Brautin


Brautin - 19.10.1928, Qupperneq 1

Brautin - 19.10.1928, Qupperneq 1
Ritstjórar: Sigurbjörg Þorláksdóttir. Sími 1385. Marta Einarsdóttir. Sími 571. Brautin (Jtgefendur: Nokkrar konur í Reykjavík. Afgreiðslusími: 437. 1. árgangur. Föstudaginn 19. oktober 1928. 17. tölublað. J árnbrautarmálið. Ný tillaga. ®) © m m m m m m m m m m m Söðlasmíðabúðin Sleipnir Laugaveg 74. Sími 646. Hnakkar, söðlar, kliftöskur, hnakktöskur, handtöskur, skólatöskur, bakpokar, seðlaveski, skjalatöskur, peninga- buddur, axlabönd, Iegghlífar, handkofort — stór og smá — Allskonar ólar, og allir varahlutir til söðla og aktygja- - smíðis. Beislisstangir, ístöð, svipur, keyri, járnmél o. m. fl. Sérstaklega er mælt með spaðahnökkum, með ensku lagi. Bíladúkur og bílagler í heildsölu. Ágætir erfiðisvagnar, mjög ódýrir, útvegaðir með tiltölulega skömmum fyrirvara. — Fyrir söðlasmiði: Leður og skinn hnakk og söðul- virki, dýnustrigi, hringjur og alt efni til akfygja ásamt mörgu fl. Aðgerðir afgreiddar fljótt og vel. Fyrsta flokks efni og vinna. Pantanir afgreidar um land alt. SOÐLASMIÐABUÐIN Laugaveg 74. SLEIPNIR Sími 646. Heildsala. E. KRISTJANSSON Smásala. m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m Samskota-tillasra stjórnarinnar. í »Tímanum« 30. júní þ. á. er geið grein fyrir aðstöðu stjórnarinnar í járnbrautarmál- inu. Að vísu er þar að eins einn úr stjórninni sem ritar undir nafni. En þar sem grein- arhöfundur er einn aðal-maður stjórnarinnar má ganga að því sem vtsu, að hann hefir, eins og vera bar, borið fyrst og fremst tillögu sina undir meðstjórnend- ur sína og fengið samþykki þeirra um stuðning við hana. Pví það er talin sjálfsögð kur- teisis-skylda ráðherra, að gripa ekki fram fyrir hendur með- ráöherra sinna í stórmálum, sem stjórnina getur varðað miklu að viturlega sé á haldið. I*að verður því að ganga út frá því sem gefnu, að hjer sé mörkuð aðstaða stjórnarinnar 1 málinu í stórum dráttum. Enda dytti engum í hug að ræða tillögu þessa í alvöru, ef ekki væri álitið að stjórnin öll stæði hér á bak við. Það, sem tillagan fer fram á, er sem hér segir: Stofna skal járnbrautarfélag, til að fræða menn yfirleitt um þörf og þýð- ingu járnbrautarinnar, með því að eyða hleypidómum og ástæðulausum mótþróa. í öðru lagi að Sunnlendingar sýni trú sina í verkinu, með því að safna með frjálsum samskotum l1/*— 2 miljón króna framlagi, og tel- ur stjórnin að þegar slík frjáls samskota-upphæð sé fengin, »muni þjóðfélagið alt væntan- lega telja sér skylt að láta falla niður gamla hleypídóma og sér- gæðingsskap í málinu, 0g því mundi skjótt hrundið f fram- kvæmd«. Svo mörg eru þau óviturlegu orð stjórnarinnar í stærsta sam- göngubótamáli Sunnlendinga, og mundu flestir telja þessa tillögu fullkomið rothögg á málið fyrstu 30—50 árin, ef hér væri látið staðar numið. Myndi varla nokkur fjandmaður járnbrautar- málsins hafa getað komið með öllu banvænni tillögu í málinu, þó allur hefði verið af vilja gerður, en þessa samskota- tillögu stjórnarinnar, svo hroða- fengin er hún og óviturleg. Stjóruin telur þetta fram- kvæmanlegt og vfsar til Krist- neshælis-byggingar Eyfirðinga, og hve samskot til hennar hafi gengið greiðlega. Það þarf auð- vitað ekki fyrir greinda menn að lýsa þeim mikla aðstöðumun sem hér er, Hann er svo aug- ljós. Annars vegar tiltölulega smá upphæð, hins vegar meir en miljónar upphæð. Annars vegar mannúðarmál, sem eng- inn hreyfir mótmælum gegn, bins vegar stórmál, sem á sér langa og erfiða þroskaleið, en sem enn á við harðvítuga og eitraða andstöðu að berjast. Annars vegar mál, sem vekur alstaðar hlýju og aðdáun, hins vegar mál, sem getur vakið megnustu öfund annara, og jafnvel hatur. Annars vegar mál sem öll blöð styðja af alefii, hins vegar mál, sem að minsta kosti sum útbreidd blöð