Brautin - 13.09.1928, Qupperneq 2
2
BRAUTIN
xoo»aaoo««H30ocH30»ooa»o
BRAUTIN |
kemur út á föstudögum. — jjjj
Mánaðargjald fyrir fasta á-
skrifeudur er 50 aura; einstök
blöð kosta 15 aura.
Afgreiðsla blaðsins er í húsi
K. F. U. M. Opin kl. 4—7 dagl. S
JOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOC
leiðingar fyrir þjóð vora í fram-
tíðinni. Vér höfum enn engan
undirbúning hafið fyrir því,
hvernig vér skulum haga oss
þegar sambandslögunum verð-
ur sagt upp. Þó er eitt víst, að
hvort sem skilnaður verður eða
samband framvegis, þá mun
það vilji allra landsmanna að
vér tökum að oss uianríkismál
vor að meira eða minna leyti.
En til þess að það megi verða,
þurfum vér að vera búnir að
undirbúa það og kynna oss sem
best framkvæmd slíkra mála.
En það getum vér á engan hátt
betur, en með þvf, að setja nú
þegar á stofn sendiherra- eða
viðskiftaherraembætti í London,
þar sem sendiherra vor gæti
kynst sem best öllum utanríkis-
málum eins og þau eru fram-
kvæmd hjá stórþjóðunum. Með
þessu móti stöndum vér aðöllu
leyti betur að vígi þegar vér
eigum algerlega að standa á
eigin fótum i þessum málum,
því slíkt verður ekki lært alt í
einu. Reynslan er þar besti
kennarinn.
Þess vegna rekur enn að því
sama, sendiherrann á að vera i
London en ekki í Höfn.
Hér hafa verið færðar fram
aðalástæðurnar fimm fyrir nauð-
syn þess, að sendiherraembætt-
ið i Höfn sé lagt niður, en
sendiherra eða viðskiftaráðherra
sé búsettur i London og gæti
þar hagsmuna íslensku þjóðar-
innar á öllum sviðum.
Islendingar hafa ekki ráð á
þvi að vera að kasta 60 þús.
kr. í sendiherraembætti í Höfn,
sem lítið gagn er að. En þeir
hafa enn siður ráð á þvi að
eyða stórfé vegna þess, að þeir
hafa ekki sendiherra þar, sem
veruleg þjóðarnauðsyn og þjóð-
arhagur krefst þess, að vérhöf-
um duglegan og framtakssam-
an, islenskan mann, sem i hví-
vetna gætir hagsmuna þjóðar-
arinnar.
Brautin vill því að breyting
sú, sem hér hefir verið nefnd,
fari fram þegar á næsta þingi,
þvi bið er þjóðarskaði.
A: Þér viljið þá fullyrða að
þér séuð meiri maður en ég.
B: Já, það gjöri ég.
A: En, það eruð þér ekki,
þér eruð alveg það sama og ég;
þér eruð reglulegur asni.
Eyöibýlið.
Eftir Ingveldi Einarsdóttur.
Niðurlag.
Blessuð sé minning þeirrar
ágætiskonu, hún átti skilið að
vera elskuð og virt af öllum
sem henni kyntust. Og hún var
það af mörgum, en þó voru
sumir, sem fanst lítið til um
hana þótti hún vera gamaldags,
durnaraleg, og að yfir henni
lægi einhver barndómsandi, og
lá við að ungl fólk henti gaman
að orðatiltækjum hennar. Ég
hékk þar aftan í áður en jeg
kyntist henni persónulega.
ÓI hvað við máttum skamm-
ast okkar. Ekkert okkar nær
þangað nokkru sinni, sem hún
hafði hælana. En við vorum
einfeldningar og vissum ekki,
að þarna var kóngsdóttir i á-
lögum. Hún var barn sins tíma
og gat ekki fylgt með nýja tim-
anum, en hún hefndi sín með
því, að bregða yfir hann álaga-
ham gamallar konu, sem nú
þótti tötralega eða álappalega
klædd, þótt búningur sá, er hún
bar, þætti snotur á æskuárum
hennar. Allskonar breytingar láu
i loftinu: Faldbúningurinn gamli
lagðist niður, og nýja skautið
kom í staðinn, skotthúfan hækk-
aði upp í hársrætur og settist
loks á hvirfilinn. Karlmennirnir
breyttu lika um búning. Silfur-
bneptu stutttreyjurnar hurfu, og
komu í staðinn jakkaföt með
samlitum knöppum.
Petta fanst gömlu konunni síst
til batnaðar og kallaði það heig-
ulshátt og apaspil að elta tískuna
í þessum hlutum. Áttu dætur
hennar stundum í vök að verj-
ast, þvi þeim var bæði ljúft og
nauðsynlegt að klæða sig nokk-
urnveginn eins og annað fólk.
Og það var fleira en klæðnaður-
inn, sem breyttist. Framgjarnir
æskumenn þráðu breytingar,
þeir litu með fyrirlitningu á
flesta siði feðra sinna. Dansk-
mentaðir uppskapningar frá
kaupstöðunum kendu fólki að
að líta smáum augum á sína
eigiu þjóð. Vesturheimsagentar
ólu á óánægjunni, og margir
meðal hinna efnilegustu manna
yfirgáfu land sitt alveg. Versl-
unin breyttist til hins betra, en
það gat gamla konan í dalnum
ekki skilið. »PeningaversIun, það
væri ef til vill gott« sagði hún,
»ef fólk kynni með að fara, en
til hvers ætli það verði, nema
til þess, að meira verður keypt
af óþarfanum«. Eða þegar »Þjóð-
ólfur« fór að ræða bankamál;
ekki sást hún oft við blaðalestur,
en ég furða mig á því nú; hve
vel hún setti sig inn i þau mál
»Það sannast«, sagði hún, »að
ef þessi banki kemst á, þá
verður það til þess að óráðssiu-
menn taka þar lán út á óðul
æ
X
X
>.<
y>.
