Brautin


Brautin - 24.05.1929, Side 1

Brautin - 24.05.1929, Side 1
Ritstjórar: Sigurbjörg Þorláksdóttir. Simi 1385. Marta Einarsdóttir. Slmi 571. Brautín. Útgefendur: Nokkrar konur í Reykjavík. Slmi: 491. Afgreiðslan er á Lokastíg 19. Sfmi 1385. 1. árgangur. Föstudaginn 24. maí 1929. 46. töiublað. Siðgöfgisstefnan Hvítasunna. Eiohver voldugasta hreyfing, sem enn hefir þekst, er nú að hefja göngu sína. Meiri hluti alls mannkynsins, sá hluti þess, sem lengst af hefir verið kúgaður og bundinn hörð- um böndum þess likamlega sterkara, er að fá máttinn til að losna og rísa upp. Konur heimsins eru að byrja að fá réttindi sin, það er hætt að skoða þær sem lægri verur, sem engu megi ráða og lítið mega hugsa, nema það, sem karlmennirnir leyfa þeim af náð sinni og miskunnsemi. Hin mikla hreyfing er að vísu enn í byrjun, sunjstaðar jafnvel ekki hafin enn, á öðr- um stöðum búin að ná nokkr- um þroska og viðurkenningu. En þegar byrjað er að losa fyrstu hlekkina af hinum kúg- ugu, þegar farið er að höggva smáskörð i hinn harða múr ó- frelsisins, sem lukt hefir sem fangagarður um þroska mögu- leika kvennanna, mun fyr en varir hinn mikli innibyrgði kraftur brjótast fram í fullum mætti sínum og brjóta meö heljartaki af sér alla fjötra og fella alla múra svo fult frelsi náist. Svo stórfeld hreyfing hefir aldrei þekst áður. Það má segja að með henni hefjist ný öld. Öld kvennanna. Öld tilfinning- anna. Öld hinna líkamlega veik- ari og fíngerðari. En hvert á að beina þessum mikla krafti, sem losnar úr viöj- um? Hvert á að stefna honum svo hann komi að sem bestum notum? Það þarf að finna hon- um takmark, búa honum við- fangsefni til að glíma við, það þarf að skapa honum nauð- synlegt sóknarmark i stjórn- málabaráttu heimsins. Hér er enginn smáræðiskraft- ur, sem losnar úr böndum. l*egar konur heimsins eða jafn- vel bara hinna aðalmenningar- landa, hafa fengið kosningarrétt til jafns við karlmenn, eru þær undir eins og þeim hefir tekist að fá góða og réttláta aðstöðu iögtrygða til að beita honum, orðnar aðalstjórnarkraftur ver- aldarinnar, af þvi þær eru í flestum löndum fleiri að tölu en karlmennirnir; með öðrum orðum meiri hluti allra þjóða. Þar með eru konurnar orðnar hinir eiginlegu heimsstjórnarar, sem allur heimurinn verðnr að lúta í öllu, sem þeim þóknast. Að slíkt hljóti að hafa mikla byltingu og breytingu i för með sér er augljóst mál. En hvert á að beina þessum mikla krafti? Á að tvistra bon- um i þær miklu stjórnmála- andstæður, sem nú rikja? Láta hann berjast um sömu efnislegu viðfangsefni, sem karlmennirnir hafa hingað til verið að berjast um, upp á líf og dauða, ihald, frjálslyndi, jafnaðar- og sameign- arstefnu, þjóðrembingsstefnur o. s. frv., eða á að reyna að sam- eina hann um æðra og meira viðfangsefni, sem öllum heim- inum má til góös og friðar verða? Á að reyna að nota hann til að hefja siðferðislega viðreisn mannkynsins á nýjum föstum grundvelli? Þetta er sú mikla spurning, sem fyr eða síðar hlýtur að koma fram og sem mikið veltur á að vandlega sé ihuguð og rétt svarað. Þesíi spurning vaknar einnig hjá ísl. konunum á þessum miklu timamótum, þegar þær eiga að fara að taka þær þungu og heilögu skyldur á heröar sér, að bera fulla ábyrgð á því til jafns við karlmennina, hvern- ig þjóðinni skuli stjórna og hver skuli vera lög og réttur með þjóðinni. Þegar ísl. konur athuga stjórn- málaástandið hér, finna þær glögt að því er í mörgu mjög ábótavant. Það hvílir yfir því eitthvað ijótt og viðbjóðslegt. Einhver ruddalegur blær, ein- hver andlaus lýgi- og lævísi- blandinn þungi, sem alt gott ætlar að kæfa, alt hreint og fagurt ætlar