Brautin


Brautin - 18.01.1929, Qupperneq 3

Brautin - 18.01.1929, Qupperneq 3
BRAUTIN 3 (•YVi Kol. Koks. Smiöakol. Um leið og við viljum minna fólk á hin viðurkendu B. S. Y. Hard Steam Kol og pólsku kolirt, getum við ekki látið hjá líða að tilkynna að nú höfum við aftur fengið hið margeftirspurða enska KOKS, sem við seljum með sama lága verði og verið hefur. Hf Kol & Salt. m m m m ta m brennheitar bænir, eða blóðug tár fá aftur kallað. Við töluin um nútið, en í raun og' veru er hún ekki til, ekkert er til nema hin líðandi stund, sem óðara er gengin úr greipum okkar, eins og vindurinn, sem strýkur vanga okkar og þýtur svo á- fram út i ómælis geiminn. Við erum altaf að taka á móti nýj- um áhrifum og nýjum tímum og tilbreytni lifsins er óendan- leg. Hver einasta hugsun, sem grípur okkur, hvert orð sem við tölum og hvert viðvik sem við gerum, alt hrífur tíminn ineð sér og það verður i raun og veru aldrei aftur tekið. Og þó getum við setið tímunum saman og bollalagt auðvirðilega dagdóma um náungann. Með ógætnum orðum vekjum við úlfúð og tortrygni og þó vitum við aldrei hvað hinn komandi dagur felur i skauti sínu. Og við látum okkur leiðast og kvörtum yfir því að við vitum ekki hvernig við eigum að verja timanum og samt er æfin svo stutt, að við rétt höfum tíma til að lita í kringum okkur og undrast verkaefnin sem alstað- ar blasa við þvi efniviður lifs- ins er óþrjótandi. Nú er gamla árið horfið, en nýtt ár hefur gripið veldis- sprotann og stigið fram í geisl- um hækkandi sólar. Við vitum ekki hvað það hefur að færa okkur, en eitt er vist, að dagur- inn tekur að lengjast, en skainmdegisskuggarnir að smá- styttast. Það er eins og nýja árið ávarpi okkur með þessum gömlu, gullfallegu orðum: „Stattu upp og taktu við birt- unni því að dýrð Drottins ljóm- ar i kringum þig“. En við mannanna börn érum mörg svo skammsýn að við sjáum að- eins skuggana, sem svo oft eru okkar eigin skuggar, skuggar skilningsleysis og hleypidóma. „Varpaðu ekki Ijósi þínu á herðar þér, því þá kastar þú skugganum fram á veginn“, segir hinn indverski spekingur Tagor. Það er ekki nóg að eiga til eldsneytið en nota það ekki. Það er þetta sem mér finst nýja árið vera að minna okk- ur á, að hreinsa til í hugum okkar, útrýma þaðan óþörfum skuggum, því þá getum við glöð staðið upp og tekið á móti birt- unni. H. S. P. Nokkrir molar úr ræðu síra Fr. Hallgrímssonar sunnudaginn 2. desember. Skrifað siðar, eftir minni safnaðarkonu. „Sjá, konungur þinn kemur“. Það er hátíðablær yfir þessum orðum. Vér fögnum því að vera frjálsir menn í frjálsu landi, og vissulega er það fagnaðarefni, en það er ekki nóg. Frelsinu fylgir ætíð ábyrgð. Hver ein- staklingur þarf að hafa það hugfast, að hann er hluti af heildinni og spyrja sjálfa sig: Ert þú traustur viður i hinni miklu byggingu mannfélagsins, eða ert þú fúaspíta sem svíkur þegar á reynir? Sjá, konungur þinn kemur. Hann horfir inn í hjarta þitt: Um hvað ertu að hugsa? Eru hugsanir þínar i samræmi við boð lians og vilja? Geta þær staðist fyrir auganu altsjáanda? Hvað ertu að starfa? Til hvers notar þú krafta þina, og hinn dýrmæta, hraðfleyga tíma? Frá eilífðarinnar sjónarmiði er sá maður aumlega staddur, sem starfar með það eitt fyrir augum, að láta sjálfum sér liða vei. Sagan sýnir, að hvar sem fagnaðarerindi Jesú Krists var boðað, var þvi samfara starf- andi kærleikur. Hvar sem ríki hans náði að þróast og festa rætur, þróaðist