Brautin


Brautin - 06.07.1928, Side 1

Brautin - 06.07.1928, Side 1
Ritstjórar: Sigurbjörg Þorláksdóttir. Sími 1385. Marta Einarsdóttir. Sími 571. Brautin. Ötgefendur: N o k k^- a r k o n u r í Reykjavík. Afgreiöslusfmi: 491. 1. árgangur. Föstudaginn 6. júlí 1928. 2. tölublað. Starfið. B □ n □ □ □ □ □ □ □ □ □ E*3 □ E3 □ Stokkabelti af ýmsum gerdum og alt sem tilheyriv upphlut sérlega vandað, með hin hestu meðmæli frá kvennablaðinu Brautin. Jón Sigmundsson & Co. sími 383 Skvautgvipavevslun. Laugaveg 8 □ □ □ □ □ □ □ □ □ E3 □ □ □ Þegar nú fáeinar konur hefj- ast handa, að gefa út vikublað, sem á að fjalla um áhuga- og velferðarmál þjóðarinnar, þá er það eðlilega i þvi trausti að konur um alt land taki blaðinu vel og liðsinni því af fremsta megni. Það er líka ótvíræð skylda okkar, ekki siður en karlmannanna, að hugsa og starfa, ekki sist nú, þegar við höfum fengið mörg og mikií aukin réttindi. T. d. höfum við fengið kosningarrétt og kjör- gengi. En hvernig getum við greitt atkvæði nema að við sé- um málunum kunnugar, svo að við finnum að við höfum breytt eftir bestu sannfæringu. Sumir halda því fram, að kvenfólkið kunni ekki að hugsa, og |>á auðvitað hvorki að skrifa eða halda ræður. Það kann rétt að vera að nokkru leyti, því kvenfólk hefir til þessa tíma tiltölulega lítið gefið sig að op- inberum málum. En að kven- fólk alment liafi minni skyn- semi, sljóari hugsun eða dóm- greind en ltarlmenn, því vil ég ekki trúa. En aftur á móti hef- ir ýmislegt tafið fyrir þroska kvenna og gjört, að þær hafa orðið eftirbátar karlmanna á þessu sviði. Enda hafa þær ekki fyr en á seinni árum haft jafn- rétti við karlmenn að skólura og embættum, heldur ekki haft eins marga frjálsa stund, til að auðga anda sinn, þvi hvers- dagsstörfin taka venjulega upp hverja stund þeirra, einkum til sveitanna. Áður fyr var það jafnvel álitið óviðeigandi að konur skiftu sér af almennum rnálum. En nú, þegar stofnað er blað, sem enginn stjórnmála- flokkur stendur að, blað sem er óháð öðru en því, sem við kon- ur alítum gott og göfugt, þá er það ósk okkar og von, að bæði yngri og eldri konur vakni nú til að hugsa og til að færa hugsanir sínar í búning, og sendi blaðinu „Brautin“ kveðju sína. Þá efast ég ekki um, að við i framtíðinni geturn látið margt gott af þessu samstarfi °kkar leiða, að eins ef konur 11111 alt land vilja rétla blaðinu hjálpandi hönd, og breiða það sem inest i\t um sveitir lands- ins, og með þv{ ag senda því greinar um sín eigin áhugamál °g sveitarfélagsins, sern þær lifa ií. — Barnaheimili fyrir kaupstaðabörn. Foreldrum kaupstaðabarna — einkum Reykjavikurbarna — og hverjum þeim, sem frá al- mennu inannúðar- og þjóðfé- Iagssjónarmiði hugsa um og bera fyrir brjósti heill hverrar uppvaxandi kynslóðar, er það inikið áhyggjuefni og alvöru- mál, að eitthvað sé gert, meira en verið hefir, til þess að sjá fyrir því, að kaupstaðabörnin — einlcum í stærri lcaupstöðum •— eigi kost á því að komast um hásumarið eitthvað burt frá skarkala götulifsins. Þar sem viðurkent er og alkunnugt, að þau verða oft og einatt fyrir misjöfnum áhrifuin og ýmis- konar spillingu, sem inótað get- ur líf þeirra á fullorðins aldri. Oft á mjög óheppilegan og öin- urlegan hatt. Auk þess sem þeim er búið heilsutjón af ó- hollustu götulífsins. Af þessum ástæðum óska 1‘lestir foreldrar þess, að koma börnum sinum i sveit á sumr- in, ef þess er kostur; þar sem líka viðurkent er, að það sé börnunum á margan liátt holl- ara og happadrýgra, bæði fyrir likams- og sálarþroska og fram- tíðarheill. En þetta cr ýmsum erfiðleik- um bundið,* ekki síst í strjál- býlu, vegalitlu landi, þar sem fólkinu fjölgar miklu meira í kaupstöðum en sveitum, eða jafnvel eingöngu í kaupstöðum, eins og hér á sér stað. Og enn- fremur veldur það örðugleikum hér, að flestir eru fátækir og eiga sér fárra úrkosta völ með börn sín, um það sem þeim má til hamingju verða og þjóðinni til heilla í framtiðinni. Þessvegna virðist vera full þörf á þvi, að meira sé gert hér en verið hefir, til þess að koma upp barnaheimilum í sveit fyrir kaupstaðabörn, eink- um hin latækari, eins og gert er í öðrum löndum. Jafnframt þvi sein komið væri upp fleiri og stærri barnaheim- ilum i sveit en áður, mætti jafn- framt gera þau að verklegum og menningarlegum skóla fyrir börnin, sem þar dvelja, með reglubundinni kenslu sem stefn- ir að ákveðnu marki, einkanlega ef þessum heimilum er komið upp sem sjálfstæðum stofnun- um, sem ekki væru háð hentug- leikum þeirra, sem húsnæðið eiga, eins og verið hefir. Og sem settu sér í upphafi ákveðið markmið og takmark barnanna vegna. Hafa mætti til fyrir- myndar á þessum heimilum að- ferðir þær sem unnið er eftir í „Boys and Girls Club’s* ‘i Ame- ríku, og lýst hefir verið nokkuð rækilega í erindinu „Hugur og hönd“ eftir Metúsalem Stefáns- son búnaðarmálastjóra, sem birt var í Búnaðarritinu fyrir fá- um árum, og einnig var gefið út sérprentað og sent öllum ungmennafélögum landsins. Sú starfsemi, sem þar er lýst, er að vísu sniðin við hæfi eldri barna en hér væri um að ræða á barnaheimilum fyrir kaup- staðabörn, sem myndu helst verða á aldrinum 5—10 ára, og auk þess eru hér aðrar ástæður og staðhættir en í Ameríku. Þess vegna þyrfti að breyta til i mörgum greinum, en það virð- ist lika gjörlegt án þess að aðal- tilgangurinn breytist, en hann er sá, að venja unglingana við sveitastörfin, kenna þeim réttar aðferðir og handtök við þau, vekja hjá þeim ást á og virð- ingu fyrir vinnunni og kenna þeiin að meta gildi hennar og sveitalifsins og sveitastarfanna fyrir þjóðfélagið. Má að vísu segja að það standi sveitinni nær að taka upp þessháttar upp- eldisaðferðir til að hæna fólkið að sér — og vonandi gera þær það fyr eða siðar — en það

x

Brautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.