að drepa. Menn bera enga virðingu fyrir stjórn- málamönnunum og hafa enga verulegu trú á stefnum þeirra eða jafnvel að þeir meini nokk- uð verulegt með þeim. Þeir halda einu máli ákaft fram annan daginn, svíkja það gersamlega hinn daginn, án þess að fá svo mikið sem vott af blygðunarroða fyrir stefnu- leysið og svikin. Þeir lofa öllu fögru til að Iokka menn til fylgis við sig, en þegar þeir eru komnir að, Gleðiliátíð sunna sœl sviftu hrygð úr döprum hjörtum, vonda liugsun frá oss fœl, fyltu huga vonum björlum. Heilög sunna, af himni send, hégómanum frá oss víktu; undraliátíð elskukend, ár og daga hjá oss ríktu. M. S. M. verður oft harla lítið úr efnd- unum. Þeir nota hin svívirði- legustu skammaryrði um and- stæðinga sína og vilja aldrei unna þeim sannmælis i neinu, en hlaða væmnasta oflofi á sjálfa sig og samherja sina og vilja í engu láta ókosta þeirra getið, eða vara fólk við þeim. Fólkið finnur að það er eitt- hvað rangt við þetta. Það fær hálfgerðan viðbjóð á öllum þessum mönnum, öllu þessu falsi, öllum þessum leikaraskap, þar sem öll áherslan er lögð á að sýnast, en engin á að vera. Það þráir eitthvað æðra og betra, en það veit ekki hvernig það á að öðlast það. Það er orðið leitt á stóryrð- unum og skömmunum. Það er orðið leitt á loforðunum, sem altaf eru svikin. Það er orðið leitt á meðalmenskunni, sem vill vera að spila sig sem eitt- hvað stórt og mikið, en hrasar altaf um fyrsta þröskuld, sem á vegi hennar verður, og flýr af hólmi við fyrsta andblástur. Pað finnur að þessar stefnur allar vantar i sig það, sem mest á riður, kraftinn til að skapa sönn mikilmenni, kraftinn til að gera menn að góðum mönnum. Þær eru veraldlegs eðlis og sækjast fyrst og fremst eftir lægstu veraldlegum nautnum, líkamlegri vellíðan, auð, met- orðum og völdum. Alt annað er hégómi og einskis virði fyrir þær. Fólkið finnur að ný stefna verður að koma fram og hlýtur að koma fram. Ný stjórnmála- stefna verður að myndast, sem berst af alefli gegn siðferðislegri hnignun í hinu opinbera lífi þjóðarinnar. Þessi stefna er siðgöfgisstefn- an eða mannúðarstefnan. Pað er hin andlega stefna, sem beinir öllum krafti sínum gegn rangsleitni og Iggum, gegn falsi og svikum, gegn villimensku og mannúðarlegsi, hvar sem það kemur frum og undir hvaða gfir- skini sem það berst. Siðgöfgisstefnan er i eðli sínu byltingastefna. Ekki þó í hin- um venjulega skilningi, eius og boisévismi, fascisme og aðrar slíkar stefnur, þar sem öll á- hersia er lögð á að drepa and- stæðingana, pynta þá og kvelja sem hraksmánarlegast, kúga þá og undiroka á allar lundir. Hún er byltingastefna i and- legum skilningi. Hún víll byltingu hið innra hjá hverjum einstökum manni, jafn- framt sem hún vill siðferðislega byltingu i hinu opinbera lifi. Hún vill að hver einstakling- ur safni saman öliu þvi sem hann á. af heift og hatri, af gáfum og viti, af hugsun og krafti gegn því í fari sfnu, sem ilt er og ljótt og ómannúðlegt og bylti þannig um hinum innra manni til göfugra hugarfars og breytni. Og jafnframt vill hún að alt, sem til er með þjóðinni af reiði og hatri, af gáfum, viti og hugsun, beiti sér einhuga gegn öllu þvi, sem ljótt er og ósiðlegt í fari þjóðarinnar, hverju nafni sem nefnist, hvort sem fólkið er lágt sett eða hátt sett, ríkt eða fátækt, mentað eða óment- að, sem hið illa stafar frá. Þetta eitt getur skapað þá siðferðis- byltingu sem að nokkru gagni gæti orðið fyrir þjóðina og fram- tíð hennar. Siðgöfgisstefnan er ekki full- mynduð, það er vafasamt hvort hægt er að kalla hana enn ann- að enn visi til nýrrar stjórn-

x

Brautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.