Alþýðumaðurinn - 19.12.1995, Blaðsíða 8

Alþýðumaðurinn - 19.12.1995, Blaðsíða 8
8 AIÞÝBUMABURIHH Hvað Gf á Já, hvað ætlar þú að hafa í matinn um jólin og áramótin? A fyrstu búskaparárunum eru gerðar margar mismunandi vel heppnaðar tilraunir og leitað að réttum sem báðum eða öllum í fjölskyldunni finnst lostæti. Þegar tilraunaárin eru liðin og margvíslegar uppskriftir hafa ver- ið reyndar þá eigum við okkur nokkrar pottþéttar uppskriftir sem aldrei bregðast eða valda von- brigðum. Ég ætla að gefa ykkur nokkrar uppskriftir úr safninu mínu. Þið sem reyndari eruð í elda- mennskunni fyrirgefið mér þótt leiðbeiningarnar séu óþarflega ná- kvæmar, en ég er að hugsa um þá sem eru að stíga fyrstu sporin á þessari leið, þau spor voru mér hreint ekki auðveld á sínum tíma og ég er enn ekki búin að gleyma þeim! Vanilluís einfaldur en alltaf bestur. rjóini, !41ítri sykur, 3 matsk. vanillusykur 3 tesk. sléttfullar (ekki vanillu- dropar takk!) egg, 4 stk. Sykur, vanillusykur og eggja- rauður sett í stóra skál og þeytt í létta kvoðu. Rjóminn þeyttur sér og eggjahvítumar einnig stífþeytt- ar sér. Nú er öllu blandað saman í eggjarauðukvoðuna, hrært saman með sleif og síðan hellt í mót og fryst. Þaö tekur aöeins einn 7) virkan aö koma póstinum þínum til skila PÓSTUR OG SÍMI Viö spörutn þér sporin 'SMi hUr,1 flétU bÖlaék mertt ís töhQia ^riHhöýfnéttiKéiriföllDJ !fjet**ýri« íbitýrirtö.vföóm6;te*tövötp 00 IfCr. 104.900,-^tör. ÞRR 5EM GFEÐI OG GOÐ ÞJÓNU5TR ERU í FYRIRRÚMI + + + + + + + + + + + + + * + + + + * + + + + + + + + + + + l^Ö7^Ö--í2öbWötth i1dáífiVél.fflÖtt''ýéPisém,HÍtör vátniö' mtMria éhHmhjUléöSr Ifír. S.49íí,-^t0r. V*Hf fhftiHnfbb ‘625 - "12(k)W6tta!tufbo örrnáöfímmföiaum éstUréffltér ICr. 13.S9ö,'átör. Með ísnum ber ég niðursoðna þykkna hellið þá í skál/skálar og ávexti, eða niðursneidda ferska bætið ananasbitunum út í. ávexti eða rjómakaramellusósuna (Rjómakaramellusósan er líka sem tengdó kenndi mér. góð með þessu). Rjómakaramellu- sósa: Þeyttur rjómi sem heimatilbúnu sýrópi (ísköldu) er bætt út í eftir smekk. Sýróp: Bræðið sykur í pott, en látið hann ekki verða mjög dökkan svo að sósan verði ekki römm, þegar sykurinn er bráðnaður þá hellið heitu vatni yfir og látið sjóða góða stund þar til þetta er orðið að frek- ar þunnu sýrópi. Hellið sýrópinu í stóra glerkrukku og látið kólna. Þetta er eitt af því sem gott er að gera nokkrum dögum fyrir jól og eiga krukkuna tilbúna í ísskápnum þegar á þarf að halda. Brúnaðar KARTÖFLUR Hvemig hefur þér gengið að brúna kartöflur? Hér kemur auðveldasta leiðin. Þú tekur dálítið af heimatil- búna sýrópinu sem þú varst búin að búa til, hellir því í pott og bætir soðnum, flysjuðum kartöflum út í og veltir þeim upp úr sjóðandi sýrópinu um stund, þegar þær eru orðnar fallega brúnar hellir þú smá rjóma út í og lætur þetta sjóða smá stund og málið er leyst. Ananasfrómas stór uppskrift. Ananashringir, heildós egg, 5 stk. sykur, 250-300 gr safi úr 2 sítrónum matarlím, 11 blöð rjómi, Í4lítri Matarlímið linað upp með köldu vatni, sett í skál og brætt með því að hella sjóðandi vatni yfir. Sykurinn og eggjarauðumar þeytt saman í hrærivélinni, sí- trónusafanum og ananassafanum bætt út í. Nú er þeyttum rjómanum og stífþeyttum eggjahvítunum bland- að saman við með sleif og matar- líminu (sem vonandi er orðið hæfilega kalt) er nú blandað út í. Hrærið í skálinni af og til og þegar frómasinn er farinn að Kalkún 1 flaska hvítvín til steikingarinnar 1 kalkún smjör, ca. 100 gr salt innyflin soðin og soðið notað í sósuna. Fylling: 500 gr nautahakk (eða nauta- og svínahakk til helminga) salt svartur pipar úr kvöm merian 200 gr ferskir sveppir brytjaðir egg, 2 stk. rjómi, / lítri Smávegis af rauðri, grænni og gulri papriku, saxað smátt saman við, gerir bæði gott bragð og gleð- ur augað. Þessi fylling er í mjög stóran kalkún þannig að fyrir meðalstór- an fugl má minnka fyllinguna um helming. Það tekur töluverðan tíma að undirbúa kalkúninn og því geri ég það yfirleitt daginn áður en ég ætla að elda hann. Þegar búið er að troða fyllingunni í fuglinn er saumað fyrir bæði hálsinn og „botninn.“ Kalkúninn settur í smurða ofn- skúffu, fuglinn penslaður með smjöri og öllu hvítvíninu hellt yf- ir. Ofnhiti 225 þar til sýður í vín- inu, þá er hitinn lækkaður í 200 . Ausið víninu yfir fuglinn af og til og penslið með smjöri. Ef vökv- inn er allur að gufa upp úr ofn- skúffunni þá bætið sjóðandi vatni saman við. Steikingartíminn er 2 'A til 3 tímar. Sósan er bökuð upp af soðinu úr ofnskúffunni, soðinu af innyfl- unum og rjómablandi. Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu. Gleðileg jól! Aðalheiður Alfreðsdóttir. STÍLL HF - ÓSEYRI 2 - 600 AKUREYRI SÍMI 462 5757 ■ FAX 462 5112 Við erum ótrúlega merkilegir!

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.