Alþýðumaðurinn - 17.11.1995, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 17.11.1995, Qupperneq 1
2. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 17. NOVEMBER 1995 JAFNAÐARMANNAFÉLAG EYJAFJARÐAR Bragi Sigur jónsson kvaddur Utför hans var gerð frá Akureyrarkirkju 10. nóvember s.l. að viðstöddu fjölmenni Bragi Sigurjónsson skáld, fyrrverandi ritstjóri Alþýðumannsins, Alþingismaður og ráðherra, lést hinn 29. október og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju hinn 10. nóvember að viðstöddu fjölmenni. Hann fæddist að Sandi í Aðaldal 9. nóvember 1910 og var því rétt tæpra 85 ára að aldri er hann lést. ragi gekk til liðs við Alþýðuflokksfélag Akureyrar 28. nóvember 1942, og var snemma valinn þar til trúnaðar- og for- ystustarfa. Hann var formaður félagsins í sam- tals 11 ár á tímabilinu 1945 - 1958, ritstjóri Al- þýðumannsins í 17 ár frá 1947 - 1964, bæjar- fulltrúi Alþýðuflokksins á Akureyri 1950-1954 og 1958 - 1970, og forseti bæjarstjórnar 1967 - 1970. Bragi bauð sig fyrst fram til Þings 1949, þá fyrir Suður-Þingeyjarsýslu, en tók í fyrsta skipti sæti á Alþingi 1957 sem varaþingmaður fyrir Austur-Húnavatnssýslu. 1967 - 1971 varhann landskjörinn Alþingismaður og þingmaður Norðurlandskjördæmis eystra 1978- 1979. A árunum þar á milli sat hann tímabundið á 7 þingum sem varamaður. 1978 var hann kjörinn forseti efri deildar, en afsalaði sér því embætti vegna ágreinings um stefnu þáverandi ríkisstjórnar. 1979 - 1980 var hann iðnaðar- og landbúnaðarráðherra í minni- hlutastjóm Alþýðuflokksins undir forsæti Bene- dikts Gröndal. Eftir prófkjör í október 1979 varð Bragi að láta yngri manni eftir efsta sætið á framboðslista flokksins hér í kjördæminu. Þau málalok voru með öðrum hætti en hann hefði sjálfur kosið, því þrek hans var óbilað og hann hafði fullan hug á að halda áfram þingmennsku. Eftir það dró hann sig í hlé frá pólitísku starfi, en hélt þó tryggð við sitt gamla félag til æviloka. Eftir Braga liggur geysimikið og margþætt ævistarf, ekki síst á bókmenntasviðinu, því hann var sístarfandi fram til hinstu stundar. Á kveðju- stundu minnast jafnaðarmenn á Akureyri og í Norðurlandskjördæmi eystra hans sem leiðtoga síns um langt árabil og óeigingjarns og óbilandi baráttumanns fyrir sameiginlegum málstað. Eftirlifandi eiginkona Braga er Helga Jóns- dóttir. Alþýðumaðurinn vottar henni og öðmm aðstandendum innilega samúð. Viðbygging risin við FSA Þessa dagana er verið að ljúka uppsteypu á nýrri legudeildar- álmu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Framkvæmdir hófust í júlí í fyrra. Eftir að uppsteypu lýkur verður unnið áfram í vetur að því að smíða þak á húsið. Á næsta ári verða gluggar settir í, húsið múrhúðað að utan o.fl., en skv. verksamningi á verktakinn, S.S. Byggir hf., að skila húsinu af sér fullfrágengnu að utan næsta haust, og er þá lokið því útboðs- verki, sem honum var falið. Nýja álman er rúmir 4.000 fer- metrar að stærð. Á 4. hæð hennar verður bamadeild, kvensjúkdóma- og fæðingardeild verður á 3. hæð, bæklunar- og augnlækningadeildir á 2. hæð og iðju- og sjúkraþjálfun, rannsóknar- og meinafræðideild á 1. hæð. Að auki er mikið rými í