Brautin


Brautin - 04.10.1928, Blaðsíða 2

Brautin - 04.10.1928, Blaðsíða 2
2 BRAUTIN föt og glatt þau með jólatré og kent litlu stúlkunum handa- vinnu í mörg ár. Stofnuðu þær 1906 fyrsta barnauppeldissjóð- inn hér á landi með 500 kr. gjöf frá bazarnum. Pessi sjóður óx hröðum skrefum, og á 50 ára afmæli Thorvaldsensfélags- ins afhentu félagskonur Reykja- vikurbæ fímmtíu [þúsund krón- ur sem stofnfé til að byggja og starfrækja heimili fyrir munað- arlaus börn, Hefir bærinn enn ekki séð sér fært að framkvæma þetta. Thorvaldsensbazarinn heldur enn áfram, og Thorvaldsensfé- lagskonur vinna með sömu ó- eigingirni að því, að safna fé til hjálpar munaðarlausum born- um. Núverandi stjórn félagsins, þær frúrnar Franziska Olsen, Rósa Þórarinsdóttir, Sigríður Sighvatsdóttir, Ragnh. Gislason og Ágústa Ólafsdóttir, réðust í það í samráði með félagskonum að breyta sölubúð Thorvald- « sens-bazarsins á síðastliðnu vori, búðin er nú miklu vistlegri en áður. Vonandi útrýma islenskar konur að einhverju leyti hinni gifurlegu innfluttu prjónavöru, þvi auk sokkanna fyrir 340 þús. kr. árið 1926, voru fluttar inn sama ár ýmsar ullar-prjónavör- ar, sem námu 11 þús. kg. að þyngd fyrir 193 þús. 333 kr. — Væri mjög æskilegt að skóla- börn gengu i sokkum og með belgvetlinga úr islensku bandi. Enn fremur ættu sjómennirnir islensku ingöngu að nota heima- unna sokka og sjóvetlinga. Mætti minna á i þessu sam- bandi, að hver peningur er þjóðinni tapaður, sem fer út úr landinu. Thorvaldsens-félags- konurnar hafa jafnan gert sitt til, að peningarnir væru i landinu, og hjálpað mörgum iðnum hönd- um með andvirði fyrir tóm- stundavinnu. Væri vel að allir góðir Islendingar vildu hjálpast að í þvi þjóðræknisstarfí. Barlómuriim (kafli úr bréfl frá ísl. erlendis). Á hveiju vori kveður við um næturfrost og lambadauða, hverju sumri um grasleysi, hverju hausti um hey sem hafí orðið úti og skemda garðávexti, hverj- um vetri jarðbönn og umhleyp- inga. Ég held að þetta sé eitt af stórmeinunum heima. Menn segja að nafnið lsland spilli fyrir Iandinu, og er það ef til vill ekki fjarri sanni. En helmingi meira spillir þessi óslitni bar- lómsjarmur, sem ár og síð gnauðar frá íslandi. Einhver, sem áhrif hefir, ætti að taka ofan í blöðin og þjóðina fyrir þetta. t Frú Guðrún Kristín Sigurðardóttir. Fcedd 16. desembcr 1871. — Dáin 17. ágúsl 1928. Liðinn er dagur, lokið er starfi, sígin er sól og sest til hafs. Pörf var á hvild þregttri mund eftir unnið örðugt dagsverk. Autt er öndvegi orðið þitt, enn er skarð fgrir skildi höggvið. Sakna þin vinir er sjá þér á bak, kcefir klökkvi kveðjuorð. Varst þú vinum og vandamönnum verndari, móðir og vegbeinandi. Pó löngum á leið legði skugga, bar jafnan birtu frá brosi þinu. Oft við örðugt áframhald þurfti þrek, þor og vilja. Hélst þú hólmi og hopaðir ei, búin hugbrýði og brgnjuð trú. Lifir minning þótt moldu hgljist liðið Itk og leiðir skilji. Pökk fgrir samfglgd og sýnda ást, göfuga sál ver þú guði falin. S. S. Heimsstjórnin. Eftir dr. Annie Besant. Lausl. þýtt af H. Á. Niðurl. Ný heimsmenning. Mannkynið stendur á kross- götum. Svo hefir því ætíð verið farið, þá er nýtt inenningar- tímabil hefir byrjað. Sé haldið beint áfram, verður tortíming óhjákvæmileg afleiðing valda- fíknar og eigingirni þeirrar, sem nútíðar menningunni fylgja. Mannkynið hefir þroskast stig af stigi uns það komst á það menningar- og þroskastig, sem það nú stendur á. En