Brautin


Brautin - 13.07.1928, Qupperneq 1

Brautin - 13.07.1928, Qupperneq 1
Riisijórar: Sigurbjörg Þorláksdóttir. Sími 1385. Marta Einarsdóttir. Sími 571. Brautin. Ötgefendur: Nokkrar konur í Reykjavík. Afgreiðslusími: 491. 1. árgangur. Föstudaginn 13. júlí 1928. 3. tölublað. Vængjuðu vonirnar. Vængjaðu vonirnar vorið mitt hlýja; blessaðu börnin þín blómskrúðið nýja. Láttu nú lækina ■ Ijóða um friðinn; sæluna og sumarið — söngfugla kliðinn. Vilja og vísdóminn vígðu með eldi; Ijósburum leitandi lána þitt veldi. Lífgjafi lækna þá líðandi er kalla; bænheyr þú börnin þín, blessa þú alla. Magnús Gíslason. Síðan Brautin hóf göngu sina hafa heyrst ýmsar raddir um hana, sem eðlilegt er. Mest hefir þó kveðið að undr- un livenna yfir því, að blaðið skuli hafa byrjað með þvi að ræða járnbrautarmálið. „Járn- braut —", hvað kemur okkur konunum það mál við? Þvi byrjuðuð þið ekki á einhverju, sem nær lá heimilunum? Það er Jitið kvenlegt að ræða svona mál i kvennablaði, — og — svo er greinin alls ekki eftir ykkur. Nú mun Brautin reyna að sýna konunum fram á nokkr- ar af þeim nauðsynjum sem þetta mál byggist á. í sama blaði — I. tbl. af „Brautin“ —, sem flutti hina ágætu járnbrautargrein. var sýnt frain á með lifandi dæm- um, hver nauðsyn mjólkin er fyrir myndun beina, og hver á- hrif hún, sem fæðutegund, hef- ir fyrir börn, andlega og' likam- lega. Þetta þykir nú mörgum trú- legt, en — að það geti staðið í sambandi við járnbraut. finst þeim ótrúlegt. Allir hafa heyrt getið um Suðurlandsundirlend- ið, grösugasta blett landsins. — Þetta undirlendi hefir verið bætt svo mikið með áveitum úr jökulánum þar eystra. t jökul- vatni er mikið áburðarefni, svo þar er nú alt grasi vafið, þó annarstaðar líti illa út með grassprettu. Á þessuin bletti á að vera hægt að hafa stór og mikil kúabú. Þaðan ætti þvi að koma sú mjólkurlind, sem yrði til að lækka verð mjólkur, svo að hvert heimili gæti keypt hana og notað sem þörf kref- ur, bæði handa börnum og öðru heimilisfólki. Hugsum okkur konu, sem framleiðir afkvæmi og sjaldan eða aldrei smakkar mjólk, sem lifir á kjarnlítilli reitings fæðu, drekkur þar með kaffi eða vatn, sem altitt er. Hvernig á þessi móðir að geta veitt afkvæmi sínu þau efni til næringar og beinabyggingar, sem hún sjálf neytir svo lítils af um með- göngutimann. Ljósmæður hafa oft veitt því ettirtekt, hve mikill munur er á beinabyggingu barna þeg- ar þau fæðast; sum eru stinn og meðfærileg, önnur lin, með brjóskkend bein, þó geta þau verið sæmilega feit og haft fulla lengd og þyngd. Það er auðsætt, að móðirin verður að geta lifað á þeirri fæðu, sem er hin hollasta fyrir byggingu barnsins, geta lifað á mjólk að einhverju leyti. Til heimilisnotkunar verður hún því að fá nægjanlegt af henni, ekki einasta handa þeim börn- um, sein fyrir kunna að vera, heldur og handa þeim full- orðnu. Það er altítt að foreldrarnir neyta sér um flest, til að geta veitt börnum sínuin það; efna- hagurinn ekki svo góður, að þau geti notið þess líka. En það er fleirum en móður og börn- um þörf á þessari hollu fæðu. Fóllci, sem stundar bóklcga iðn, er hún ómissandi. Einnig hin- uin sístarfandi