Brautin


Brautin - 02.11.1928, Qupperneq 1

Brautin - 02.11.1928, Qupperneq 1
Ritstjórar: Sigurbjðrg Þorláksdóttir. Sími 1385. Marta Einarsdóttir. Sími 571. Brautin. Útgefendur: Nokkrar konur í Reykjavík. Simi: 491. 1. árgangur. Föstudaginn 2. nóvember 1928. 19. tölublað. Ókeypis lögffræðisaðstoð fyrir efnalaust fólk. Brunatrygsingar sími 254. SjóvátrYSSÍngar sími 542. Áður en fast ríkisvald komst á f ýmsum löndum og áður en skipulagsbundin þjóðfélög mynd- uðust, varð einstaklingurinn að taka rétt sinn sjálfur. Þá var það undir likamlegum styrkleik eða viti hvers einstaklings kom- ið, bversu mikils réttar hann gat aflað sér og haldið honum. Þá var ekki um rétt að ræða i nútíma merkingu, heldur aðal- lega hluti til neyslu notkunar eða skrauts. Afstaöa einstakli g- anna hvers til annars var mjög lík því, sem á sér stað meðal rándýra. Sá sem sterkastur var undirokaði jafnan þann sem var honum minni máttar. Petta á- stand hefir oft verið kallað allra stiíð gegn öllum, á latínu »omn- ium bellum contra ommes«. Petta ástand hafði auðvitað oft og einatt í för með sér mikla eyðileggingu verðmæta og gerði það að verkum að einstakling- urinn gat aldrei verið öruggur um sig og eignir sinar. Þessir annmarkar urðu til þess, að fleiri og fleiri sameinuðust í bandalag, sem settar voru á- kveðnar reglur fyrir og fórnaði einstaklingurinn þannig algjöru sjálfstæði sínu, til þess að öðl- ast meira réttaröryggi og tóku bandalög þessi ýmsum breyting- um og fulikomnuðust, þar til skipulagsbundið þjóðfélag með alsherjar rikisvaldi, eins og það kemur fram nú á dögum, mynd- aðist. Það getur vart orkað tví- mælis, að ríkisvaldið er til fyrir einstaklinginn, enda er æðsta skylda þess að gæta laga og réttar í landinu, þannig, að ein- staklingurinn njóti settra laga og að honum sé borgið. Til þess að verða réttar síns að- njótandi verður einstaklingurinn oft og einatt að fara eftir viss- um reglum, ýmist að framkvæma eitthvað og þá stundum á á- kveðinn máta eða láta eitlhvað ógert. Hvað gera skal í hverju falli eða láta ógert eiga þeir að yita, er lögin þekkja, lögfræð- ingarnir, Qg til þeirra snýr al- menningur sor eðlilega, þegar váfi leikur á um eitthvert atriði, eða viðkomandi getur ekki sjálf- ur klætt erindi sitt í þann bún- ing er með þarf. Málflutnings- menn þurfa að fá borgun fyrir störf sín og hefir efnalaust fólk varla efni á þvi að leita ráða til þeirra. Afieiðingin af þvi verður oft sú, að fátæklingarnir og munaðarleysingjarnir verða ekki réttar sins aðnjótandi. 1 ýmsum löndum hefir því verið unnið að því, að hafa skrif- stofur er veita efnalausu fólki ókeypis lögfræðisaðstoð. Þetta á sér sérstaklega stað í stórum bæjum og stendur þá oftast eitt- hvert félag manna að stofnun slíks fyrirtækis og hefir það stundum reynst svo vel að ríkis- stjórnirnar hafa fundið ástæðu til þess að greiða fyrir starfsemi þessari með fjárframlögum. Ég leyfi mér í þessu sambandi að benda á dæmi frá Kaupmanna- höfn. Árið 1885 stoinaði félag stúdenta í Kaupmannahöf, er kallast »Studentersamfundet«, slíka hiálparstarfsemi fyrir efna- laust fólk, sem hér er um að ræða. Kostnaður við starfsemi þessa var upprunalega greiddur af gjöfum, er inn komu frá stofnendunum og öðrum þeim, er voru fyrirlækinu hlyntir. Svo er og að mestu leyti enn þann dag í dag, þó hefir ríkis- og bæj- arsjóður veitt starfseminni styrk síðan árið 1895 — 1896. Starfsemi þessi heitir »Studentersamfun- dets Retshjælp for Ubemidlede« Og kallast alment »Retshjælpen«. Hún hefir leyst mjög gott og mikið starf af bendi í Danmörku og hefir aflað sér almennrar viðurkenningar. Kostnaður við starfsemina er tiltölulega mjög lítill, sem aðallega stafar af því, að fjöldi lögfræðinga í höfuð- staðnum, þar á meðal margir málfærslumenn, veita starfsem- inni ókeypis aðstoð. Stúdentar, er lesa lögtræði og ungir kandi- datar, vinna