>.<
s<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
Belti, millur, beltispör og alt annað kven-
silfur er best að kaupa í
Gullsmiðjunni „MálmeY** Laugaveg 4
Reykjavík.
Vörur sendar gegn póstkröfu, hvert á land sem óskað er.
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
y<
>.<
feðra sinna, og sóa svo út pen-
ingunum í tóman óþarfa, en
jarðirnar standa fastar i þessum
góða banka, og hann leigir þær
út með afar kostum«.
Æskuheimilið var hennar
kærasta umtalsefni. Það var
gaman að fylgjast með henni
um vorlöndin hennar. Ég sé
enn i huganum margt er hún
sagði mér um kaupstaðarferðir,
grasaferðir, gestakomur og fl.
Var henni einkum minnisstætt
er mentamenn heimsóttu föður
hennar, og hún hélt sér vak-
andi fram á nótt til að hlýða
á tal þeirra.
Fróðleiksmolar sem hún náði
i, voru hennar líf og yndi.
Náttúrufegurðin með öllum sin-
um tilbreytingum var leiksystir
hennar fram á elliár. Margan
klettinn, hólinn og dalinn sá eg
fyrst með hennar augum.
Um sjálfa sig talaði hún fátt,
var eins og öll hennar langa
barátta fyrir búi og börnum
væri varla umtalsverð. Hún var
ein af þeim konum, sem var
sjálfkjörin ljósmóðir þótt ólærð
væri, og var mér sagt að hún
hefði tekið á móti mörgum
börnum, og altaf farnast vel.
Aldrei heyrði ég hana minnast
á það.
Oft bar það við að aðkomu-
menn mintust á, að miklu starfi
væru þau hjónin búin að af-
ljúka að koma svo mörgum
börnum fram yfir ósjálfbjarga-
aldur. Ég man hve þá lifnaði
yfir gamla manninum — en
hún lét sér fátt um finnast:
»Manni er ætlað þetta aí for-
sjóninni« sagði hún. —
— »Ójúl með því arna slrið-
inu og baslinu hefir maður,
með guðs bjálp, komist af án
sveitar«. ketta sagði hún í
vonbrigðaróm, eins og hún
vildi segja: Minna gat það
varla verið!
Þessar framanskráðu endur-
minningar voru í fyrstu eigi til
þess ætlaðar að koma fyrir al-
menningssjónir, skortir og mik-
ið á, að þær séu fullnægjandi
frásögn um Eyðibýlið og ibúa
þess. Nöfn hafa ekkert gildi
fyrir ókunnuga og er þeim því
slept hér, en þeir sem til þekkja,
munu kannast við bjónin í
dalnum. Börn þeirra hjóna eru
flest dáin, en afkomendur þeirra
búa viðsvegar, bæði hér á landi
og erlendis. Væri vel ef einhver
sem betur veit, vildi fylla í
skörðin og semja gleggri sögu
um þennan litla, en eigi ó-
merkilega þátt, úr baráttu bænda
fyrir lífi sínu og sinna.
Eyðibýlið liggur enn bygt og
blómlegt móti sólu, og líklega
kunna börnin enn að nota sér
»steinkirkjuna« við litla lækinn.
Heimsstjórnin.
Eftir dr. Artnie Besant.
Lausl. þýtt af H. Á.
Framh.
Nyr kynþáttur.
Vér lifum á byltingat.ímum,
og því er það, að heimurinn
hefir nú betri framfaraskilyrði
en nokkru sinni áður. Næsta
skref verður í áttina til eining-
fir. Vér erum að byrja vegferð
upp hinn mikla þroska-stiga.
Þrepin, sem eru fyrir neðan
oss, eru gjörð úr göllum þeim
í fari voru, er vér þegar höfum
sigrað. Nýr kynþáttur er að
fæðast í öllum löndum, en er
þó einna fjölmennastur i Ame-
riku. Þessi nýi kynþáttur læt-
ur sig litlu skifta margt það,
sem eldri kynslóðin hefir í há-
vegum haft. Einingar-hugur og
einingar-kend eru aðal einkenni
hins nýja kynþáttar. Lif, í
sannleika líf, er markmið hans.
Eining er kjörorð hans. í
skýrslum þjóðfræðiskrifslofunn-
ar í Wasington er getið helstu
líkamseinkenna þessa nýja kyn-
þáttar. Þar er honum gefið
nafnið „Ameríkanar".
Alstaðar í heiminum verðum
vér vör vaxandi einingar, vax-
andi þorsta eftir sönnu lífi.
Kynsmunur fer minkandi, sam-
vinna hefst með ólíkum stétt-
um, þar sem sundrung og
flokkadrættir áttu sér áður
stað. Hvort sein orsakirnar
stafa frá þjáningum eða nauð-
syn, verður því þó ekki neitað,
að' heimurinn þokast í rétta átt.
Mótstaðan er enn mikil, ávext-
ir hcnnar gcta aldrei orðið ann-
að en eynul og bágindi um
stundarsakir, en skaðinn gerir
menn hyggna. En komist visk-
an lil valda, verður unnið að
eining meðal stétta, og þjóða,
þar til alt mannkyn er ein stór