verkamanni. Fyrir nokkrum árum var rætt um það i blaði, sem„ Hvíta- bandið“ í Ameríku gefur út (Hvítabandið er alheims bind- indisfélag), hvaða fæðutegund- ir myndu vera besl fallnar til að draga úr vínlöngun vin- hneigðra manna. Þetta var rannsakað nákvæmlega, bæði á heimilum fyrir vínhneigða menn og víðar. Niðurstaðan varð, að hafra- grautur og mjólk myndu vera þær fæðutegundir, sem róuðu taugakerfið best og væru holl- astar fyrir lifur og nýru, sem breytast mjög við neyslu á- fengra drykkja. Það er sval- andi, auðmelt fæða, sem gefur þó ÖIl nauðsynlegustu næring- arefni. Að sjálfsögðu þurfa all- ir sem þola, að hafa fasta fæðu með. Hér hefir verið sýnt fram á, hvað mjólk er á mörgum svið- um nauðsynleg fæða. Og þá er um að gera að geta náð í hana með sem hægustu og ódýrustu móti. Hún er nú flutt eitthvað lítið eitt til bæjarins á hílum; að vetrinum er það naumast gerlegt. FJutningur með járn- braut hlyti að verða ódýrari, og þar að auki ætti hún að geta gengið austur yfir heiði alt árið. Konura hefir nú að sinni verið sýnt fram á að þetta mál liggur nærri heimilunum, miklu nær en þær hugðu. Þó er þetta ekki nema ein hlið inálsins. — Hugsum okkur nægtir af töðu- gæfum heyjum eystra, sem þeir þurfa alls ekki að nota, en hálf- tómar hlöður hér og þar í sveit- um nærlendis. Myndi ekki þörf á bættum samgöngum til að jafna þar á milli. Augað verður svo vant þvi, sem fyrir það ber daglega, og eyrað líka, svo raaður veitir því naumast eftirtekt, þó járnbraut- arstúfurinn hér pípi eða sé á ferð. En þessum brautarstúf eiga nú Reykvikingar og aðrir að þakka höfnina hérna. Hverj- um hefði komið til hugar að aka öllum þeim ofaniburði og upphleðsluefni, sem í höfnina hefir þurft, á vögnum eða bil- um. Nei, þegar byrjað var á því stórvirki varð að leggja járn- brautarteina frá Öskjuhliðinni á tvær hendur til sjávar, og eftir þessum teinum rennur litla brautin, sem búin er að hjálpa til við þetta þrekvirki. Hún er ábyggilega undanfari annarar lengri og stærri braut- ar. Margt breytist á skömmum tima. Fyrsti simaspotti þessa lands var lagður litlu fyrir aldamót (1889) á milii Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. 1906 var land- síminn opnaður. Hann tengir nú ekki einasta landsbúa sam- an, heldur líka umheiminn. Og hver mundi vilja missa hann? En sögu hans muna margir. Það er erfitt að vera braut- ryðjandi, bæði á hugsjóna- og starfasviði; þakkirnar verða misjafnar, því öfundin, þessi meinfýsis andi, er þar oft á ferli til að ná í mola af heiðr- inum handa sér. Þeim konum, sem finst það lítilmannlegt af okkur, að hafa ekki skrifað þessa fyrstu grein sjálfar, er þvi að svara, að blað- ið Brautin vill vera málgagn jafnt karla og kvenna, og ræða mál án tillits til kynferðis, —■' mál, sem mega til heillp verða. Þetta vildi blaðið sýna strax. Enda hefir það ekki siður von um liðveislu frá körlum en konum. — Að þessu sinni verður elcki rætt uin mögulegleika eða ó- mögulegleika fyrir þvi, að járn- braut komi um landið, víðar en á milli Árnessýslu og Rvík- ur, en benda vill Brautin á, að fyrir rúmum 20 árum byrjuðu

x

Brautin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.