reyna að spilla fyrir af öllum mætti. Og loks annars vegar mál, sem »hviti dauði« hrindir á eftir með óstöðvandi afli, hins vegar mál, sem framfaramenn einir skilja til hlítar. En hér við bætist svo, að þeir sem hvað mest not eiga að hafa af járnbrautinni fyrsta kast- ið, austanbændur, eru sokknir á kaf í skuldir og fátækt flestir hverjir. Og hvernig í ósköpun- um ættu þeir að geta lagt fram með frjálsum samskotum nú, sem stendur, þessa upphæð eða sinn hluta af henni. — Nei, þessi tillaga stjórnarinnar er ekki rétt og getur ekki náð fram að ganga. Allir, sem til almennra samskota þekkja, vita að það kostar mikið erfiði að ná saman, þó ekki sé nema 50—10000 krónum með frjálsum samskotum. Auk þess sem það tekur óra tíma. Nei, hér verður að finna annað ráð, annars er málið dauðadæmt að minsta kosti um tugi ára, eftir þvi sem best verður séð. lý tlllag-a. Ekki samskot lieldur samábyrgd. En þó að samskota-tillaga stjórnarinnar sé óframkvæman- leg, er rétt að athuga vandlega, hvað liggur á bak við þessa tillögu stjórnarinnar og hvort það eigi við rök að styðjast eða ekki. Það, sem mér skilst að liggi á bak við tiliögu stjórnarinnar, er þetta: Stjórnin treystir sér ekki til að koma járnbrautar- málinu fram, nema þeir, sem mestan hag hafa af járnbraut- inni, SunnlendÍDgar, komi með framlag, sem svarar til 1 miljón eða IV* miljón króna. Sunnlendingar mega því ekki vænta þess, að fá neina full- komna samgöngubót austur á Suðurlandsundirlendið, nema að leggja fram eða útvega þessa upphæð. Þeir eiga því það við sjálfa sig, hvort þeir fá nokkuð eða ekki neitt. Ég hygg að stjórnin hafi mikið til síns máls, að það verður erfitt að fá meiri hluta þingmanna til þess að sam- þykkja járnbrautar-lagninguna, og að ríkið kosti hana að öllu leyti, þó það sé að réttu lagi skylda þess og Sunnlendinga- fjórðungur ætt þetta fyililega skilið, þar sem hann hefir lagt langdrýgstan skerf til ríkissjóðs um alllangt skeið. Einkum er þetta erfitt, þar sem stjórnin virðist ekki vilja eða ekki treysta sér, að nota áhrifavald sitt i þinginu til að knýja þetta áfram með rögg- semi og skörungsskap. En þá er að finna leið, sem gerir Sunnlendingum fært, að leggja fram þetta fé eða útvega það þegar í stað, svo hægt sé að byrja á brautinni sem fyrst. Og því vil ég bera fram þá til- lögu, sem hér segir: Framlagið — 1 miljón eða l1/* miljón krónur — skal feng- ið hjá bönkunum eða fyrir til- stilli þeirra, gegn trgggingu í forgangshlutum járnbrautarinnar sem þessari upphœð nemur, og gegn samábgrgð allra ibúa Sunnlendingafjórðungs. — Þessi trygging ætti að vera svo mikil, að það ætti að vera leikur einn að fá þegar í stað það fé að láni, sem stjórnin krefst að lagt sé fram, hvort sem það er 1 miljón eða 1VS miljón. Ef einhver halli yrði af þess- um forgangshlutum, ætti að vera heimild til að bæta hann upp, fyrst og fremst með ólagi á þær jarðir eða sveitarhluta, sem mestu notin hefðu af járn- brautinni, eða með verðhækk- unarskatti á þeim löndum og jörðum, í sveitum og kaupstöð- um, sem járnbrautin einkum kæmi að gagni. Því það er allra álit, sem til þekkja, að járnbrautin myndi hækka stór- kostlega verðmæti þeirra eigna og lóða, sem næst lægju braut- inni. Samábyrgðin hefði þann mikla kost, að með henni er óbata- vænlegur rekstur brautarinnar orðinn beint hagsmunamál allra Sunnlendinga, og gæti það mjög ýtt undir það, að þeir notuðu sem mest járnbrautina til flutn- inga, þar sem hægt væri að koma því við, að öðru jöfnu. En með því er áhættan á ríkis- rekstri járnbrautarinnar stórum minni. Samábyrgðar-tillagan hefir þann höfuðkost fram yfir sam- skota-tillöguna, að með henni má útvega nauðsynlegt fjár- magn strax. Og þar með hefja framkvæmdir í málinu þegar á

x

Brautin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.