kjall- ara, sem væntanlega verður nýtt undir verkstæði og geymslur. Fjármögnunarsamningur Akur- eyrarbæjar og ríkisins um bygging- una, sem undiritaður var í maí í fyrra, tekur einnig til innréttingar barnadeildar á efstu hæðinni, sem á að verða næsta útboðsverk. Vinna við það á skv. samningnum að hefj- ast á árinu 1997 og vera lokið í árs- byijun 1998. Innrétting hinna þriggja hæðanna, sem þá verða eftir, er ekki hluti af samningnum, og hafa engar áætlanir verið gerðar um tímasetn- ingu þeirra framkvæmda. Legudeildarálman er hönnuð hjá embætti Húsameistara ríkisins. Hugmyndir hafa verið uppi um að heimamönnum á Akureyri verði fal- ið að hanna innréttingarnar í húsið, en sú vinna hefur ekki verið sett í gang. Samkeppni um skipulag Naustahverfis Kostnaður er áætlaður 7,3 milljónir. Bæjarstjórn á eftir áó fjalla um tillöguna Skipulagsnefnd og Bæjarráð Ak- ureyrar hafa fallist á tillögu um að efnt verði til opinnar hugmyndasam- keppni um deiliskipulag svokallaðs Naustahverfis, sem rísa mun í fram- tfðinni uppi á Brekkunni sunnan Verkmenntaskóla og kirkjugarðs og ná allt suður að útivistarsvæðinu í Kjarnaskógi. Samþykktin á eftir að fá staðfestingu bæjarstjómar. Gert er ráð fyrir að samkeppnin fari fram samkvæmt reglum Arki- tektafélags íslands og að heildar- kostnaður vegna hennar geti numið 7,3 millj. kr. Áætlað hefur verið að Naustahverfi muni rúma um 2.000 íbúðir, en það em talsvert fleiri íbúð- ir en í Hlíða- og Síðuhverfum sam- anlögðum. Ástæðan fyrir því að lagt er til að samkeppnisleiðin verði farin er sú, að sögn Gísla Braga Hjartarson- ar, formanns skipulagsnefndar, að þama er verið að leggja gmnninn að nýjum bæjarhluta, þar sem nú er nánast ónumið land, og menn vilji vanda fyrstu skrefin eins og kostur er. „Kostnaðurinn við slíka sam- keppni er vissulega mikill, en þegar hann er skoðaður í því samhengi að þetta skipulag á eftir að ráða megin- dráttum í hverfi, sem kosta mun 15 - 18 milljarða þegar allt er talið, þá eru 7,3 milljónir ekki há upphæð,“ sagði Gísli Bragi. Talið er að fyrstu lóðir í Nausta- hverfi þurfi að vera tilbúnar til út- hlutunar 1997 eða '98. Stefnt er að því að niðurstöður samkeppninnar geti legið fyrir í byrjun sumars á næsta ári, og í framhaldi af því verði tekið til við að fínvinna deiliskipulag þeirra áfanga, sem fyrst verður út- hlutað. Nýja legudeildarálman er mikil bygging, sem teygir sig fram á brekkubrún og gnæfir þar hátt Leikskóli fyrir alla krakka Grein um leikskólamál eftir Oktavíu Jóhannesdóttur, varaformann leikskólanefndar Akureyrar Bls.2 „Samstarfið stóðst erfiða prófraun" Viðtal við Gísla Braga Hjartarson, bæjarfulltrúa um meirihlutasamstarfið, ÚA málið og fleira Bls.3 Minninp: Bragi Sigurjonsson Eftir Hrein Pálsson Bls.4 Atvinnuóstandið: Vægur bati ó síðustu mónuðum Grein eftir Finn Birgisson. Bls.5 Ferðin til Murmansk AM-viðtal við Pétur Bjarnason. Bls.7 Laufabrauð Myndir frá laufabrauðsskurði jafnaðarmanna Bls.7 Af vettvangi umhverfismala Grein eftir Jón Inga Cæsarsson Baksíða erfitt að fá menn til að setja milljarð niður í jörðina" Sjá vi&tal við Gísla Braga Hjartarson á bls. 3

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.