oft og tiðum mikið í þágu starfseminnar án endur- gjalds og fá við það mjög góða æfingu og þekkÍDgu. Skrifstofa starfseminnar er opin hvern virkan dag, nema laugardaga, frá kl. 7-9. Seinustu árin hefir árleg að- sókn að skrifstofunni verið um 30000. Þarna eru gefnar upplýsingar um alls konar lögfræðisleg efni, svo sem um erfðamál, eignar- rétt, skaðabætur, skuldakröfur, barnsfaðernismál, meðlög, náð- anir, ríkisborgararétt, hjóna- skilnað, giftingar, lögaldur, nafnabreytingar, hjónamál o. m. fl. Starfsemin fæst ekki mikið við malaferli, en lætur þó stund- um málaflutningsmann, sem ráð- inn er hjá henni, flytja mál. I Noregi var »Kontoret for fri Retshjælp« stofnað í Oslo árið 1893. í byrjun fengu þeir lög- fræðingar, er störfuðu þar, enga þóknun fyrir staf sitt, en kostn- aðurinn var greiddur af gjafafé. Þegar tímar liðu fór ríkissjóður og bæjarsjóður að veita starf- seminni styrk og frá 1. apríl 1924 hefir bærinn kostað starf- semina og veilir til hennar 25000 krónur á ári. Skrifstofan er opin frá mánudegi til föstu- dags kl. 5—8 á hverjum degi. Þai staríar 1 skrifstofustjóri, 2 ráðunautar og 2 skifstofumenn. í Stokkhólmi er álíka starf- semi, er kallast »Stockholms stads rátshjáipsanstalt«. 1 Þýzkaiandi er einnig álíka starfsemi i fiestum hinna stærri bæja og kallast: »Verband der deut'chen gemeinnuizigen und unparticishen Rechtsauskunfst- stellenff. í New York var áður svoköll- / uð »Legai Aid Sociely«, er hafði skrifstofur á ýmsum stöðum í bæuum. Nú er starfsemin út- breidd mjög í Ameriku og kall- ast »National Alliance of legat Aid Societya. , Ég hefi bér að framan drepið á hversu starísemi þessi er út- breidd i mörgum löndum og hversu henni er fyrir komið. Þótt Reykjavík sé litill bær og fámennur í samanburði við stór- bæi í útlöndum og þótt þjóðin sé fámenn, þá virðist mér að æskilegt væri að siík starfsemi, sem sú er að framan er lýst, kæmist á hér. Hér er margt efnalítið fólk, sem kinokar sér við að leita sér nanösynlegra upplýsinga, vegna þess, hve dýrt þad er. Það væri sannarlega lofsvert, að styðja að því að greiða götu þeirra með því að koma hér upp skrifstofu, er veitti þeim ókeypis lögfræðis- hjálp. Eg býst við því, að hér yrði að fara að eins og í Dan- mörku og Noregi, að stofna til starfseminnar með gjöfum frá þeim, er hugmyndinni eru vin- veittir og mætti þá sennilega seinna meir búast við því að rikissjóður og bæjarsjóður létu eitthvað af mörkum, er fram í sækti, er starfsemin befði sýnt kosti sina og sannað þar með tilverurétt sinn. Mér þætti mjög sennilegt, að ekki þyrfti að hafa nema 1 fast- ráðinn mann til að stjórna fyrir- tækinu og 1 skrifstofustúlku. Ég býst sem sé viö, að starfsemin Dyti álíka velvildar hér á landi eins og til dæmis í Danmörku, þar sem margir ungir lögfræðis- nemar og nýlega útskrifaðir lög- fræðingar starfa þarna ókeypis til þess að einu leitinu að vinna fyrir hugsjónina og að hinu leit- inu til þess að fá æfingu i með- ferð lögfræðilegra starfa. Enn- fremur geng ég út frá því, að starfinu verði hagað svo, að ekki komi fram nokkur mót- setning, sem skylt ætti við sam- keppni, milli starfandi mál- færslumanna og starfsemi þeirr- ar, er hér um ræðir. Reynslan t. d. í Danmörku og Noregi hefir og sýnt, að slfkt á ekki að þurfa að óttast. í Danmörku nýtur þessi starfsemi (Retshjælp- en) mikillar velvildar málfiutn- ingsmanna — eins og að fram- an er drepið á. Ég vænti þess að margir verði til þess að styðja hug- myndina og koma henni í fram- kvæmd. Reykjavík 14. okt. 1928. Jón Ólafsson cand. jur. Samkvæmt beiðni Brautarinn- ar hefir hr. cand. jur. Jón Ólafs- son ritað ofanritaða grein um: »Ókeypis lögfræðisaðstoð fyrir efnalaust fólk«. Brautin telur þetta mál svo mikils virði, að hún vill ljá því styrk sinn. Lögfræðisleg hjálp sú, sem hér

x

Brautin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.