um nýja leið er að velja. Hún er sú, að umsteypa, án byltingar, núver- andi ástandi og byggja upp menning, sem reist sje á nýjum skilningi á lögum lifsins, þeim skilningi, að allir séu bræður og börn hins sama föður, og að óeigingjörn þjónusta í annara þarfir sé það eina, sem bygt geti upp varanlega heiinsmenn- ing. Þá er sá skilningur er al- mennur orðinn, að lífsins æðsta lögmál sé fórn og að hinn besti sé hæfastur til að stjórna, fer mannkynið hröðum skrefum í rétta átt. Sérstaða bresku þjóðarinnar í heimsþróuninni. Nú vil ég spyrja: Hvert verk- efni er Bretum ætlað að inna af hendi í heiminum? Verkefnið er augljóst og möguleikarnir að vinna það fyrir hendi. Engin þjóð í heiminum hefir slíka möguleika, þar eð Bretar hafa tekið sér bólfestu í ölluin álf- um heimsins, og þar eð tungu- mál þeirra er talað í öllum bréskum nýlendum. Verkefni Breta er það, að stofna lýðveld- isbræðralag með öllum þjóðum, án nokkurs tillits til þjóðernis, trúarbragða, litarháttar eða nokkurs þess, sem nú er talið ósamrýmanlegt. Vilji Bretland gefa öllum sambandsþjóðum sínuin fult jafnrétti við sig, svo að engin þjóð sé annari undir- gefin, mun myndast alþjóða bandalag, sem reist er á bræðralagi, jafnrétti og einingu. Gangi breska þjóðin á undan öðruin þjóðum í þessu, mun heimurinn brátt verða heim- kynni frelsis og farsældar, þar sem réttlæti, friður og fögnuð- ur ríkja. Gagnfræðaskóli Reykjavíkur. MentabanDÍð illræmda hetir orðið til þess, að góðgjarnir og mentaelskandi Reykvikingar hafa lagt að sér að reyna að koma á fót dálitlum vísi til gagnfræða- skóla hér í Reykjavik. Fá þar aðgang jafnt sveitapiltar og sveitastúlkur sem kaupstaðar unglingar. Alþjóðar þakkir eiga þeir menn skilið sem gengist hafa fyrir þessu, þegar sjálf stjórnin var búin að leggja al- gerlega árar í bát. Pað er von allra góðra manna, að blessun fylgi þessu þjóðþrifa starfi og . það megi verða nemendum til gæfu og gengis. Skólinn var settur í gær og er hr. Ágúst Bjarnasou prófessor formaður bans. Það kraftaverk getur jafnvel skeð enn, að ill verk geta snúist til góðs. THERMA straujárn á að vera til á hverju heimili. — Fæst hjá Júlíusi Björnssyni. Raftækjaverslun Austurstræti 12. MuniO að ávalt er best m að kaupa ■ KARLMANNAFÖTI FATABÚÐINNI. [ Járnbrautir á Islandi. Pórhallur Bjsrnason biskup skrifar í Nýtt Sirkjn- blað 1915: »Hafí bann sæll gert, Jón lands- verkfræðingur, að hamra á járn- brautarfælninni frónsku. Svona er spurningin rjett upp borin: »Er nokkurt vit i þvf, að leggja ekki járnbrautir um Ísland«. Þoli landið ekki járn- brautir, þolir það ekki siöaðra manna bygð. Það hefði verið nógu kyndugt að varðveita ls- land sem eilífa fornleif: Auð- vitað ómögulegt. En hugsa má það og hugsunin I sjálfu sér ekki svo óskemtileg. Mikið blessunarlega værum við þá lausir við margtl Ekki værum við þá þessar hundrað sálir, í torfbæunum Seli, Reykja- vik, Hliðarhúsum, Arnarhóli og Rauðará, og jafnmörgum eða fleiri hjáleigum, með áhyggjum út af kolaleysi og siglingabanDÍ til Englands. Hér væru ekki önnur hús en sjálfhitaðar bað- stofur, og ekki öunur skip, en fjögra manna förin eða svo og sæi böndlunin fyrir veiðarfær- um og guð fyrir góðu veðri. Engir væru víxlarnir að ama manni, því engir væru bank- arnir. Og litstjórarnir ættu náð- uga daga, því að þeir væru ekki til. Væri prentsmiðjum hvað sfst vært i sliku Gósenlandi.

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.