að sama skapi rnannúð, fórn- fýsi og aðrar borgaralegar dygðir. Þegar þjóðirnar þar á móti liafna sinum andlega kon- ungi, en sökkva sér ofan i nautnir og sjálfhyggju, hnign- ar þeim um leið. Þess trúrri þegn, sem þú ert i riki Jesú Krists, þvi betri borgari verður þú í þjóðfélagi þinu. Sjá, konungur þinn kemur. Hann kemur færandi hendi, eins og konunga er siður. Hann gefur þér gjafir: fyrirgefningu, frelsi og frið. Hann finnur þig best undir búinn, ef þú þekkir vanmátt þinn, en hefur einlægan vilja á að þjóna honum og gjöra hans vilja. Tak þú á móti gjöfum hans. 108 En þrátt fyrir það losnaði hann ekki við sýnina, er hann hafði séð á koddanuin. Alvörunni og auðmýktinni í unglega andlitinu, er að eðlisfari var glaðlegt og fjörlegt — gat hann ekki gleymt. XIII. Vera hrestist, fékk leyfi til að fara á fætur og hefja aftur starf sitt smátt og smátt. Prófessorinn bauð henni auka-fristundir, til þess að hún gæti lyft sér upp og safnað kröftum, en Vera kaus heldur að mega þegar taka til starfa. Hún hélt þvi fast fram, að hún hefði notið meir en nægrar hvildar í legunni, og gæti með engu móti unað því, að ganga lengur iðjulaus. Það bar vott um starfslöngun æskunnar og ekki annað, hve mikið kapp Vera lagði á það, að hafna hvíldinni, eða svo kom það prófessornum fyrir sjónir. Hann brosti, því til samþykkis, og sagði, að hún mætti gjöra sem henni sýndist, en um leið og hann sneri sér að dr. Gripenstam, sem stóð þögull við hlið honum, bætti hann við: — Við verðum báðir að hjálpast að um það, að hún reyni ekki of mikið á sig; hún verður að hafa létta vinnu fyrst um sinn, jafnvel þótt henni sé það móti skapi Síðdegis sama daginn, er Vilhelm hafði lokið sjúkra- vitjunum, og Vera með honum fyrsta sinn eftir leguna, nam hann staðar í dyrunum og spurð lágri röddu, hví hún hafSi ekki viljað þiggja hvíldina, sem henni hafði verið boðin. — Eg kýs heldur starfið, mælti hún. Hún virtist mæla af einlægni, en hann lét ekki blekkjast. 105 eg og faðir minn tengdir þeim Irygðabondum við eignina, er höfðu orðið æ styrkari öld af öld. Böndin, sem tengdu okkur við ættaróðalið voru sterkari, en jarðneskum böndum hæfir að vera, lítur út fyrir. Að likindum vegna þess hafa þau hlotið að bresta. Og þegar þau brustu, dó faðir minn, og eg varð bitur og sár i skapi. Og beiskja min snerist gegn þeim, sem — þar þagnaði hann í svip, svipað og hann væri að leita að orði, er ekki væri jafn særandi og það, er lá á vörum hans — sem settist á ættaróðalið eftir föður minn. Vera fann ósjálfrátt, yfir hvilíkri beiskju og sársauka hann bjó undir niðri, þótt hann reyndi að dylja hana þess, og hana tók sárt lil hans, svo og föður sins, vegna þeirrar hlut- deildar, er hann átti i þessu máli, þótt henni, af þvi sem sagt var, gæti ekki skilist, að á honum þyrfti að bitna með réttu slík beiskja. Doktor Gripenstam hlaut sifelt að dylja hana einhvers af vægð við hana. — Eruð þér nú ánægðar með skýringar minar, ætli þér getið nú sofið í nótt? Hún hristi höfuðið, og leit á hann rannsóknaraugum, hrygg í bragði. — Hverju ætli eg að geta bætt við til þess að friða yður? spurði hann, sem sá, er of mikið væri heimtað af. — Vildi faðir yðar selja Fallsta, þegar faðir minn keypti óðalið? — Hann var orðinn stórskuldugur, og var neyddur til, muldraði Vilhelm. Samræðu þessa tók hann sér Ufar nærri, og, hefði Vera

x

Brautin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.