
beinlínis vera í verkahring
islenskra samvinnumanna
að standa straum af kostnaði
við háskólanám krakkageml-
inganna hans.
Mál þetta verður að teljast
mjög alvarlegt, ekki síst í
Ijósi þeirra aðstæðna sem nú
eru í atvinnu- og kjaramálum
þjóðarinnar. Vissulega var
það sem hér átti sér stað fylli-
lega lögum samkvæmt, en
engu að síður verður það að
teljast t meira lag) siðlaust.
Það hlýtur eiginlega að vera
mórölsk skylda forstjóra
Sambandsins að segja þegar
upp starfi sínu, sóma síns
vegna, og sömuleiðis ætti öll
stjórn lceland Seafood eins
og hún leggur sig að segja af
sér vegna þessa máls. En sú
spurning hlýtur vitanlega
einnig að vakna hvort eitt-
hvað þessu likt eigi sér einn-
ig stað í öðrum íslenskum
sjávarútvegsfyrlrtækjum sem
nú segjast vera á kúpunni.
Þannig er það nú til dæmis
opinbert leyndarmál að
margir eigendur eða forráða-
menn útgerða eða fisk-
vínnslufyrirtækja á lands-
byggðinni hafa jafnvel nýtt
peninga fyrirtækjanna til að
festa ( íbúöarhúsnæði á
Reykjavíkursvæðinu, oft til
að börn þeirra geti stundað
þar framhaldsnám. Þennan
þátt eða þessa hlið byggða-
vandans á íslandi ber að
kanna rækilega, helst áður en
ákveðið er að afhenda sjávar-
útveginum gengisfelllngar-
dóp sitt. Það hefur nú þegar
komið í Ijós að einn forstjóri í
(slenskum sjávarútvegi er
rækilega „gengisfallinn“, þeir
kunna hæglega að vera fleiri.